Er þekktasta drottning forn-Egypta loks fundin?

Breski forn­leifa­fræð­ing­ur­inn Nicholas Reeves, sem starfar við Arizona háskóla, telur að hann hafi mögu­lega fundið graf­hýsi þekkt­ustu drottn­ingar Egypta­lands til forna, Nefer­titi, sem uppi var meira en 3000 árum síðan. Slíkur fundur yrði einn sá merki­leg­asti í sög­unni og gæti varpað ljósi á ævi drottn­ing­ar­innar sem að miklu leyti er hulin ráð­gáta.

Konungshjónin sem umbyltu landinu

Lítið er vitað um upp­runa Neferiti annað en að hún var af tignum ættum. Hún varð drottn­ing Egypta­lands og fremsta eig­in­kona fara­ós­ins Amen­hotep IV sem ríkti um 1353-1336 f.Kr. Það var snemma á hinu svo­kall­aða Amarna tíma­bili sem var sér­stakt vel­meg­un­ar­skeið í forneg­yp­skri sögu. Hjónin eru hvað fræg­ust fyrir að hrófla við trú­ar­brögðum lands­ins. Þau tóku upp ein­gyð­is­trú á sól­ar­guð­inn Aten og byggðu nýja höf­uð­borg sem kall­að­ist Akhenaten og faraó sjálfur tók sama nafn. Neferiti tók nafnið Nefer­neferu­aten. Hún ól faraó sex dætur en engan son en hann átti þó fleiri börn með hinum eig­in­konum sínum, þar á meðal hinn fræga Tut­ank­hamun sem seinna varð faraó.

Neferiti var drottn­ing þar til Akhenaten dó en þá er eins og hún hafi horfið af yfir­borði jarðar. Engar heim­ildir eru til um afdrif hennar eftir það. Vanga­veltur eru uppi um það hvort að hún hafi verið myrt því að kon­ungs­hjónin eign­uð­ust marga óvini þegar þau hrófl­uðu við trúnni. Einnig hefur því verið haldið fram að hún hafi skipt um nafn og stýrt land­inu sem faraó meðan Tut­ank­hamun var of ungur til þess. Það var einmitt Tut­ank­hamun, sem sneri Egypta­landi aftur til fjöl­gyð­is­trúar og færði höf­uð­borg­ina aftur til Þebu. Nefer­titi var einnig fræg fyrir feg­urð sína. Thutmose, einn merkasti lista­maður forn­aldar sem starf­aði við hirð faraós, gerði and­lit hennar ódauð­legt með einni fræg­ustu brjóst­mynd sög­unnar.

KV 62

Í Dal kon­ung­anna eru ótal graf­hýsi faraóa og ann­arra kon­ung­bor­inna grafin í klettana. Dalurinn liggur nálægt borg­inni Luxor (áður Þebu) við bakka Níl­ar­fljóts í hjarta Egypta­lands. Hug­myndin um fram­halds­líf var einn af horn­steinum hug­ar­heims Forn-Egypta og greftr­un­ar­siðir því teknir mjög alvar­lega. Það gat tekið ára­tugi að grafa hvert graf­hýsi sem voru ríku­lega skreytt af fær­ustu lista­mönnum forn­aldar og troð­fyllt af gulli og gim­steinum. Egyptar trúðu því að fólk gæti tekið með sér ver­ald­lega hluti inn í fram­halds­lífið. Í hvert sinn sem nýr faraói tók við var strax haf­ist handa við að grafa fyrir hann graf­hýsi. Á 19. öld hófu ævin­týra­gjarnir menn frá Vest­ur­löndum að leita í dalnum. Sumir af fræði­legum áhuga en aðrir í gróða­von.

Hvert graf­hýsið á fætur öðru fannst og fjöl­margir verð­mætir munir voru teknir úr þeim. Sum hýsin höfðu reyndar verið rænd mörgum öldum áður og önnur höfðu að miklu leyti skemmst í flóðum og öðrum nátt­úru­ham­förum. Árið 1922 fann breski forn­leifa­fræð­ing­ur­inn Howard Carter graf­hýsi sem nefnt var KV 62 og þar lá Tut­ank­hamun faraói. Tut­ank­hamun dó ungur og þótti alls ekki meðal merki­leg­ustu fara­ó­anna en graf­hýsi hans var það heil­legt að þetta þykir í dag einn merki­leg­asti fundur í sög­unni. Þúsundir muna fund­ust í graf­hýs­inu og það tók um níu ár að flokka og greina þá alla.

Bakvið vegginn

Nú í sumar kom forn­leifa­fræð­ing­ur­inn Nicholas Reeves með þá kenn­ingu að graf­hýsi Tut­ank­hamuns sé stærra en hingað til hefur verið talið. Eftir að hafa rann­sakað ljós­myndir sem teknar voru í mjög hárri upp­lausn af mynd­skreyttum veggj­unum sá hann vís­bend­ingar um að tveir veggir gætu verið inn­sigl­aðar dyr. Hann segir: „Því lengur sem ég horfði, þeim mun meiri upp­lýs­ingar fann ég um að ég væri að sjá eitt­hvað í alvöru. Ef ég hef rangt fyrir mér þá hef ég rangt fyrir mér. En ef ég hef rétt fyrir mér þá er það hreint út sagt yfir­þyrm­andi. Þá mun heim­ur­inn hafa orðið athygl­is­verð­ari staður.....að minnsta kosti fyrir Egypta­lands­fræð­inga.“Innrauðu ljósi var beint að veggnum til að sjá hvort ein­hver hita­munur væri á þeim. Það reynd­ist vera og má nú fast­lega gera ráð fyrir því að hólf eða her­bergi séu handan veggj­anna tveggja. Egypsk stjórn­völd eru komin í málið og forn­minja­ráð­herr­ann Mamdouh el-Damaty segir að næstu skref séu að nota svo­kall­aða jarð­rat­sjá til þess að sjá inni í bergið. Reeves telur lík­legt að bak­við vegg­inn hvíli stjúp­móðir Tut­ank­hamuns, drottn­ingin Nefer­titi. Til stuðn­ings þess­ari til­gátu nefnir hann að graf­hýsi Tut­ank­hamuns sé mun minna en ann­arra faraóa og sé hannað frekar eins og fyrir drottn­ingu en kóng. Hafa ber einnig í huga að hann dó innan við tví­tugt og ólík­legt að graf­hýsi hafi verið til­búið fyrir hann. Tilgátan er því sú að KV 62 hafi upp­runa­lega verið grafið fyrir Nefer­titi en þegar Tut­ank­hamun lést langt fyrir aldur fram hafi hann fengið hluta þess en Nefer­titi þá inn­sigluð af. Það væri ekki eins­dæmi. Grafhýsi Amen­hot­eps III (WV22) afa Tut­ank­hamuns er t.a.m. tví­skipt.

Viðbrögðin

Þó að egypsk stjórn­völd styðji rann­sóknir Reeves á KV 62 og leggi mikla áherslu á að kom­ast að hinu sanna varð­andi leyndu her­bergin tvö þá eru þau ekki sann­færð um að Nefer­titi finn­ist þar. El-Damaty stígur var­lega til jarðar og segir: „Ef það er satt, þá sjáum við fram á upp­götvun sem myndi skyggja á fund Tut­ank­hamuns sjálfs.“ Hann er þó von­góður um að eitt­hvað nýtt finn­ist sem varpi ljósi á tíma­bilið. Það sem gefur fólki mikla von er sú stað­reynd að KV 62 er nú þegar heil­leg­asta graf­hýsið í dalnum.

Ef drottn­ingin liggur handan inn­sigl­aðra veggja má ætla að gríð­ar­legir fjár­sjóðir finn­ist í her­bergj­unum, alger­lega óhultir fyrir graf­ar­ræn­ingjum. Nýjar vegg­myndir gætu fund­ist í her­bergj­unum sem gæfu okkur inn­sýn inn í líf Nefer­titi og sam­tíma­fólks hennar. Svo auð­vitað múmían sjálf sem gæti sagt okkur heil­mikla sögu svo lengi sem hún væri nokkuð heil­leg. Banda­ríski rit­höf­und­ur­inn Michelle Moran, sem skrifað hefur sögu­legar skáld­sögur um drottn­ing­una er vit­an­lega mjög spennt yfir rann­sókn­unum. „Að finna graf­hýsi hennar yrði ótrú­legt. Það myndi svara mörgum ósvöruðum spurn­ingum eins og hvenær hún dó, hvernig hún dó og þeim vanga­veltum um hvort hún hafi stýrt rík­inu eftir að maður hennar féll frá.“

Margir af leið­andi fræði­mönnum á svið­inu hafa þó sínar efa­semdir um mögu­legan fund. Þar á meðal Aidan Dodson við Bristol háskóla sem segir að alls sé óvíst hvort að annar greftr­un­ar­salur finn­ist handan veggj­anna, hvað þá drottn­ing­ar­innar.

Árið 2003 þótt­ist sagn­fræð­ing­ur­inn Joann Fletcher við York háskóla hafa borið kennsl á Nefer­titi í öðru graf­hýsi, KV 35 sem Frakkinn Victor Loret fann árið 1898. Sú múmía hefur ekki verið nafn­greind en DNA rann­sóknir sýna að sú kona var móðir Tut­ank­hamuns og jafn­framt systir föður hans, Akhenatens. Það þótti ekki óeðli­legt á þeim tíma að fara­óar gift­ust systrum sínum eða jafn­vel dætrum. Kenning Fletchers reynd­ist því ekki á rökum reist. En þó að til­gáta Reeves virð­ist dig­ur­barka­leg og jafn­vel glæfra­leg þá verður mjög fróð­legt að sjá hvað ger­ist á næstu vikum og mán­uðum. Heim­ildir frá þessu tíma­bili mann­kyns­sög­unnar fyrir rúmum 3000 árum eru fáar og fræði­menn ganga yfir­leitt um í myrkr­inu. Fundir á borð við KV 62 ger­ast ekki oft og því er nauð­syn­legt að nýta þá til fulln­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár