Vigdís og Guðlaugur Þór segja forsvarsmenn RÚV hafa vísvitandi blekkt fjárlagavaldið

Magnús Geir Þórð­ar­son segir það af og frá. Skil­yrðum sem fjár­la­nefnd setti fyrir auka­fjár­veit­ingu hafi verið náð.

Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar og þing­maður Fram­sókna­flokks­ins, og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, vara­for­maður nefnd­ar­innar og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, telja að stjórn­endur Rík­is­út­varps­ins (RÚV) hafi vís­vit­andi blekkt fjár­veit­ing­ar­valdið með því að gefa þeim rangar upp­lýs­ingar um stöðu stofn­un­ar­innar. Tíma­bundin fjár­heim­ild að upp­hæð 182 millj­ónum króna hafi verið lögð til RÚV en hún hafi verið háð þeim skil­yrðum að á vegnum stjórnar félags­ins myndi fara fram end­ur­skipu­lagn­ing og að hún myndi gera áætlun um sjálf­bæran rekstur. Þær áætl­anir áttu að liggja fyrir í lok mars. Vigdís og Guð­laugur Þór telja að þessum skil­yrðum hafi alls ekki verið fram­fylgt. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu. Þar segir Vigdís að þeir „sem fara með mál­efni RÚV verða að svar því hver axli þá ábyrgð“. Hún telur að Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra verði að svara því hvernig það sé gert. „Ég lít þetta mjög alvar­legum augum að rangar upp­lýs­ingar séu lagðar fyrir nefnd sem hefur eft­ir­lit með fjár­reiðum rík­is­ins“.

Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri hafnar því að for­svars­menn RÚV hafi blekkt fjár­laga­nefnd. Í vinnu sem farið hefði fram með aðilum frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti hafi komið fram að skil­yrðum fjár­laga­nefndar hefði verið náð.

Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Illugi vill að útvarpsgjaldið verði ekki lækkað

Í skýrslu nefndar sem Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra skip­aði 7. maí síð­ast­lið­inn til að greina þróun á starf­semi RÚV ohf. frá stofnun, þann 1. apríl 2007, og kom út í gær var rekstur fyr­ir­tæk­is­ins harð­lega gagn­rýndur. Þar sagði meðal ann­ars að rekstur RÚV hafi verið sjálf­bær frá því að fyr­ir­tækið var gert að opin­beru hluta­fé­lagi árið 2007. Alls nemur tap umfram hagnað 813 millj­ónum króna á því tíma­bili, og er þar gert ráð fyrir þeim tekjum sem RÚV hefur af útvarps­gjaldi sem lands­mönnum er skylt að greiða. Samt sem áður gera áætl­anir RÚV, sem fyr­ir­tækið vinnur eftir, ráð fyrir því að það fái hærra útvarps­gjald en gert er ráð fyrir í fjár­laga­frum­varpi árs­ins, að 3,2 millj­arða króna lán vegna líf­eyr­is­skuld­bind­inga hverfi úr efna­hag RÚV og að sala á bygg­inga­rétti á lóð fyr­ir­tæk­is­ins gangi eftir. Gangi allar þessar for­sendur ekki eftir er rekstur RÚV eins og fyr­ir­tækið er rekið í dag ósjálf­bær.

Útvarps­gjaldið sem rennur að mestu til RÚV var lækkað um síð­ustu ára­mót, úr 19.400 krónum í 17.800 krónum. Um næstu ára­mót á að lækka það aftur í 16.400 krónur. Í Frétta­blað­inu í dag er haft eftir Illuga að hann ætli að leggja það til að útvarps­gjaldið muni ekki lækka um kom­andi ára­mót. Engin ákvörðun hefur hins vegar verið tekin um hvort ríkið yfir­taki líf­eyr­is­skuld­bind­ing­arnar sem fylgdu RÚV þegar fyr­ir­tækið var gert að opin­beru hluta­fé­lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár