Hillary Clinton hafði Bernie Sanders undir

Hillary Rodham Clinton, vin­sæl­asti for­seta­fram­bjóð­andi Demókra­ta­flokks­ins í Banda­ríkj­unum sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum, þótti standa sig best fram­bjóð­enda í fyrstu kapp­ræðnum milli for­seta­efna flokks­ins í gær. Fimm fram­bjóð­endur voru á sviði CNN sjón­varps­stöðv­ar­innar og beind­ist athyglin einkum að Clinton og vinstri mann­inum Bernie Sanders, sem hefur víða mælst með mikið fylgi í skoð­ana­könn­unum.

Fréttir banda­rískra fjöl­miðla um kapp­ræður gær­kvölds­ins hafa sömu sögu að segja: Clinton stóð sig best fram­bjóð­enda og náði að koma höggi á helsta keppi­naut sinn, Sanders. Frétta­mið­ill­inn Vox segir að Clinton hafi þaggað niður gagn­rýn­is­raddir og hafi sýnt þá hlið sem stuðn­ings­menn biðu eftir. Frétta­mið­ill­inn Quartz segir Hillary hafa sigrað keppi­nauta sína auð­veld­lega og spyr í umfjöllun sinni hvort Sanders vilji raun­veru­lega bjóða sig fram fyrir Demókrata eða hvort hann vilji ein­fald­lega koma stefnu­málum sínum á fram­færi. Þá skrifar Nate Silver, rit­stjóri frétta­síð­unnar FiveT­hir­tyEight, að fjöl­miðlar hafi van­metið kosn­inga­bar­áttu Clinton til þessa. Honum þykir þá að frammi­staða hennar í gær sé öllu ofmetin. Frétta­skýrendur FiveT­hir­tyEight gáfu Clinton engu að síður ein­kunn­ina A- fyrir frammi­stöðu sína í gær en Bernie Sanders fékk B. Aðrir, þ.e. Martin O'Malley, Jim Webb og Lincoln Chafee, þóttu standa sig mun verr.

Í umfjöllun New York Times um kapp­ræð­urnar segir að Clinton hafi með ágengum hætti velt upp spurn­ingum um gildi Sanders, skoð­anir hans og afstöðu sem þing­maður. Hún sak­aði hann meðal ann­ars um veika stefnu í málum er varða byssu­lög­gjöf Banda­ríkj­anna. Árið 2005 kaus Sanders með frum­varpi sem veitti byssu­fram­leið­endum frið­helgi fyrir lög­sóknum gegn fórn­ar­lömbum skotárása. Sér til varnar sagði Sanders málið hafa verið flókn­ara en svo.

Sanders seg­ist vera demókrat­ískur sós­í­alisti, hann er á vinstri væng banda­ríska stjórn­mála­rófs­ins og talar fyrir sterku vel­ferð­ar­kerfi, háum sköttum og að komið verði í veg fyrir auð­söfnun. Sanders hefur í þessum efnum mært nor­rænna mód­elið og minnt­ist í gær sér­stak­lega á það hvernig málum er háttað í Danmörku og Svíþjóð. Þegar rætt var um kap­ít­al­isma og sós­í­al­isma í kapp­ræð­unum í gær sagði Clinton: „En veistu hvað? Við erum ekki Danmörk. Ég elska Danmörku. Við erum Banda­ríki Norður-Ameríku.“ Brotið má sjá hér að neðan.


Here's a wrap-up of the #Dem­Debate — in gifs and Vines http://t.co/RTRf7q76wy via @caseycapachi https://t.co/Vi7H7gFIWY


— CNN Politics (@CNNPolitics) October 14, 2015

Kominn með nóg af tölvupóstsmálinu

Það mál sem helst hefur reynst Clinton erfitt í kosn­inga­bar­átt­unni til þessa er hið svo­kall­aða „tölvu­póst­s­mál“ en upp komst að hún not­aði einka­net­fang sitt þegar hún var inn­an­rík­is­ráð­herra á árunum 2009 til 2013. Málið hefur fengið mikla athygli í fjöl­miðlum og póli­tískir and­stæð­ingar hafa nýtt sér það óspart. Þegar spurt var um tölvu­póstana í gær fór þó Sanders aðra leið en ýmsir aðrir hefðu gert og sagði kjós­endur komna með nóg af mál­inu. Meira lægi á að ræða mik­il­væg mál­efni eins og fátækt og ójöfnuð.



Bernie Sanders: "Enough of the emails!"Bernie Sanders just said what we were all think­ing about Hillary Clinton's email controversy. #Dem­Debate

Posted by Quartz on Tuesday, 13 October 2015

Hér að neðan má sjá nokkrar færslur af sam­fé­lags­miðl­unum sem birt­ust á meðan kapp­ræð­urnar stóðu yfir í gær­kvöldi.


What happ­ens in Vegas...is I watch @HillaryClinton prove she's the most qualified candidate for POTUS. #ImWithHer pic.twitter.com/ax1d56Whwt


— Bill Clinton (@billclinton) October 14, 2015
Sorry, there is no STAR on the stage ton­ight! — Donald J. Trump (@realDonaldTrump) October 14, 2015


Let's do this. #Dem­Debate pic.twitter.com/y31OQXaa9b


— Hillary Clinton (@HillaryClinton) October 14, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár