Af minnismerkjum, „ný-stalínisma” og eftirhermum á Rauða torginu

Rússnesk stjórn­völd kynntu á dög­unum drög að stefnu um ákveðið upp­gjör við hina myrku og blóði drifnu stjórn­ar­tíð Jósefs Stalíns. Stefna stjórn­valda er í grund­vall­ar­at­riðum tví­skipt. Annars vegar miðar hún að því að berj­ast gegn rétt­læt­ingu á harð­ræð­inu, kúg­un­inni og glæp­unum sem áttu sér stað á tæpum þremur ára­tugum undir stjórn Stalíns. Svo hins vegar á að heiðra minn­ingu þeirra sem lét­ust í „póli­tískum hreins­unum” harð­stjór­ans en fræði­menn telja að rekja megi dauða 15 til 20 milljón manns til þeirra. Á meðal til­greindra mark­miða stefnu stjórn­valda er að skrá sögu og opna söfn til minn­ingar um fórn­ar­lömb ógn­ar­stjórn­ar­innar. Þá verður nýr minn­is­varði, sem ber heitið „Veggur sorg­ar­innar”, form­lega afhjúp­aður í Moskvu í lok októ­ber.

Þessi “nýja” stefna þykir reyndar fremur óvænt skref hjá núver­andi stjórn­völdum, sem hafa fram til þessa ekki viljað horfast í augu við for­tíð­ina með þessum hætti. Stefnan kemur hins vegar í kjöl­farið á fregnum þess efnis að þrjár styttur af Stalín hafi verið reistar und­an­farna mán­uði í borg­unum Lipetsk, Penza og Vladimir, í Rúss­landi. Komm­ún­ista­flokkur Rúss­lands (KPRF), stærsti flokkur stjórn­ar­and­stöð­unnar, sá til þess að stytt­urnar yrðu reistar en flokk­ur­inn hefur allt frá stofnun sinni árið 1993 lagt mikla áherslu á að Stalíns sé minnst sem mik­ils leið­toga og föð­ur­lands­vinar.

[caption id="attachment_41046" align="alignnone" width="437"] Stytta af Stalín í Muzeon-garð­inum í Moskvu. Stytt­urnar í garð­inum eru í mis­jöfnu
ásig­komu­lagi en eiga það flestar sam­eig­in­legt að hafa „fallið" af stalli sínum, af ein­hverjum ástæðum. Mynd: Ómar.[/caption]

Það er reyndar margt sem bendir til þess að „ný-stalín­ismi” sé alltaf að verða meira og meira áber­andi í Rúss­landi og það skýrir ef til vill að ein­hverju leyti þetta útspil stjórn­valda. Það er samt óneit­an­lega öskr­andi þver­sögn falin í því að láta byggja minn­is­varða um þján­ingar fórn­ar­lamba ógn­ar­stjórnar - á sama tíma og styttum er leyft að rísa til heið­urs helsta kval­ara þeirra, Jósef Stalín. Ágrein­ingur Rússa um arf­leifð Stalíns er þó alls ekki nýr af nál­inni.

Grafreitur hinna föllnu minnismerkja


Eftir lát Stalíns árið 1953 var hann í fyrstu hylltur sem hetja og lík hans var til sýnis í graf­hýsi, við hlið lík Vla­dimírs Lenín. Hetju­ljóm­inn dvín­aði þó fljótt og í frægri “leyniræðu” á tuttug­asta lands­þingi sov­éska komm­ún­ista­flokks­ins gerði Nikíta Krútsjov, eft­ir­maður Stalíns sem leið­togi Sov­ét­ríkj­anna, harða atlögu að stjórn­ar­tíð hans. Á meðal aðgerða sem Krútsjov boð­aði í kjöl­farið voru að breyta nafni borg­ar­innar Stalín­grad í Vol­gograd, láta eyði­leggja styttur af Stalín og fjar­lægja lík hans úr graf­hýs­inu á Rauða torg­inu í Moskvu. Leoníd Brésnev, Mikhaíl Gor­batsjev og Boris Jeltsín voru síðar einnig háværir í gagn­rýni sinni á verkn­aði í stjórn­ar­tíð Stalíns.

Við fall Sov­ét­ríkj­anna árið 1991 létu svo almennir borg­arar í ljós reiði sína með því eyði­leggja styttur af Stalín og öðrum fyrrum leið­togum Sov­ét­ríkj­anna. Skemmd­ar­verkin voru tákn­ræn á margan hátt þar sem þau end­ur­spegl­uðu á sama tíma sam­fé­lag í molum og ský­lausa kröfu almenn­ings um breyt­ingar og betri tíð.

Í Muzeon-garð­inum í Moskvu hafa safn­ast saman styttur og minn­is­merki sem hafa af ein­hverjum ástæðum fallið af stalli sínum í gegnum tíð­ina. Nokkuð margar styttur af Stalín er að finna í garð­inum. Sumar stytt­urnar eru meira skemmdar en aðrar en allar hafa þær ein­hverja sögu að segja um ástæð­urnar fyrir því að þær eru komnar á þessa enda­stöð. Stað­ur­inn hefur því stundum verið kall­aður graf­reitur hinna föllnu minn­is­merkja.

[caption id="attachment_41047" align="alignnone" width="509"] Stalín eft­ir­herman og leik­ar­inn Latif Valiyev situr fyrir á mynd með ferða­manni á Rauða
torg­inu í Moskvu, ásamt Lenín eft­ir­hermu. Margir vest­rænir fjöl­miðlar hafa sér­stakan áhuga á
eft­ir­hermunum og birta reglu­lega myndir og fréttir af þeim í skop­legum stíl. Mynd: Ómar.[/caption]

„Ný-stalínismi” verði gerður refsiverður með lögum?


Samkvæmt nýlegri skoð­ana­könnun Levada Center, sjálf­stæðri rann­sókn­ar­stofnun sem fram­kvæmir reglu­legar og viða­miklar skoð­ana­kann­anir á rúss­nesku sam­fé­lagi, hefur afstaða Rússa til Stalíns hins vegar mild­ast þó nokkuð á und­an­förnum árum. Í skoð­ana­könnun stofn­un­ar­innar sem fram­kvæmd var fyrr á árinu kemur fram að 45% aðspurðra telji verkn­aði í stjórn­ar­tíð Stalíns hafa verið rétt­læt­an­lega. En þremur árum áður svör­uðu 25% aðspurðra með þeim hætti í sam­bæri­legri skoð­ana­könnun Levada Center.

Margir Rússar nú til dags virð­ast þannig vera til­búnir að líta fram­hjá kúgun og glæpum ógn­ar­stjórnar Stalíns og ein­blína frekar á aukna iðn­væð­ingu og hern­að­ar­lega sigra Rauða hers­ins undir hans stjórn. “Eitt er þjóð­rækni, annað þjóð­remba,” skrif­aði Árni Bergmann, sér­fræð­ingur í mál­efnum Rúss­lands, í bók­inni Rússland og Rússar frá árinu 2004. Árni varar þar við að þjóð­ern­is­hyggja geti tekið á sig háska­legar myndir í Rúss­landi, líkt og ann­ars­staðar.

TASS-frétta­stofan greindi reyndar frá því í lok sept­em­ber að nýtt frum­varp til laga gegn “ný-stalín­isma” væri í burð­ar­liðnum í Dúmunni, neðri deild rúss­neska þings­ins. Lítið hefur þó spurst af frum­varp­inu síðan þá. Frum­varpið leggi hins vegar til að allur áróður sem miðar að því að fegra stjórn­ar­tíð Stalíns verði gerður refsi­verður með lögum. Þá verði verði jafn­framt bannað með lögum að skýra götur, neða­jarð­ar­lest­ar­stöðvar og önnur slík mann­virki í höf­uðið á ein­stak­lingum tengdum ógn­ar­stjórn Stalíns.

Þegar Stalín snéri aftur í Neðanjarðarlestakerfið


Neð­an­jarð­ar­lesta­kerfið í Moskvu var að stórum hluta byggt í stjórn­ar­tíð Stalíns. Þess vegna var vit­an­lega engu til sparað við upp­hefja þáver­andi leið­tog­ann með myndum, styttum og slag­orðum á lest­ar­stöðv­unum borg­ar­innar. Öll ummerki um Stalín voru hins vegar fjar­lægð úr neð­an­jarð­ar­lesta­kerf­inu, líkt og öðrum stöðum, þegar Krútsjov komst til valda. Líkt og áður var minnst á.

Það kom því mörgum Rússum í opna skjöldu þegar Kurskaya-lest­ar­stöðin í Moskvu var opnuð aftur eftir end­ur­bætur árið 2009 og slag­orð sem hylltu Stalín voru aftur komin upp. “Fyrir móð­ur­landið. Fyrir Stalín” stóð á einni áletr­un­unni. Þá blasti upp­runa­legur texti þjóð­söngvar Sov­ét­ríkj­anna frá árinu 1943 við fólki þegar það kom inn á lest­ar­stöð­ina. Í texta­brot­inu, sem hangir uppi enn þann dag í dag, er Stalín meðal ann­ars þakkað fyrir að „hvetja þjóð­ina til vinnu og hetju­dáða”. Nafn Stalíns var reyndar síðar klippt út úr texta þjóð­söngv­ar­ins í skiptum fyrir nafn Leníns.

Dmitry Gaev, þáver­andi yfir­maður neð­an­jarð­ar­lesta­kerf­is­ins í Moskvu, bar fyrir sig að hugs­unin hafi ein­fald­lega verið sú að end­ur­byggja lest­ar­stöð­ina í sem upp­runa­leg­astri mynd til að varð­veita sögu hennar. End­ur­bæt­urnar vöktu hins vegar hörð við­brögð hjá mörgum Rússum. Arseny Roginsky, yfir­maður Memorial mann­rétt­inda­sam­tak­anna, var einn þeirra. “Þetta er bara enn ein vís­bend­ingin um ný-stalín­is­mann sem er að gera vart við sig í sam­fé­lag­inu okkar. Stjórn­völd vilja halda uppi nafni Stalíns sem eins­konar tákni um styrk rík­is­valds­ins sem allir eigi að hræð­ast,” sagði Roginsky í við­tali við Ekho Moskvy útvarps­stöð­ina.

Stalín eftirhermur á Rauða torginu


Að Stalín látnum á Charles de Gaulle, fyrrum for­seti Frakk­lands, að hafa sagt eitt­hvað á þá leið: “Stalín gekk ekki í burtu í for­tíð­ina, hann hvarf inn í fram­tíð­ina”. En fólk sem nú heim­sækir Rauða torgið gæti í fyrstu haldið að orð de Gaulle væru ef til vill einum of bók­staf­leg. Þar er nefni­lega að finna enn eina birt­ing­ar­mynd Stalíns nú til dags. Í þetta skiptið í formi eft­ir­hermunnar og leik­ar­ans Latif Valiyev og ann­arra kollega hans.

Stalín eft­ir­hermur eru sér­stak­lega vin­sælar á meðal ferða­manna á Rauða torg­inu, en þar má einnig finna Lenín og Pútín eft­ir­hermur. Þá virð­ast vest­rænir fjöl­miðlar hafa tekið ást­fóstri við eft­ir­herm­urnar og birta reglu­lega fréttir og myndir af þeim. Mail Online birti þannig mynd af Stalín eft­ir­hermu að borða McDonalds franskar undir fyr­ir­sögn­inni „Hvað myndi alvöru Stalín segja?” The Wall Street Journal birti enn­fremur á dög­unum ítar­legt við­tal við nokkrar af eft­ir­hermunum. Þar kemur meðal ann­ars fram að starfið geti oft reynst and­lega erfitt þar sem margir Rússar séu bæði sár­móðg­aðir og ösku­reiðir þegar þeir sjá upp­risna fyrrum leið­toga Sov­ét­ríkj­anna í fullum skrúða.

Hvernig sem því líður þá er í það minnsta ekki útlit fyrir að ágrein­ingur um arf­leifð Stalíns verði leystur í bráð. Rússar munu áfram skipt­ast í fylk­ingar þegar nafn Stalíns ber á góma og aðgerðir stjórn­valda, hverjar sem þær á end­anum verða, munu ekki breyta því.

Höfundur er sagn- og mark­aðs­fræð­ingur búsettur í Moskvu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár