Urðun dagblaða og tímarita kostaði skattgreiðendur 15-30 milljónir í fyrra

Gera má ráð fyrir því að urðun á dag­blaða- og tíma­rita­pappír hafi kostað SORPA, og skatt­greið­end­urna sem eiga fyr­ir­tækið, um 15 til 30 millj­ónir króna á árinu 2014. Þar er um að ræða allan þann dag­blaða- og tíma­rita­pappír sem er ekki flokk­aður í bláa tunnu og fer þar af leið­andi ekki í end­ur­vinnslu, heldur er hent í gráu rusla­tunn­una, hina svoköll­uðu orku­tunnu. Þetta kemur fram í svari Björns Haf­steins Hall­dórs­sonar, fram­kvæmda­stjóra SORPU, við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Samkvæmt rann­sókn sem SORPA gerði í nóv­em­ber í fyrra má gera ráð fyrir því að pappír og pappi sé um 11,9 pró­sent af öllum úrgangi sem hent er í gráu tunn­urnar. Sá úrgangur er allur urð­aður og veldur því kostn­aði. Björn segir dag­blaða- og tíma­rita­pappír vera lít­inn hluta af þessum úrgangi. Að mestu sé um að ræða umbúðir. Sé gert ráð fyrir að að dag­blaða- og tíma­rita­pappír sé um 2,5 til 5,0 pró­sent af heild­ar­magn­inu megi gera ráð fyrir að urðun á þeim hluta hafi kostað á bil­inu 15 til 30 millj­ónir króna á síð­asta ári. Björn tekur það þó fram að fast­lega megi gera ráð fyrir að þessi kostn­aður lækki milli ára þar sem árangur í end­ur­vinnslu sé alltaf að verða betri.

SORPA er byggð­ar­sam­lag í eigu sex sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu: Reykja­vík­ur­borgar, Hafn­ar­fjarðar, Kópavogs, Sel­tjarn­ar­ness, Mos­fells­bæjar og Garða­bæjar. Kostn­aður við urðun lendir því á skatt­greið­endum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem reka SORPU.

Flest dag­blöð og tíma­rit á Íslandi eru seld í áskrift og ræðst upp­lag þeirra af fjölda áskrif­enda. Til við­bótar er nokkrum blöðum dreift frítt í stóru upp­lagi. Þar munar mest um Frétta­blaðið, sem er dreift frítt í 90 þús­und ein­tökum sex daga vik­unnar, og Frétta­tím­ann, sem kemur út einu sinni viku og er dreift frítt í 82 þús­und ein­tökum. Auk þess er ýmsum bæj­ar­blöðum dreift frítt inn á heim­ili á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár