Flóttamenn frá og í Ungverjalandi

Flótta­menn í Evrópu hafa verið mikið í sviðs­ljós­inu und­an­farin miss­eri. Fyrir utan erf­iða sigl­ingu yfir Mið­jarð­ar­hafið hefur Ung­verja­land reynst þeim hvað erf­ið­ast yfir­ferðar. Bæði lög­reglu og hernum hefur verið beitt gegn flótta­fólki þar. Viðbrögð Ungverja við flótta­manna­straumnum koma á óvart miðað við sögu þjóð­ar­innar og hvernig heim­ur­inn brást við þegar þeir þurftu á hjálp að halda.

Uppreisn og innrás haustið 1956


Háskóla­stúd­entar tóku sig saman og mar­ser­uðu að þing­hús­inu í Búdapest þann 23. októ­ber árið 1956. Þeir kröfð­ust opn­ara sam­fé­lags, betri kjara, sjálf­stæðrar utan­rík­is­stefnu og frjálsra kosn­inga. Mótmælin voru frið­sam­leg en undu upp á sig og urðu mjög fjöl­menn. Rík­is­stjórnin brást við þessu með því að siga örygg­is­lög­regl­unni ÁVH á mót­mæl­end­urna með skot­hríð. Þetta kveikti í reiðum fjöld­anum og í kjöl­farið hófst eig­in­leg upp­reisn í land­inu. Á örfáum dögum var komm­ún­ista­stjórn­inni steypt og ný bylt­ing­ar­stjórn mynduð. Imre Nagy, sem áður hafði setið í stjórn Ung­verja­lands en hafði verið bolað burt, var feng­inn til að leiða hina nýju stjórn upp­reisn­ar­mann­ana og semja við Sov­ét­menn. Sov­ét­menn brugð­ust þó við með all­herj­ar­inn­rás þann 4. nóv­em­ber. Ung­verjar tóku til varna en það tók aðeins tæpa viku að kveða niður upp­reisn­ina. Um 2.500 Ung­verjar og um 700 sov­éskir her­menn féllu í bar­dög­unum. Í kjöl­farið fylgdu fjölda­hand­tökur og yfir­heyrslur, þús­undir fengu harða fang­els­is­dóma og margir af þeim voru sendir í hinar alræmdu fanga­búðir í Síberíu. Auk þess voru hund­ruðir manna teknir af lífi. Þar á meðal Imre Nagy. Hann var dæmdur fyrir land­ráð og hengdur árið 1958.

UNHCR


Flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu Þjóðanna (UNHCR) var stofnuð árið 1950 af feng­inni reynslu eftir seinni heims­styrj­öld­ina. Millj­ónir manna í Evrópu og Asíu lentu á ver­gangi og það tók mörg ár að leysa úr því. Flótta­manna­hjálpin hafði það hlut­verk að verja rétt­indi flótta­manna, sjá um aðbúnað þeirra, vernda þá, hjálpa þeim að finna hæli í öðrum löndum og sam­ræma aðgerðir ríkja. Fyrsta verk­efni Flótta­manna­hjálp­ar­innar var Ung­verja­land. Í kjöl­far inn­rásar Sov­ét­manna flúðu um 200.000 Ung­verjar úr landi, lang­flestir vestur til Aust­ur­ríkis en ein­hverjir suður til Júgóslavíu. Í Aust­ur­ríki var komið á fót tveimur stórum flótta­manna­búðum í Graz og Traiskirchen skammt frá landa­mær­unum og einnig nokkrum minni. Yfir­gefnar her­búðir her­náms­sveita banda­manna úr heim­styrj­öld­inni voru not­aðar. Aðgerðin tókst með ólík­indum vel og mark­aði þá stefnu og vinnu­reglur sem seinna var miðað við. Aust­ur­rík­is­menn báru hit­ann og þung­ann af aðgerð­unum í upp­hafi en fljót­lega kom mikið af starfs­fólki víða að til að aðstoða. Aðgerðin gekk hratt og vel fyrir sig og í árs­lok 1956 var helm­ingur flótta­mann­ana kom­inn úr landi. Banda­ríkja­menn og Kanada­menn tóku við flestum, sam­an­lagt nærri 70.000 manns. Hinir fóru að mestu leyti til ann­arra Evr­ópu­landa, Ástralíu eða til lat­nesku Ameríku.

Hungary's PM: Refugees “look more like an army than asylum seekers" http://t.co/TTTSFc1Ibo pic.twitter.com/FRh8Czyh10


— The WorldPost (@TheWorldPost) October 2, 2015

Ísland tekur þátt

Hvata­maður að komu ung­verskra flótta­manna til Íslands var Gunn­laugur Þórð­ar­son, stjórn­ar­maður í Rauða Kross­inum. Hann fór á fund Hermanns Jón­as­sonar for­sæt­is­ráð­herra og fékk leyfi til að flytja inn á bil­inu 50 til 60 flótta­menn með milli­göngu Rauða Krossins. Áhersla var lögð á það að fá mun­að­ar­laus börn til lands­ins og yfir hund­rað fjöl­skyldur buð­ust til að taka við þeim í fóstur. Gunn­laugur flaug út til Aust­ur­ríkis en þá kom í ljós að ekki var hægt að fá ein­ungis börn. Belgar og Portú­galir höfðu þegar boð­ist til að taka við mun­að­ar­lausum börnum. Gunn­laugur tók við umsóknum í búð­unum og flaug til baka á aðfanga­dag 1956 með 52 flótta­menn á öllum aldri. Þeir voru fæddir, klæddir og sendir í lækn­is­skoðun áður en þeim var komið fyrir í Hlégarði í Mos­fells­sveit í sótt­kví. Þar héldu þeir saman jól og fengu stuðn­ing frá mörgum fyr­ir­tækjum og stofn­unum. Fólkið sem hingað kom var margt mjög illa haldið. Ein kona þurfti að skilja barnið sitt eftir í Ung­verja­landi og sakn­aði þess mjög, hún vissi ekk­ert hvort maður hennar væri á lífi eða ekki. Einn maður hafði misst hönd og rétt sloppið undan sov­éskum her­mönnum. Lýsingar fólks­ins af aðförum rauða hers­ins voru skelfi­legar. Í Morg­un­blað­inu frá 29. des­em­ber 1956 segir: “Og svo er okkur sagt að þetta fólk hafi flúið af “ævin­týra­þrá”!”. Fólkinu var komið fyrir víðs vegar um land. Meiri­hlut­inn sett­ist að í Reykja­vík og nágrenni. Sex fóru til Vest­manna­eyja, tveir til Akraness og fjórir að Geld­inga­læk í Rang­ár­valla­sýslu. Um helm­ingur flótta­mann­anna ákvað að sækja um íslenskan rík­is­borg­ara­rétt og fengu hann nokkrum árum seinna. Hinir fóru annað hvort aftur til Ung­verja­lands eða til ann­arra landa.

Viktor Orbán

Nú í einum mesta flótta­manna­vanda seinni tíma er það einmitt Ungverji sem heims­at­hyglin berst að. Viktor Orbán hefur verið for­sæt­is­ráð­herra síðan 2010 og situr í umboði hægri­flokks­ins Fidesz. Orbán komst á kortið í ung­verskum stjórn­málum árið 1989 með ræðu sem hann hélt á minn­ing­ar­at­höfn um Imre Nagy og upp­reisn­ina 1956. Þar berg­mál­aði hann boð­skap upp­reisn­ar­innar um frjálsar kosn­ingar og sjálf­stæða utan­rík­is­stefnu. Orbán hefur barist hart gegn straumi flótta­manna sem fæstir eru þó að leit­ast eftir að setj­ast að í Ung­verja­landi. Hann segir flótta­menn ekki eig­in­leg fórn­ar­lömb heldur að þeir séu fólk í gróða­von, lög­brjóta og hugs­an­lega hryðju­verka­menn. Hann lét reisa skilti víðs vegar um landið þar sem stendur “Ef þú kemur til Ung­verja­lands, ekki taka störf af Ung­verjum”. En skiltin eru öll á ung­versku sem eng­inn flótta­maður skilur. Skila­boðin eru því ekki til flótta­mann­ana sjálfra heldur til eigin þegna. Stans­laust er alið á ótta í garð erlendra afla. Orbán kennir Evr­ópu­sam­band­inu og þá sér­stak­lega Þjóð­verjum um fólks­straum­inn. Ung­verjar berj­ast hart gegn flótta­manna­kvóta Evr­ópu­sam­bands­ins og nokkrar aðrar þjóðir í Austur-Evrópu hafa fylgt þeim. Slóvakar segj­ast t.a.m. ein­ungis vilja taka við um 200 og gera það skil­yrði að allir séu kristnir. Orbán er því orð­inn óop­in­ber leið­togi þeirra sem berj­ast gegn flótta­mönnum í Evrópu. En af hverju gerir hann þetta? Einungis brota­brot af flótta­mönn­unum sem koma til Ung­verja­lands vilja setj­ast þar að. Skýr­ing­una er senni­lega að finna í inn­an­rík­is­málum Ung­verja­lands. Stjórn Orbáns hefur verið sökuð um póli­tíska spill­ingu og öfga­hægri flokk­ur­inn Jobbik hefur sótt í sig veðrið að und­an­förnu. Orbán grípur því til hins gam­al­gróna póli­tíska vopns sem er þjóð­ern­is­hyggja. Hann býr til erlendan óvin, dreifir athygl­inni frá eigin vand­ræðum og tekur vind­inn úr segl­unum hjá póli­tískum keppi­nautum sínum.

Hungary's PM: Refugees “look more like an army than asylum seekers" http://t.co/TTTSFc1Ibo pic.twitter.com/FRh8Czyh10 — The WorldPost (@TheWorldPost) October 2, 2015

Ein eldri ung­versk kona lýsir ástand­inu best: “Það er skömm að þessu……einu sinni vorum við flótta­menn­irnir”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár