Þegar Íslendingar voru sterkastir í heimi

Krafta­jötnar voru um tíma meðal vin­sæl­ustu íþrótta­manna lands­ins. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur skoð­aði merki­lega sögu íslenskra afl­rauna­manna.

Það kann að koma ungu fólki spánskt fyrir sjónir að Íslend­ingar hafi hóp­ast fyrir framan sjón­varpið til þess að horfa á krafta­jötna draga vöru­bíla og kasta tré­drumbum yfir slá. Þetta var þó hluti af sjálfs­mynd Íslend­inga á níunda og tíunda ára­tug sein­ustu aldar. Þegar íslenskir afl­rauna­menn voru þeir allra sterk­ustu í heim­inum.

Skúli setur tóninn

Aust­firð­ing­ur­inn Skúli Ósk­ars­son er senni­lega mik­il­væg­asti kepp­and­inn í íslensku krafta­sporti frá upp­hafi. Skúli hóf að æfa lyft­ingar seint á sjö­unda ára­tugnum og keppti í sínu fyrsta móti árið 1970. Honum gekk vel og setti hvert Íslands­metið á fætur öðru næstu árin. Hann keppti einnig á alþjóð­legum lyft­inga­mótum og náði t.a.m. silfri í létt­vigt­ar­flokki á heims­meist­ara­mót­inu árið 1978 í Turku í Finn­landi. Það ár var hann verð­laun­aður titl­inum íþrótta­maður árs­ins hér heima, fyrstur allra lyft­inga­manna. Tveimur árum seinna setti hann heims­met í rétt­stöðu­lyftu þegar hann lyfti 315,15 kíló­grömmum. Þetta var fyrsta heims­met sem nokkur Íslend­ingur setti í almennt við­ur­kenndri íþrótt.

Það ár var hann aftur val­inn íþrótta­maður árs­ins. Skúli náði aldrei að vinna heims­meist­ara­titil en auk silf­urs­ins vann hann tvö brons­verð­laun á HM, þrjá Norð­ur­landa­meist­aratitla og fjöl­marga titla inn­an­lands. Skúla verður þó senni­lega ekki minnst fyrir öll lyft­inga­afrekin sem hann áork­aði heldur vegna per­sónu­leik­ans. Skúli var og er einn hress­asti og skemmti­leg­asti íþrótta­maður sem Íslend­ingar hafa átt.

Hann öskr­aði og kall­aði til áhorf­enda á mótum með alls kyns hnyttni og hann grín­að­ist mikið í við­tölum. Jafn­framt kom hann alltaf fram af miklu æðru­leysi og bar alltaf virð­ingu fyrir mótherjum sínum en á þessum tíma voru engir pen­ingar í íþrótt­inni og Skúli borg­aði mest allt undir sig sjálfur. Hann var í miklum metum hjá fjöl­miðla­mönnum á borð við Ómari Ragn­ars­syni og Hermanni Gunn­ars­syni og varð stjarna hér á landi. Laddi samdi meira að segja um hann lag. Skúli lað­aði marga að íþrótt­inni og hratt af stað hinni íslensku krafta­bylt­ingu.

Sterkastir í heimi

Eftir að Skúli kom Íslandi á kortið í heimi lyft­ing­anna náðu Íslend­ingar prýð­is­góðum árangri á alþjóð­legum mótum. Kári „köttur” Elísson vann silfur í flugu­vigt á heims­meist­ara­móti árið 1985 og Guðni Sig­ur­jóns­son varð fyrsti íslenski heims­meist­ar­inn þegar hann sigr­aði í þunga­vigt árið 1991. Það var þó ekki í kraft­lyft­ingum sem Íslend­ingar náðu mark­verð­asta árangrinum. Árið 1977 var keppn­inni Sterkasti maður heims komið á fót­inn, alhliða afl­rauna­keppni þar sem menn úr öllum þyngd­ar­flokkum kepptu um einn titil. Keppt var í ýmsum greinum eins og t.d. trukka­drátti, reipi­togi og lóða­kasti. Keppnin var í upp­hafi hálf­gerð brella sem var gerð fyrir amer­ískt sjón­varp og fáir tóku eftir. En á níunda ára­tugnum varð keppnin alþjóð­leg og þá komu íslenskir kepp­endur til leiks.

Jón Páll Sig­mars­son hafði unnið fjöl­marga titla í kraft­lyf­ingum þegar hann tók í fyrsta skipti þátt í keppn­inni árið 1983 í Nýja Sjálandi. Þar hlaut hann silfur en ári seinna vann hann keppn­ina og var krýndur sterkasti maður heims. Jón Páll vann alls fjóra titla í keppn­inni og aldrei lenti hann neðar en í þriðja sæti.

Jón Páll var einn ást­sæl­asti íþrótta­maður Íslands fyrr og síðar. Rétt eins og Skúli þá átti hann frá­bært sam­band við bæði áhorf­endur og fjöl­miðla­menn. Hann tók sig ekki of alvar­lega og gleðin skein af honum. Árið 1991 meidd­ist Jón Páll og Magnús Ver Magn­ús­son tók sæti hans á mót­inu. Magnús var hæg­lát­ari og menn bjugg­ust ekki við jafn miklu af honum og Jóni Páli. Hann sann­aði þó hvers hann var megn­ugur og sigr­aði á sínu fyrsta móti. Árið 1996 hafði hann unnið fjóra titla og þar með jafnað árangur Jóns Páls.

Á árunum 1983 til 1996 má segja að Íslend­ingar hafi haft algera yfir­burði á mót­inu. Algjört æði greip um sig hér á landi og Íslend­ingar voru farnir að tala um sig sem sterk­ustu þjóð heims. Keppnin fékk mikið áhorf í sjón­varpi og árið 1992 var hún meira að segja haldin hér á landi.

Íslendingar missa takið

Eftir að Magnús Ver vann sinn sein­asta titil árið 1996 dofn­aði áhugi þjóð­ar­innar hægt og bít­andi á íþrótt­inni. Torfi „loð­fíll” Ólafsson sem keppti á árunum 1997 til 1999 náði ágætum árangri en meiðsli höml­uðu honum. Íslend­ingar áttu ekki kepp­anda í loka­keppni Sterkasta manns heims árið 2000, í fyrsta skipti síðan árið 1982. Reyndar áttu Íslend­ingar ekki kepp­anda í loka­keppn­inni næsta ára­tug­inn. Innkoma kepp­enda frá Austur-Evrópu, þar sem lyft­inga-og kast­í­þrótta­hefðin er mjög sterk, hefur raskað valda­jafn­væg­inu. Austur-Evr­ópu­menn hafa unnið 10 af sein­ustu 14 keppnum, þar af hefur Pól­verj­inn Mariusz Pudzianowski unnið fimm sinnum og þar með tekið fram úr Jóni Páli og Magnúsi Ver.

Fæstir Íslend­ingar hafa þó heyrt minnst á hann því að athygli þjóð­ar­innar er farin annað. Íslend­ingar fóru nefni­lega að verða bísna góðir í íþróttum almennt. Knatt­spyrnu­liðin fóru allt í einu að vinna leiki og hafa tryggt sér sæti á Evr­ópu­meist­ara­móti, stelp­urnar tvisvar. Strák­arnir okkar í hand­boltalands­lið­inu hafa tekið tvær medal­íur á stór­mótum. Meira að segja körfuknatt­leiksliðið hefur spilað á Evr­ópu­meist­ara­móti. Þeir sem fylgj­ast með jað­ar­sporti hampa cross-fit stjörnum okkar, ekki síst Annie Mist Þór­is­dóttur, og bar­daga­kapp­anum Gunnari Nelson. Cross-fit og MMA eru einmitt dæmi um nýjar og spenn­andi íþróttir sem krafta­keppnir eiga erfitt með að keppa við. Krafta­keppnir eru hrein­lega orðnar gam­al­dags.

Fjallið

Einn maður skarar fram úr í krafta­sporti á Íslandi í dag. Hafþór Júlíus Björns­son varð heims­frægur fyrir það að leika Sandor Clegane, eða „Fjallið”, í sjón­varps­þátt­unum Game of Thrones og hefur það við­ur­nefni fest sig við hann. Hafþór hóf að keppa í krafta­sporti árið 2009 aðeins 21 árs gam­all. Hann er 205 cm á hæð, mun hærri en flestir mótherjar hans og hefur mest verið um 200 kíló að þyngd.

Vegna hreinna lík­am­lega yfir­burða hefur Hafþór ekki haft neina sam­keppni að ráði á Íslandi und­an­farin ár. Hann hefur unnið keppn­ina Sterkasti maður Íslands sein­ustu fimm ár og tvö sein­ustu ár hefur hann unnið kepp­ina Sterkasti maður Evrópu. Hann hefur tekið þátt í Sterkasta manni heims á hverju ári síðan 2011 en aldrei unnið. Þrisvar hefur hann náð þriðja sæt­inu og árið 2014 end­aði hann í öðru sæti, ein­ungis hálfu stigi frá sigri. Milli þess að hann klýfur menn í herðar niður í sjón­varp­inu þá keppir hann allan árs­ins hring í afl­rauna­mótum víðs vegar um heim­inn.

Hann er aðeins 26 ára gam­all og á vafa­laust eftir að landa stóra titl­inum á kom­andi árum. Hvort slíkur sigur myndi duga til að vekja Íslend­inga úr rot­inu verður að koma í ljós. Það er þó ljóst að jarð­veg­ur­inn hér er frjór í krafta­sporti. Lyft­ingar, vaxt­ar­rækt, cross-fit og fleira nýtur töl­verðra vin­sælda og mýtan um Ísland sem sterk­ustu þjóð heims dvelur í und­ir­með­vit­und­inni. Það yrði jákvætt ef keppnin Sterkasti maður heims yrði aftur jafn vin­sæl og hún var því hún reynd­ist okkur nefni­lega vel. Hún sýndi okkur í fyrsta skipti að við gætum keppt í íþróttum við aðrar þjóðir…..og unnið. Hafþór, komdu með tit­il­inn heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár