Fólkið sem hvarf

Fólkið sem hverfur spor­laust, og eng­inn veit hvað varð um, skilur eftir sig spurn­ingar sem er ósvarað. Mörg heims­fræg mál þar sem manns­hvörf eru í brennid­epli hafa komið upp. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti sér sög­una að baki tíu merki­legum manns­hvörfum.


  1. Heinrich Müller


Margir nas­istar hurfu í lok seinni heim­styrj­ald­ar­innar. Stærsta nafnið var óum­deil­an­lega Heinrich Müller, leið­togi leynilög­regl­unnar Gestapo frá árinu 1939. Hann var með Adolf Hitler í neð­an­jarð­ar­byrg­inu þegar for­ing­inn svipti sig lífi, þann 30. apríl 1945, en næsta dag hvarf Müller. Hann á að hafa sagt “ég hef ekki minnsta áhuga að láta Rússana taka mig til fanga”. Sjálfs­morð voru dag­legt brauð í byrg­inu og það er vel hugs­an­legt að Müller hafi tekið eigið líf. Aftur á móti eru engin vitni að því og ekk­ert lík fannst. Fjöl­margir leit­uðu Müllers í ára­tugi eftir stríðið, þar á meðal starfs­menn Simon Wiesenthal stofn­un­ar­innar, vestur-þýska lög­reglan og banda­ríska leyni­þjón­ustan CIA. Sumir telja hann hafa flúið til Suður Ameríku en aðrir að hann hafi starfað á laun fyrir Sov­ét­ríkin.

  1. Bison Dele


Bison Dele (fæddur Brian Williams) var körfuknatt­leiks­leik­maður sem spil­aði í NBA deild­inni á árunum 1991 til 1999. Hann var hæfi­leik­a­ríkur mið­herji sem var meðal ann­ars í meist­ara­liði Chicago Bulls árið 1997. Það kom öllum á óvart þegar hann hafn­aði tug­millj­óna doll­ara samn­ingi á hápunkti fer­ils­ins og lagði skóna á hill­una. Dele hvarf í Suður-Kyrra­haf­inu, nálægt frönsku eyj­unni Tahítí. Hann sigldi ásamt bróður sínum, kær­ustu og skip­stjóra á lít­illi snekkju sem hét Hakuna Matata. Lög­reglan fann bróður hans, Miles Dabord, á flótta í Phoenix en hann hafði komið að landi í Mexíkó. Frásögn Dabord af atburðum í snekkj­unni þóttu ekki trú­an­legar og skömmu seinna tók hann of stóran skammt af insúl­íni, féll í dá og lést. Líklegt þykir að Dabord hafi myrt hina þrjá ferða­lang­anna.



  1. Azaria Chamberlain


Mál Azariu litlu er eitt af óhugn­ar­leg­ustu morð­málum sög­unnar. Azaria var tveggja mán­aða gömul þegar hún hvarf úr tjaldi fjöl­skyld­unnar í úti­legu við hina frægu Uluru kletta í Ástralíu árið 1980. For­eldr­arnir héldu því fram að dingó (ástr­alskur villi­hundur) hefði kom­ist í tjaldið og tekið dóttur þeirra en lög­regl­unni fannst það ekki trú­legt. Móðirin Lindy Chamberlain var ákærð fyrir morð og fað­ir­inn Michael fyrir aðkomu að morð­inu. Fátt annað komst að í fjöl­miðlum Ástralíu næstu tvö árin og ýmis konar gróu­sögur komust á kreik. Meðal ann­ars að for­eld­arnir hefðu fórnað barn­inu í trú­ar­legum til­gangi en þau voru sjö­unda-dags aðventistar. Þau voru dæmd sek og Lindy fékk lífs­tíð­ar­dóm en þremur árum síðar fannst bútur úr fötum Azariu við dingóbæli og for­eld­arnir sýkn­aðir í kjöl­farið. Lík hennar fannst þó aldrei.

  1. Ambrose Bierce


Bierce var einn af þekkt­ustu rit­höf­undum og blaða­mönnum Banda­ríkj­anna á 19. öld. Verk hans þóttu kald­hæðin og nöpur en vin­sældir hans og áhrif voru mikil. Hann lagði til dæmis grunnin að þeim heimi sem Robert Chambers og H.P. Lovecraft skrif­uðu inn í. Árið 1913 var Bierce orð­inn rúm­lega sjö­tugur og sumir segja að hann hafi verið orð­inn leiður á líf­inu. Hann hélt suður á bóg­inn til Mexíkó til að hitta bylt­ing­ar­leið­tog­ann Pancho Villa. Það sein­asta sem frétt­ist frá honum var bréf sem hann sendi frá bænum Chihuahua til ást­konu sinnar, Blanche Part­ington. Ýmsar kenn­ingar eru á kreiki um afdrif Bierce. Flestar á þá leið að hann hafi dáið í Mexíkó, annað hvort í bar­daga eða verið tek­inn af lífi. Aðrir halda því fram að hann hafi aldrei farið til Mexíkó heldur tekið eigið líf í heima­land­inu.

  1. Richey Edwards


Edwards var gít­ar­leik­ari og laga­höf­undur rokk­hljóm­sveit­ar­innar Manic Street Preachers. Bandið var stofnað í Wales árið 1986 og sló í gegn í upp­hafi tíunda ára­tug­ar­ins. Edwards var fræg­asti með­limur hljóm­sveit­ar­innar. Hann var lit­ríkur karakter en þung­lyndur og átti það til að meiða sjálfan sig á ýmsan hátt, t.d. skera sig og brenna með sígar­ettu­stubbum. Í febr­úar 1995 átti Edwards bókað flug frá London til Banda­ríkj­anna. Hann fór aldrei um borð heldur keyrði heim til Wales. Seinna fannst bíll­inn hans yfir­gef­inn og aug­ljóst að Edwards hafði búið í honum í nokkra daga. Margir telja að hann hafi stokkið í ána Severn en aðrir telja það óhugs­andi. Hann hafði tekið út tals­verða pen­inga fyrir hvarfið og sumir segj­ast hafa séð hann, t.d. í Indlandi og á Kanarí­eyjum. Hann var lýstur laga­lega dáinn árið 2008.



  1. Amelia Earhart


Árið 1928 var Earhart fyrsta konan til að fljúga yfir Atl­ants­hafið og varð á kom­andi árum einn fræg­asti flug­garpur heims. Árið 1936 tók hún að sér mun stærra verk­efni þ.e. að fljúga í kringum hnött­inn. Ári seinna hóf hún ferð­ina en þurfti að hætta við vegna véla­bil­unar og skemmda. Hún var þó ekki af baki dottin og reyndi aftur skömmu síðar. Ferðin gekk vel og Earhart flaug ásamt leið­sögu­mann­inum Fred Noonan austur frá Kali­forníu yfir Ameríku, Afríku, Asíu og Ástralíu. Seinasti spöl­ur­inn var sá erf­ið­asti, yfir Kyrra­hafið. Þar misstu loft­skeyta­menn allt sam­band við vél­ina og mikil leit hófst. Alls kyns sögur eru til af afdrifum Earhart, að hún hafi hrapað á lít­illi eyju, náð leið­ar­lokum eða orðið njósn­ari í stríð­inu. Lang lík­leg­ast verður þó að telj­ast að vélin hafi orðið elds­neyt­is­laus og hrapað í Kyrra­hafið.

  1. Anastasia Romanov


Anastasia prinsessa, dóttir Niku­lásar II Rúss­lands­keis­ara, er fræg­asta horfna mann­eskjan sem aldrei hvarf. Hin 17 ára gamla Anastasia var tekin af lífi ásamt for­eldrum sínum, fjórum systk­inum og fylgd­ar­liði þann 17. júlí árið 1918. Það var hin alræmda leynilög­regla bol­sjé­víka Cheka sem sá um aftök­una í Yeka­ter­in­burg við Úral­fjöll. Líkin voru falin og mikil leynd yfir aftök­unni. Ein­hverra hluta vegna fór sá kvittur á kreik að mögu­lega hefðu tvö yngstu börnin, Alexei prins og Anastasia sloppið. Fjöl­margar konur komu fram á næstu árum og sögð­ust vera prinsessan. Hvatinn var senni­lega sá mikli Romanov auður sem lá í banka­hvelf­ingum í Sviss. Það voru skrif­aðar bækur, leik­rit og kvik­myndir um flótta Anastasiu. DNA sýni úr lík­fundum frá árunum 1979 og 2007 stað­festa þó að öll Romanov börnin voru tekin af lífi.

  1. Alcatraz þrí­eykið


Fang­elsið á Alcatraz eyju í Kali­forníu er lík­lega fræg­asta fang­elsi sög­unnar þó að það hafi aðeins verið starf­rækt í um 30 ár. Árið 1962, einu ári áður en fang­els­inu var lokað, náðu þrír fangar að sleppa og var það eina flótta­til­raunin sem tókst í sögu stofn­un­ar­innar. Frank Morris og bræð­urnir John og Clarence Anglin sem allir voru dæmdir banka­ræn­ingjar höfðu skipu­lagt flótt­ann ásamt fjórða fang­anum, Allen West, sem tókst ekki að kom­ast úr klefa sínum. Fang­arnir bjuggu til höfuð úr pappamassa sem þeir settu í rúm sín til að villa um fyrir fanga­vörð­unum. Þeir komust út um loft­ræsti­kerfið og hófust svo handa við að gera fleka og björg­un­ar­vesti. Þeir náðu að klifra niður pípu utan á bygg­ing­unni og svo yfir næstum fjög­urra metra háa gadda­vírs­girð­ingu. Þaðan héldu þeir til hafs og sáust aldrei meir.



  1. Madel­eine McCann


Hin breska Madel­eine McCann var þriggja ára þegar hún hvarf af hót­el­her­bergi í Algarve í Portúgal árið 2007. Madel­eine var sof­andi ásamt yngri systk­inum sínum á meðan for­eldr­arnir borð­uðu á veit­inga­stað nærri hót­el­inu. Augljóst er að Madel­eine var rænt en mis­tök við rann­sókn máls­ins leiddu til þess að for­eldr­arnir voru grun­aðir um að hafa myrt hana. Tveir ein­stak­lingar á svæð­inu segj­ast hafa séð karl­mann bera sof­andi barn nálægt svæð­inu en ekk­ert hefur feng­ist með þessum vís­bend­ingum. Málið fékk strax gríð­ar­lega fjöl­miðla­at­hygli og er ennþá í fersku minni fólks. Það sem sér­stak­lega stendur upp úr er hlutur for­eldr­anna og mörgum þótti þau sína mikið ábyrgð­ar­leysi að skilja börnin ein eftir inni á her­bergi. Málið hefur verið margrann­sakað en ennþá eru menn engu nær um hvað varð um hana.

  1. Jimmy Hoffa


Nafnið Jimmy Hoffa er orðið sam­gróið hug­tak­inu manns­hvarf. Hoffa starf­aði alla ævi í verka­lýðs­hreyf­ing­unni í Banda­ríkj­unum, nánar til­tekið í IBT hreyf­ing­unni sem sam­anstendur af vöru­bíls­stjórum, hafn­ar­verka­mönnum, vél­virkjum og fleirum. Frá 1958 til 1971 leiddi hann hreyf­ing­una en á sjö­unda ára­tugnum var hann dæmdur fyrir mútur, fjár­drátt og fleira og end­aði í fang­elsi. Hoffa var svo náð­aður gegn því að hann segði sig úr hreyf­ing­unni. Árið 1975 hvarf hann spor­laust í Detroit borg. Engum duld­ist að Hoffa hafði sterk tengsl við mafí­una. Hoffa átti að hitta tvo mafíu­for­ingja dag­inn sem hann hvarf en þeir mættu ekki á fund­inn. Ótal kenn­ingar eru á lofti um afdrif hans, t.d. að hann hafi flúið mafí­una og að amer­ísk stjórn­völd hafi látið drepa hann. En lík­leg­ast var hann myrtur af mafí­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár