Björgólfur Thor segir Róbert Wessman hafa komið auð sínum undan og noti hann til að klekkja á sér

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son segir Róbert Wessman og Árna Harð­ar­son ekki hika við að leggja í tug­millj­óna króna kostnað til að reyna að klekkja á sér. „Róbert hefur í digra sjóði að sækja, enda gætti hann þess vand­lega að koma auð sínum undan kröfu­höfum, í stað þess að gera upp millj­arða skuldir sínar við íslensku bank­ana eftir hrun. Auðvitað gera þeir sér engar vonir um bætur úr minni hendi, enda eina mark­miðið að sverta mann­orð mitt.“ Þetta kemur fram í nýrri færslu á blogg­síðu Björg­ólfs Thors, www.btb.is,

Kjarninn greindi frá því á mið­viku­dag að félag í eigu Árna Harð­ar­sonar, stjórn­ar­manns og lög­manns lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Alvogen, ætti um 60 pró­sent þeirra hluta­bréfa sem eru að baki hóp­mál­sókn sem nú er rekin gegn Björgólfi. Árni á hluta­bréfin, sem hann hefur keypt af islenskum líf­eyr­is­sjóðum nýverið, í gegnum félag sem heitir Urriða­hæð ehf. Samtals hefur Árni greitt á milli 25 til 30 millj­ónir króna fyrir hluta­bréfin, sem eru verð­laus nema að til tak­ist að fá við­ur­kennt fyrir dóm­stólum að Björgólfur Thor eigi að greiða fyrrum hlut­höfum Lands­bank­ans skaða­bætur. Til við­bótar þarf Urriðhæð að greiða sinn hluta máls­kostn­aðar. Hann gæti hlaupið á tugum millj­óna króna.

Árni er nán­asti sam­starfs­maður Róberts Wessmans. Þeir störf­uðu áður báðir hjá Actavis, á meðan að Björgólfur Thor var aðal­eig­andi þess fyr­ir­tækis. Síðan að Árni og Róbert hættu störfum hjá Actavis árið 2008 hefur andað veru­lega köldu milli þeirra og Björg­ólfs Thors. Hann hefur meðal ann­ars stefnt þeim til greiðslu skaða­bóta fyrir mein­tan fjár­drátt auk þess sem báðir aðilar hafa ítrekað atyrt hinn á opin­berum vett­vangi á und­an­förnum árum.

Einstakt mál

Björgólfur Thor fer hörðum orðum um Árna og Róbert í færsl­unni sem hann setti inn á blogg­síðu sína í dag. Þar segir hann meðal ann­ars að fingraför þeirra hafi verið á mál­inu frá upp­hafi. Hann gagn­rýnir svo lög­menn­ina sem að mál­inu hafa komið, þing­mann­inn Vilhjálm Bjarna­son, RÚV og líf­eyr­is­sjóði lands­ins fyrir þeirra aðkomu að því.

Hóp­mál­sóknin gegn Björgólfi Thor var þing­fest í vik­unni. Máls­höfð­unin er sú fyrsta sinnar teg­undar á Íslandi er lýtur að dóms­málum sem tengj­ast banka­hrun­inu. Aldrei áður hafa fyrrum hlut­hafar í íslenskum banka tekið sig saman og stefnt fyrrum aðal­eig­anda hans fyrir að hafa blekkt sig með sak­næmum hætti til að eiga í bank­anum. Og krefj­ast skaða­bóta fyrir. Björgólfur Thor hefur ávallt neitað sök og sagt máls­höfð­un­ina vera gróðra­brall lög­manna sem að henni starfa.

Kjarninn hefur stefn­una í mál­inu, sem er 50 blað­síður að lengd, undir höndum. Hana má lesa hér.

Alls taka 235 aðilar þátt í mál­sókn­inni. Þeir eiga sam­tals 5,67 pró­sent af heild­ar­hlutafé í Lands­bank­ans, sem féll haustið 2008.

Krefjast að skaðabótaskylda verði viðurkennd

Mál­sókn­ar­fé­lagið krefst þess að skaða­bóta­skylda Björg­ólfs Thors á því tjóni sem aðilar að félag­inu urðu fyrir þegar hluta­bréf í Lands­bank­anum urðu verð­laus við fall hans 7. októ­ber 2008. Í stefn­unni kemur fram að félags­menn byggi mál­sókn­ina á því „að þeir hefðu ekki verið hlut­hafar í Lands­banka Íslands hf. og þar með ekki orðið fyrir tjóni, ef ekki hafði komið til hinnar sak­næmu og ólög­mætu hátt­semi stefnda [Björg­ólfs Thors]“.

Það sem mál­sókn­ar­fé­lagið telur að Björgólfur Thor hafi gert, og hafi ollið þeim skaða, er þrennt. Í fyrsta lagi hafi ekki verið veittar upp­lýs­ingar um lán­veit­ingar Lands­banka Íslands til Björg­ólfs Thors og tengdra aðila í árs­reikn­ingum bank­ans fyrir rekstr­ar­árið 2005 og í öllum upp­gjörum eftir það fram að hruni.

Í öðru lagi hafi Björgólfur Thor van­rækt á tíma­bil­inu 30. júní 2006 til 7. októ­ber 2008, að „upp­lýsa opin­ber­lega um að Samson eign­ar­halds­fé­lag ehf. [Í aðal­eigu Björg­ólfs Thors og föður hans] færi með yfir­ráð yfir Lands­banka Íslands hf., og teld­ist því móð­ur­fé­lag bank­ans“.

Í þriðja lagi telur félagið að Björgólfur Thor hafi van­rækt að „sjá til þess að Samson eign­ar­halds­fé­lag ehf. gerði öðrum hlut­höfum Lands­banka Íslands hf. yfir­tökutil­boð hinn 30. júní 2006, eða síðar, í sam­ræmi við ákvæði laga um verð­bréfa­við­skipti“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár