Útblástur skemmtiferðaskipa rýkur upp

Skemmti­ferða­skip á suð­vest­ur­horn­inu los­uðu 50 pró­sent meira af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum í fyrra en árið 2016. Losunin er meiri en hjá fiski­skipum við hafn­irnar.

Útblástur skemmtiferðaskipa rýkur upp
Skemmti­ferða­skip Útblástur skip­anna við hafnir Faxaflóa var meiri en fiski­skipa á svæð­inu. Mynd: Shutterstock

Skemmti­ferða­skip eru ábyrg fyrir um þriðj­ungi los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda allra skipa sem fara um Faxa­flóa­hafnir. Útblástur þeirra nemur um 60 pró­sent af því sem inn­an­lands­flug á Íslandi losar á hverju ári.

Þetta kemur fram í svari Faxa­flóa­hafna við fyr­ir­spurn Vigdísar Hauks­dóttur, borg­ar­full­trúa Mið­flokks­ins. Áætlað er að um 194 skemmti­ferða­skip komi til Reykja­víkur í ár og með þeim 183 þús­und far­þegar. Er búist við aukn­ingu far­þega á næsta ári.

Faxa­flóa­hafnir hafa frá árinu 2016 látið vinna útstreym­is­bók­hald vegna skipa sem koma til hafnar á hafn­ar­svæðum fyr­ir­tæk­is­ins. Reiknað er út hver útblástur skip­anna er í sigl­ingu til og frá höfn og í við­legu. Í bók­hald­inu kemur fram að losun skemmti­ferða­skipa hafi verið um 14.300 tonn á síð­asta ári. Hefur los­unin auk­ist um 50 pró­sent frá árinu 2016. Til sam­an­burðar er losun allra fiski­skipa við hafnir Faxaflóa aðeins 10.200 tonn og losun alls inn­an­lands­flugs á Íslandi mæld­ist 23.000 tonn árið 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár