Þegar njósnari er handtekinn í Austur Asíu

Kim Hyon-hui.
Kim Hyon-hui.

Nýlega lauk þrí­hliða leið­toga­fundi Suður Kóreu, Japan og Kína í Seúl. Leið­togar ríkj­anna þriggja lýstu því yfir að þíða væri komin í sam­skipti þeirra eftir þriggja ára frost. Ófáum frétta­skýrendum þótti að fyrsti kven­for­seti Suður Kóreu, Park Geun-hye, ætti heið­ur­inn að bættum sam­skiptum á fund­inum. Kjarn­orku­á­ætlun Norður Kóreu var efst á lista í umræðum um örygg­is­mál. Japanir eru óhagg­an­legir í því máli.

Afstaða þeirra þar á sér sér­staka for­sögu.

Hvernig er að gleypa blásýrutöflu?

Líklega hafa fæstir ímyndað sér hvernig það er að gleypa blá­sýru­töflu og binda enda á lífið í einu vet­fangi. Þann 1. des­em­ber árið 1987 gerði ung kóresk kona það eftir að hafa verið stöðvuð á flug­vell­inum í Bahrein. Hún hét Kim Hyon-hui og lifði sjálfs­morð­stil­raun­ina af. Í kjöl­farið átti hún eftir að svipta hul­unni af njósn­a­sögu sem er lyg­inni lík­ust. Upp­ljóstr­unin varð hluti af milli­ríkja­deilu milli Japans og Norður Kóreu sem enn er óleyst.

Til að skilja deil­una þurfum við að flakka nokkra ára­tugi aftur í tíma, undir lok Kalda stríðs­ins.

Rekja má sög­una aftur til nóv­em­ber árið 1977. Þá var Megumi Yokata, japönsk 13 ára stúlka, á leið heim úr skóla í hafn­ar­borg­inni Niigata. Hún gekk með vin­konu sinni hluta úr leið og í námunda við afgirtan leik­völl kvödd­ust þær. Það var í síð­asta skipti sem Megumi sást það kvöldið. Móðir hennar Sakie og bræður hennar tveir leit­uðu fram á nótt. Hvarf hennar var til­kynnt og lög­reglan leit­aði hennar í margar vikur en án árang­urs. Vikurnar urðu að árum og árin að ára­tugum.

Tuttugu árum síðar bank­aði jap­anskur blaða­maður upp á hjá for­eldrum Megumi. Hann tjáði þeim að dóttur þeirra hefði verið rænt af Norður kóreskum leyni­þjón­ustu­mönnum. Þeir fóru með hana í bát og sigldu til Norður Kóreu. Sagan segir að Megumi hafi streist svo mjög á móti að hún hafi verið alblóðug þegar á áfanga­stað var komið. Hún klór­aði í skips­skrokk­inn alla leið­ina.

Örlög í það minnsta sautján jap­anskra rík­is­borg­ara á árunum 1977 til 1983 voru svipuð. Aðferðir Norður kóresku leyni­þjón­ust­unnar voru ein­faldar og illsk­eittar. Dulbúið fiski­skip sigldi upp að ströndum Japan. Kafarar fóru í land og gripu fórn­ar­lömbin, stundum af handa­hófi, og gúmbátur frá skip­inu kom snöggt að til að sækja flokk­inn. Gísl­arnir voru yfir­leitt sendir í njósn­a­skóla í Norður Kóreu til að kenna japönsku eða látnir gift­ast japönskum komm­ún­istum sem höfðu gengið Norður kóreskum stjórn­völdum á hönd. Vit­neskjan um japönsku gísl­anna var óstað­fest þar til Kim Hyon-hui var tekin höndum.

Dramatískar kringumstæður

Kring­um­stæður hand­töku hinnar kóresku Kim voru ekki síður dramat­ísk­ari en hvarf Megumi Yokata. Þann 29. nóv­em­ber árið 1987 var Boeing 707 vél Suður kóreska flug­fé­lags­ins Korean Air í löngu áætlund­ar­flugi með við­komu í Baghdad, Abu Dhabi, Bangkok og heim aftur til Seúl. Kim Hyon-hui var 25 ára gömul þegar hún gekk um borð í vél­ina í Baghdad ásamt sam­starfs­manni sínum. Þau voru voru með fölsuð japönsk vega­bréf og þótt­ust vera feðgin á ferða­lagi. Sprengju sem falin var í Panasonic útvarps­tæki kom hún fyrir yfir sætum 7C og 7B. Þau gengu síðan frá borði þegar vélin milli­lenti í Abu Dhabi. 104 far­þegar og ell­efu manna áhöfn voru um borð þegar vélin sprakk í loft upp skammt vestan af Tælandi.

Til­gang­ur­inn með því að granda flug­vél­inni hefur aldrei verið ljós. Helsta kenn­ingin er sú að með ódæð­inu hafi Norður kóresk stjórn­völd viljað valda skelf­ingu í aðdrag­anda Ólymp­íu­leik­ana í Seúl 1988 og letja erlend ríki til þátt­töku.

Strax í kjöl­far flug­skað­ans hófst æsi­legur elt­inga­leikur. Norður kóresku njósn­ar­arnir ætl­uðu fyrst til Amman í Jórdaníu en vega­bréfs­á­rit­anir voru ófull­nægj­andi. Þau flugu því til smá­rík­is­ins Bahrein þar sem þau biðu í tvo daga eftir næsta flugi. Japönsk stjórn­völd stað­festu að einu japönsku far­þeg­arnir í flug­inu örlaga­ríka voru með fölsuð japönsk vega­bréf. Við inn­ritun í flug á í Bahrein fund­ust vega­bréfin og þau voru tekin höndum.

Þegar yfir­heyrslur hófust vissu Kim og sam­sær­is­maður hennar að hand­taka þeirra myndi bendla Norður kóresk stjór­völd við málið. Þau áttu sér enga und­an­komu­leið og báðu um leyfi til að reykja sígar­ettu. Þau bitu í filt­er­inn þar sem blá­sýru­hylki voru falin. Hann dó en í Bahrein tókst að bjarga lífi hennar.

Fyrirmælin komu frá Kim Jong-il

Eftir það var Kim fram­seld til Suður Kóreu. Það tók átta daga til að vinda ofan af dul­ar­gervi hennar en hún hélt fast í það að vera jap­anskur ferða­maður. Eftir að hafa séð dag­legt líf Suður Kóreubúa og þá auð­legð sem þeir bjuggu við byrj­aði hún smátt og smátt að átta sig á því að áróð­ur­inn um að þeir væru van­sælar strengja­brúður Banda­ríkj­anna væri ekki á rökum reistur. Þegar hún leysti frá skjóð­unni teygðu upp­ljóstr­anir hennar sig lengra en nokkurn óraði fyrir.

Samkvæmt Kim komu fyr­ir­mælin um að sprengja flug­vél­ina frá sjálfum for­seta Norður Kóreu, Kim Jong-il. Í kjöl­farið settu banda­rísk stjórn­völd Norður Kóreu á lista yfir ríki sem styðja hryðju­verk.

En upp­ljóstrun hennar sem hefur ef til vill haft hvað mest langvar­andi áhrif hafði með Japani sem hún kynnt­ist í Norður Kóreu að gera. Þegar henni var sýnd ljós­mynd af Yaeko Taguchi, einstræðri tveggja barna móður sem hvarf í Tókýó árið 1978, þá sagði hún óvænt: „kenn­ar­inn minn.“

Í ljós kom að Kim hafði lært japönsku af Yaeko á sex ára tíma­bili áður en hún grand­aði flug­vél­inni. Yaeko hafði verið rænt af Norður kóreskum leyni­þjón­ustu­mönnum árið eftir að hin þrettán ára gamla Megumi Yokata hvarf. Kim á að hafa borið vitni um það að enn hafi Yaeko sungið börnum sínum tveim í Japan vöggu­vísur þó svo hún væri óra­fjarri þeim eftir að henni var rænt og flutt til Norður Kóreu.

Af heim­ildum um málið er ljóst að orð Kim Hyon-hui eru lík­lega fyrsti óyggj­andi vitn­is­burð­ur­inn um líf Yaeko Taguchi og Megumi Yokata í Norður Kóreu og mann­rán Norður kóreskra stjórn­valda í Japan.

Dæmd til dauða

Kim Hyon-hui var dæmd til dauða í Suður Kóreu fyrir aðild sína að flug­skað­anum. En fyrrum for­seti Suður Kóreu náð­aði hana með þeim orðum að líkt og far­þeg­arnir væri hún fórn­ar­lamb áróð­urs Norður kóreskra stjórn­valda. Hún gift­ist Suður kóreskum leyni­þjón­ustu­manni, eign­að­ist tvö börn og býr nú í felum þar í landi af ótta við hefnd­ar­að­gerðir Norður Kóreu. Í heim­sókn til Japan hitti hún eft­ir­lif­andi ætt­ingja Megumi Yokata og Yaeko Taguchi.

Árið 2002 kom fyrrum for­seti Norður Kóreu, Kim Jong-il, öllum á óvart þegar hann stað­festi við þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra Japans, Junichiro Koizumi, að ríki sitt hefði í raun rænt 13 japönskum rík­is­borg­urum. Samkvæmt Norður kóreskum stjórn­völdum voru fimm enn á lífi og var þeim síðar leyft að snúa aftur til Japan. Átta voru látnir, þar á meðal Megumi og Yaeko. Örlög hinna átta frá­föllnu og í það minnst fjög­urra ann­arra eru þrætu­epli sem er alltaf til umræðu á þrí­hliða leið­toga­fundi Japan, Kína og Suður Kóreu.

Núver­andi for­sæt­is­ráð­herra Japans, Shinzo Abe, hefur sett upp­gjör mann­rána Norður Kóreu­stjórnar á japönskum rík­is­borg­urum í for­gang á meðal stefnu­mála sinna. Hann hefur skipað ráð­herra­nefnd um málið og jafn­vel gengið svo langt að gera upp­gjörið að óhagg­an­legu skil­yrði fyrir frekara sam­starfi milli ríkj­anna. Sú afstaða mun ekki að öllum lík­indum ekki breyt­ast nema fyrir þrýst­ing ann­arra ríkja sem eiga hlut að máli.

Kim Hyon-hui olli eitt sinn dauða 115 manns, mest­megnis Suður kóreskra flug­far­þega, en varp­aði einnig ljósi á mann­rán fjölda jap­anskra rík­is­borg­ara. Báðir atburð­irnir voru að und­ir­lagi Norður Kóreu. Hún hefur síðan þá til­einkað líf sitt því að bæta fyrir skað­ann sem hún olli fjöl­skyldum þeirra sem misstu ást­vini sínu af hennar völdum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár