Listin að skapa sig

Þorgeir Tryggva­son mun fram að jólum skrifa um bækur. Hann tekur í dag fyrir bók Hall­gríms Helga­sonar, Sjó­veikur í Munchen, sem gefin er út undir merkjum JPV.

Sjálf­bærni er hug­sjón sam­tím­ans. Merki­legt að sjá þess jafn áþreif­an­leg merki í skáld­skapnum, af öllum stöðum. Ótrú­leg­asta fólk virð­ist dreyma um að vera sjálfu sér nógt um sögu­efni, vinna með sitt eigið líf á mun grímu­laus­ari hátt en við eigum að venj­ast, svona ofan á allar hefð­bundnu ævi­sög­urnar og minn­inga­bæk­urnar. Grímu­laus­ari, en líka skáld­legri. Úr verður óstöðugt efna­sam­band, sem er auð­vitað annað orð yfir sprengi­efni. Ein­hverjar bombur hafa nú þegar sprungið.

Sjó­veikur í München er öðrum þræði um efna­sam­band sem gæti þess vegna verið sprengi­efni. Reyndar fjallar veikasti kafli bók­ar­innar eig­in­lega um það hvað ger­ist þegar svarta gubbið sem Ungur Maður (sögu­hetja Hall­gríms) hefur verið að safna í bjór­glas inn­an­klæða er gert upp­tækt af Aust­ur­þýskum lög­reglu­mönnum í heim­sókn hans austur fyrir múr í lok Þýska­lands­dval­ar­innar. Það er svo­lítið eins og þessi fang­els­is­dvöl hafi verið skrifuð á sjálf­stýr­ingu, saumuð upp úr öðrum frá­sögnum og kvik­myndum um slíka reynslu. Enda eru hún það. Allavega ekki sótt í minn­inga­sjóð höf­undar, nema að smá­vægi­legu leyti eins og fram kom í Kilju­við­tali.

Umrætt efna­sam­band er líka skáld­skapur. Og ekki bara það – mögu­lega er það Skáld­skapur, hvorki meira né minna. Hraun, blek, hin innri ólga sem þarf bæði að storkna og fljóta til að hægt sé að forma hana, nýta til skap­andi starfa. Hall­grímur teflir á tæp­asta vað með að láta les­and­ann sífellt fylgj­ast með þessum upp­sölum og pukr­inu í kringum það áður en lík­ingin krist­all­ast að lokum. Þá fyr­ir­gefur les­and­inn, alla­vega þessi, staglið í þessu djarfa og, á end­anum, snjalla lík­inga­máli.

Pukur, felu­leikur, er eitt gegn­um­gang­andi stef. Ungur Maður er áfjáður í ein­veru. Hann forð­ast hið bjór­glaða sam­fé­lag íslensku náms­mann­anna, hann tengir ekki við sam­nem­endur sína í hinni bæversku lista­aka­demíu, hann felur sig bak við glugga­tjöld, nak­inn, meðan leigusal­inn hans tekur á móti vin­konu sinni í far­sa­kenndasta atriði bók­ar­innar. Stílsmáti dags­ins í list­inni snertir hann ekki. Hann tengir einna helst við Marcel Duchamp, en gengur að vonum illa að kom­ast að leynd­ar­dómum „Stóra glers­ins“, hvað þá að finna þau fót­spor meist­ar­ans sem honum gæti liðið vel í. Marcel sjálfur er ekki til við­tals.

Og í jóla­ferð til Flórens í leit að list, en ekki síður ást og ham­ingju, mætir skelf­ingin til leiks. Hinni umtöl­uðu nauðgun og eft­ir­köstum hennar er frá­bær­lega lýst. Les­and­inn skynjar hvernig hún fær nákvæm­lega það pláss, þann tíma, sem það tekur Ungan Mann að koma henni úr kall­færi við með­vit­und sína. Og er svo úr sög­unni. Nema hvað hún er auð­vitað í sög­unni og ekk­ert á förum.

Hinn sér­staki stílsmáti og húmor Hall­gríms er auð­þekktur, og vel beitt hér í þágu per­sónu­sköp­un­ar­innar, annað hvort væri. Stundum kvarta menn yfir fyr­ir­ferð miss­niðugra útúr­dúra og elt­inga­leikja við mis­dýra orða­leiki. Enginn ætti að þurfa að gnísta tönnum yfir slíku í þess­ari bók. Hér heldur þrosk­aður höf­undur á penna fullum af tor­fengnu bleki og nýtir það af skyn­semi til að lýsa sér, rann­saka sig og afhjúpa. Og skemmta okkur. Og gerir það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár