Sprengjuhótanir valda usla í Rússlandi

Hryðju­verkaógn er næstum áþreif­an­leg í Moskvu, þar sem Ómar Þor­geirs­son, sagn- og mark­aðs­fræð­ingur, er búsettur. Við­bún­að­ar­stig hefur nú verið hækkað í Moskvu vegna vax­andi ógnar.

Rúss­neskir fjöl­miðlar greina nú frá miklum fjölda sprengju­hót­ana sem ýmist hafa borist til lög­gæslu­að­ila eða umsjón­ar­manna sam­göngu­mann­virkja, hót­ela og versl­un­ar­mið­stöðva í Moskvu og fleiri stórum borgum Rúss­lands síð­ustu daga. Sérstök deild á vegum rúss­nesku alrík­is­lög­regl­unnar FSB, sér­hæfð í vörnum gegn hryðju­verkum, til­kynnti að allt örygg­is­eft­ir­lit hafi nú verið hert í Rúss­landi. Við­bún­að­ar­stig hefur því víða verið hækkað og Interfax-frétta­stofan greinir meðal ann­ars frá því að lög­gæslu­að­ilar í Moskvu séu að vinna á svoköll­uðu „neyð­ar­stigi”.

Nú þegar rúss­nesk stjórn­völd hafa enn fremur „rofið þögn­ina” og stað­fest að um hryðju­verk hafi verið að ræða þegar flug 7K9268 hrap­aði á Sínaí-skaga í lok síð­asta mán­aðar má búast við því að ótti grípi um sig meðal almenn­ings í Rúss­landi. Eins og sagði í umfjöllun rúss­neska vef­mið­ils­ins gazeta.ru um málið. „Morð á sak­lausum rúss­neskum borg­urum færir stríðs­á­tök, sem áður sýnd­ust vera langt í burtu, beint heim að dyrum til Rússa. Ítrek­aðar hót­anir Ríki íslams um hryðju­verka­árás í Rúss­landi og hryðju­verka­árásir sam­tak­anna í Beirút á fimmtu­dag­inn og París á föstu­dag­inn útskýra einnig hina vax­andi hryðju­verkaógn og ótt­ann sem henni fylgir.

Sprengjuhótanir til rannsóknar

RIA Novosti-frétta­stofan greinir frá því að um 500 manns hafi verið látnir yfir­gefa Kursky-lest­ar­stöð­ina í Moskvu í flýti í kjöl­farið á sprengju­hótun sem barst lög­reglu kl. 06.36 að stað­ar­tíma á mánu­dags­morgun. Seinna um dag­inn var svo sama upp á ten­ingnum á bæði Yaroslav­sky-lest­ar­stöð­inni og hinni fjöl­förnu Smo­lenskaya-lest­ar­stöð í mið­borg Moskvu. Áður höfðu Koltsovo-flug­völl­ur­inn í Eka­ter­in­burg, Kosmos-hót­elið í Moskvu og Voros­hilov-versl­un­ar­mið­stöðin í Vol­gograd einnig verið rýmd vegna svip­aðra sprengju­hót­ana síð­ustu daga.

[adspot]

Ástæður fyrir sprengju­hót­unum eru í grunn­inn aðeins af tvennum toga. Annað hvort veit sá sem til­kynnir hót­un­ina af sprengju og vill að ein­hverjum sökum láta vita af henni eða að við­kom­andi er að ljúga í þeim til­gangi að valda ótta og ringul­reið. Til þessa hafa engar sprengjur fund­ist á fyrr­nefndum stöðum og engan sakað. Í ljósi atburða síð­ustu daga er sprengju­hót­un­unum þó tekið mjög alvar­lega af rúss­neskum yfir­völdum og rann­sókn á þeim stendur nú yfir að sögn Tass-frétta­stof­unnar.

Rússland yfirlýst skotmark Ríki íslams

Hern­að­ar­í­hlutun Rússa í Sýrlandi hefur gert það að verkum að Rússland er hvað eftir annað nefnt sem hugs­an­legur vett­vangur hryðju­verka­árása, ef marka má áróð­urs­mynd­bönd á vegum Ríki íslams. Sér­stak­lega hefur hót­un­unum fjölgað í kjöl­farið á ákvörðun Pútíns að heim­ila fram­kvæmd loft­árása á valin skot­mörk í Sýrlandi í lok sept­em­ber.

Á síð­asta fimmtu­dag birt­ist nýtt tæp­lega fimm mín­útna langt áróð­urs­mynd­band frá Ríki íslams undir titl­inum „Brátt, mjög brátt mun blóð fljóta eins og haf” en þar bein­ast hót­anir sér­stak­lega að Rússum. „Evrópa skelfur, Rússland mun deyja. Kremlin verður okkar. Við munum end­ur­heimta Kákasus aftur frá myrkra­öflum,” segir meðal ann­ars í mynd­band­inu. En hót­an­irnar eru að stórum hluta fluttar á rúss­nesku, með mynd­brotum af rúss­neskum borgum og bygg­ingum. Athygli vakti hins vegar að ekk­ert var minnst á flug­hrap rúss­nesku far­þega­þot­unnar á Sínaí-skaga í mynd­band­inu. Banda­ríska sjón­varps­stöðin CNN telur að ástæðan geti hugs­an­lega verið sú að hryðju­verka­árásin hafi ekki verið skipu­lögð og fram­kvæmd af aðilum frá höf­uð­stöðvum Ríkis íslam. Jafnvel að egyp­sku hryðju­verka­sam­tökin Ansar Bait al-Maqdis, sem eru hlið­holl Ríki íslams, komi þar til greina en sam­tökin hafa sjálf lýst yfir ábyrð á flug­hrap­inu.

Rússnesk stjórn­völd hafa ekki tjáð sig sér­stak­lega um efn­is­tök mynd­bands Ríki íslams en hót­an­irnar hafa án vafa vakið óhug margra í Rúss­landi. Sér­stak­lega í ljósi þess að um sjö þús­und víga­menn í her­sveitum Ríki íslams eru rúss­neskir rík­is­borg­arar eða frá löndum sem áður til­heyrðu Sov­ét­ríkj­unum, sam­kvæmt heim­ildum rúss­nesku alrík­is­lög­regl­unni. Þekking þeirra á rúss­neskum land­háttum gæti því nýst hryðju­verka­sam­tök­unum vel við skipu­lagn­ingu hugs­an­legra voða­verka sinna í land­inu.

Óttinn við hið óþekkta

Rússar hafa marga fjör­una sopið vegna hryðju­verka­árása í gegnum tíð­ina. Nær árlega ber­ast fregnir af hryðju­verka­árásum þar sem almennir borg­arar í Rúss­landi láta lífið og oft skammt stórra högga á milli. Á síð­ustu fimmtán til sextán árum hafa ýmsir upp­reisn­ar­hópar frá sjálf­stjórn­ar­lýð­veld­inu Téténíu, í norð­ur­hluta Kákasus­fjalla, verið áber­andi á meðal þeirra aðila sem lýst hafa ábyrgð á hryðju­verka­árásum í Rúss­landi. Í fyrstu voru það aðal­lega hópar aðskiln­að­ar­sinna sem börð­ust fyrir sjálf­stæði frá Rúss­landi. Síðar hafa ýmsir öfga­hópar rót­tækra múslima frá Kákasus-svæð­inu látið til sín taka af ýmsum ólíkum ástæðum sem ekki verða útli­staðar hér.

Nú leikur alþjóða­sam­fé­lagið hins vegar á reiði­skjálfi útaf ógn­inni sem stafar af Ríki íslams og Rússland er þar engin und­an­tekn­ing. Rússar hafa grátið og vottað fórn­ar­lömbum hryðju­verka­ára­ása í París og víðar samúð sína. Á meðan þeir eru sjálfir að sjálfir að syrgja og ná áttum eftir frá­fall hinna 224 sem lét­ust á Sínaí-skaga fyrir rúmum tveimur vikum. Enginn and­stæð­ingur hryðju­verka­sam­tak­anna veit með vissu hvort, hvar eða hvenær þau muni beita mis­kunn­ar­lausum eyði­legg­ing­ar­mætti sínum aftur. Óttinn við hið óþekkta er raunar nú þegar far­inn að hafa áhrif á líf almenn­ings í Rúss­landi, með meiri eða minni hætti. Þó svo að dæmi þess rati ekki alltaf á síður fjöl­miðl­anna. Grein­ar­höf­undur hefur til að mynda heim­ildir fyrir því að for­stöðu­menn grunn­skóla í Moskvu hafi ráð­lagt nem­endum sínum að forð­ast með öllu að nota neð­an­jarð­ar­lesta­kerfi borg­ar­innar um sinn. Einnig voru nem­endur beðnir um að reyna að kom­ast hjá því að fara í versl­un­ar­mið­stöðvar og á aðra fjöl­farna staði vegna vax­andi hryðju­verkaógnar og óvissu­á­stands­ins sem nú ríkir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár