Að sýna sig og sjá aðra

Þorgeir Tryggva­son mun fram að jólum skrifa um bækur. Hann tekur í dag fyrir bók Eiríks Arnar Norðdahl, Heimsku, sem gefin er út undir merkjum Máls og menn­ingar.

„Eitt sinn voru ekki gluggar á húsum. Þegar búið var að finna þá upp var óhugs­andi án þeirra að vera. Glugga­laus hús voru hús sem ekki mátti sjá inn í því þar gerð­ist sitt­hvað mis­jafnt. Gluggar voru aug­ljós fram­för frá glugga­leysi for­tíð­ar­innar og þeir sem vildu án þeirra vera – eða byrgðu þá – hlutu að hafa fyrir því vafa­samar ástæður.“

Þær hafa svo sem ekki streymt úr pennum íslenskra höf­unda, fram­tíð­ar­sög­urnar. Lovestar Andra Snæs sú eina sem ég man eftir án áreynslu, en auð­vitað eru þær fleiri. Vafa­laust ...

Reyndar er Heimska á mörk­unum. Fram­tíðin í henni er ein­hvern­vegin svo náin að hún er næstum ekki fram­tíð. Það eina sem hefur breyst er að sá hluti lífs­ins sem lifað er í netheimum er orð­inn enn öfga­fyllri og fyr­ir­ferð­ar­meiri á kostnað hins. En miðað við hraða og hröðun þró­un­ar­innar finnst manni sú staða sem Eiríkur lýsir gæti verið komin upp eftir nokkra mán­uði. Já og svo gæti inn­an­lands­flugið mögu­lega verið flutt til Kefla­víkur í bók­inni þó það sé ekki sagt berum orðum. Skilj­an­lega ekki, alltof eld­fimt.

Þessi stutta, snarpa og for­vitni­lega bók er ofin úr nokkrum þráðum. Kannski ekki neitt ógur­lega þétt ofin, en vissu­lega snert­ast þeir á alla enda og kanta, flækj­ast hver fyrir öðrum og magna upp. Kyn­lífs­styrj­öld hjóna­leysanna Áka og Lenítu kannski minnst spenn­andi, en á móti kemur hinn kostu­legi vand­ræða­gangur með þá duttl­unga örlag­anna (eða hvað það nú var) sem lét þau skrifa næstum sömu skáld­sög­una og skila í bóka­flóðið 20XX. Gaman að það skuli enn vera jóla­bóka­flóð. Og bók­menntaum­ræðan og verð­launin á svip­uðum stað. Gott ef Eiríkur Guð­munds­son er ekki enn í fullu fjöri – og RÚV að því er virð­ist líka. Guð láti gott á vita.

Þunga­miðjan er samt eft­ir­litið. Sjálfs­eft­ir­lit fólks­ins sem bein­línis þrífst á að láta fylgj­ast með sér – jafn­vel umfram það að sem fá má út úr því að kíkja inn í alla kima heima hjá hinum. Það er þessi þráður sem Eiríkur dvelur við, leggur út af, veltir fyrir sér. Það er oft spenn­andi og ögrandi. Og leiðir auð­vitað yfir í and­stæð­una: hvað ger­ist í þessu fram­andi en ískyggi­lega kunn­ug­lega fram­tíð­ar­sam­fé­lagi þegar ýtt er á off-takk­ann? Þegar raf­magnið fer og tekur með sér öll staf­rænu gægju­götin.

Það sem Eiríkur hefur um það að segja er flott og snjallt. En fyrir minn smekk of lítið. Við fyrsta lestur virkar eins og þessi þráður sé vannærður, hefði átt að taka meira pláss í blað­síðum og mik­il­vægi talið. Smá­mynd­irnar af hinum ýmsu íbúum Ísa­fjarðar og hvernig þeir bregð­ast við eru svo skemmti­legar og lýsandi að mann langar í fleiri. Og hrein­lega að ástandið væri látið vara lengur og valda enn meiri usla í sam­fé­lag­inu. Þetta er auð­vitað græðgi og frekja. Mögulega líka rangt og maður sæi það um leið og bókin væri orðin hund­rað síðum lengri með heims­slita­legri lokakafla. En svona líður mér núna.

Lokakafl­inn eins og höf­undur vildi hafa hann, þar sem við fáum skýr­ingar á raf­magns- og eft­ir­lits­leys­inu og örlög helstu sögu­hetja ráð­ast að ein­hverju leyti, finnst mér síðan rök­réttur, áhrifa­ríkur og sann­fær­andi. Og bókin í heild sinni hugs­un­ar­vekj­andi, fyndin og beitt, þó hún hefði mátt vera feit­ari fyrir minn smekk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár