Að hanna kampavín

Fyrir marga er kampa­vín óhjá­kvæmi­legt við gleði­leg til­efni. Því er sprautað yfir sig­ur­veg­ara í íþróttum, skálað í því við brúð­kaup og ára­mót og sumt fólk jafn­vel baðar sig upp úr því. Er þá ekki und­ar­legt til þess að hugsa að kampa­vín, eftir því sem þjóð­sagan segir, varð til fyrir mis­tök?

Sagan segir að franski munk­ur­inn Dom Perignon hafi búið til hvítvín sem hélt áfram að gerj­ast eftir að því var tappað á flösk­una. Þrýst­ingur mynd­að­ist í flösk­unni, tapp­inn small úr með látum og þegar vín­inu var hellt í glös, stigu loft­bólur upp á yfir­borðið þar sem vínið og kol­sýran snertu agn­arsmá óhrein­indi í vín­glas­inu. Og það glas var örugg­lega mun óhreinna en glösin sem við notum í dag.

Það var þó ekki nóg að finna upp sjálft vínið. Þrýst­ing­ur­inn sem mynd­að­ist í fyrstu flösk­unum, ýmist sprengdi þær eða skaut töpp­unum langar vega­lengdir, sem varð til þess að vínið fékk við­ur­nefnið „vin de diable“, vín djöf­uls­ins. Þetta kall­aði bæði á betri flöskur úr þykk­ara gleri og aðra nýja lausn, svo­kallað „muselet“, en það er litla vír­grindin sem læsir kork­tapp­anum við flösk­una. Tappinn er reyndar líka mjög ólíkur öðrum vín­töppum. Breiðari á neðri end­anum, sem vinnur gegn því að hann skjót­ist úr flösk­unni og með stóra kúlu efst, sem dreifir álag­inu frá „muselet“ lausn­inni jafnt á allan tapp­ann. Þá er ótal­inn fjöld­inn allur af tækni­legum lausnum sem þurfti til, svo fram­leiðslan yrði við­ráð­an­leg, hag­kvæm og áreið­an­leg. En hvar kemur hönnun þá inn í mynd­ina? Hvernig hannar maður kampa­vín?

Að þróa sjálft vínið, til dæmis með því að setja sykur út í það og auka gerj­un­ina, eða að búa til flösk­una og tapp­ann sem þoldu þrýst­ing­inn, eru ágæt dæmi um tækni­leg vanda­mál sem þurfti að leysa svo vínið gæti orðið að selj­an­legri vöru. En það útskýrir ekki hvers vegna fólk eyðir mörgum tugum þús­unda króna í það sem í grunn­inn er ekk­ert annað en mátu­lega skemmd berja­saft.

Snilldin við mark­aðs­setn­ingu kampa­víns liggur í því að höfða til til­finn­inga neyt­and­ans. Þannig hefur kampa­víns­fram­leið­endum tek­ist að tengja afurð­ina við nær öll mik­il­væg­ustu augna­blik lífs­ins. Fæðingar, afmæli, útskriftir, brúð­kaup og jafn­vel aðrir og minni við­burðir eins og ára­mót og íþrótta­sigrar eru til­efni þess að tappar fljúga úr þykkum gler­flöskum kampa­víns­fram­leið­enda. Á tveim öldum hefur salan þannig vaxið úr örfáum þús­undum flaskna upp í rúmar 330 millj­ónir á veislu­ár­inu 2007. Og þá er bara nefndur dýr­asti hluti mark­að­ar­ins, ekta og ósvikið kampa­vín frá Frakk­landi.

Nú vill svo til að sagan um Dom Perignon er ekki sönn. Hið rétta er að um miðja 16. öld tóku Bene­dikt­us­ar­munkar upp á því að tappa sínu víni á flöskur áður en gerj­un­ar­ferl­inu var lokið og sköp­uðu þar með freyð­andi vín. Hvaðan þeir fengu hug­mynd­ina er ekki fylli­lega ljóst. Kannski var óvenju mikið að gera við hand­rita­skrifin. Ef til vill var veð­ur­far slæmt það ár og áríð­andi að klára töpp­un­ina áður en frostið skall á. Hvað sem því líður var það ekki fyrr en heilli öld síðar að Christopher Merret skráði fyrstur manna aðferðir við að bæta sykri í vínið til að auka gerj­un­ina og hálfri öld eftir það kom marg­frægi munk­ur­inn Dom Perignon fram á sjón­ar­sviðið.

Hvað hefði gerst, ef munk­arnir hefðu hellt niður skemmda vín­inu sem sprengdi flösk­urnar? Ef gerj­unin hefði stöðvast fyrr og engar loft­bólur mynd­ast? Ef glösin hefðu ekki verið svona skítug? Væri þá ekki Champagne hér­aðið eins og hvert annað vín­rækt­ar­hérað Frakk­lands, frekar en heimsmið­stöð versl­unar og fram­leiðslu fyrir einn best heppn­aða iðnað í heim­inum? Þegar maður veltir þannig fyrir sér þróun kampa­víns, er í raun með öllu óskilj­an­legt hvers vegna svona margt fólk er hrætt við að gera til­raunir og jafn­vel mis­tök í vöru­þróun. Því sann­leik­ur­inn er sá að mis­tök geta vel borgað sig.

Mjög vel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár