Vodkinn á undir högg að sækja í Rússlandi - Drykkjan enn mikið vandamál

Samkvæmt töl­fræði rúss­nesku hag­stof­unnar, Rosstat, hefur fram­leiðsla á vodka verið í stöðugri lægð í Rúss­landi und­an­farin ár og útlit fyrir að þró­unin stefni áfram niður á við á næst­unni. Ýmsar kenn­ingar eru uppi varð­andi þessa nið­ur­sveiflu vod­kans - drykkj­ar­ins sem hefur verið eins og rauður þráður í gegnum sögu Rússa síð­ustu ald­irnar.

Versn­andi staða Rúss­lands í alþjóða­sam­fé­lag­inu, í kjöl­far inn­limunar Krím­skaga og áfram­hald­andi deilna um mál­efni Ukraínu, hefur aug­ljós­lega haft nei­kvæð áhrif á mark­aðs­stöðu vodka fram­leið­anda í Rúss­landi. Nýlegar tölur frá tolla­yf­ir­völdum í Rúss­landi und­ir­strika það, en útflutn­ingur á rúss­neskum vodka féll um fjör­tíu pró­sent á fyrsu sex mán­uðum árs­ins 2015, sam­an­borið við fyrstu sex mán­uð­ina árið 2014. Enn fremur hefur verið bent á hæg­fara þróun á drykkju­menn­ing­unni í Rúss­landi, þar sem Rússar séu nú farnir að drekka meira af bjór og létt­víni, á kostnað vod­kans.

Þá hafa for­varn­ar­að­gerðir rúss­neskra stjórn­valda gegn ofneyslu áfengis einnig haft sitt að segja fyrir vodka fram­leið­endur þar í landi. Aðgerð­irnar hafa til þessa einkum verið í formi skatta­hækk­anna á áfeng­is­fram­leið­endur, sem svo skila sér í hækk­andi verði á vodka og öðru áfengi fyrir neyt­endur. Á tímum sem almenn­ingur hefur minna á milli hand­anna vegna yfir­stand­andi kreppu getur slík verð­þróun haft afar slæmar afleið­ingar, bæði fyrir fram­leið­endur vodka, sem og for­varn­ar­að­gerðir stjórn­valda. Líkt og gerð­ist fyrir um þrjá­tíu árum síðan þegar Mikhaíl Gor­batsjev var við stjórn­vartaumana.

[caption id="attachment_39746" align="alignnone" width="1148"] Mikhaíl Gor­batsjev boð­aði her­ferð gegn ofdrykkju áfengis í Sov­ét­ríkj­unum í maí árið 1985. Þrátt fyrir harðar aðgerðir og mik­inn áróður þá náði her­ferðin ekki til­skyldum árangri. Mynd: Ómar.[/caption]

Gorbatsjev sagði áfenginu stríð á hendur


Gor­batsjev var ein­ungis búinn að vera aðal­rit­ari Komm­ún­ista­flokks Sov­ét­ríkj­anna í tæpa tvo mán­uði þegar hann kynnti til sög­unnar afar rót­tæka her­ferð gegn ofneyslu áfengis. Tölfræði sem þáver­andi stjórn­völd höfðu látið taka saman sýndi hversu alvar­legt ástandið var orðið í land­inu. Almenn­ingur í Sov­ét­ríkj­unum var þá að drekka nær tvö­falt meira magn af áfengi að með­al­tali á ári heldur en það magn sem Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin, WHO, taldi vera bók­staf­lega lífs­hættu­legt. Á meðal aðgerða sem Gor­batsjev boð­aði voru að draga saman fram­leiðslu rík­is­ins á áfengi um þriðj­ung, en á þeim tíma hafði rík­is­stjórnin ein­ok­un­ar­stöðu á fram­leiðslu og sölu áfengis í Sov­ét­ríkj­unum. Enn fremur var ákveðið að hækka sölu­verð áfengis um fjórð­ung og tak­marka afgreiðslu­tíma þess í versl­unum. Þá var lág­marks­aldur til áfeng­is­kaupa hækk­aður úr átján árum upp í tutt­ugu og eitt ár.

Gor­batsjev var með­vit­aður um að með aðgerð­unum væri hann að höggva á einn helsta tekju­stofn rík­is­valds­ins síð­ustu ald­irnar - sem var fram­leiðsla og sala á vodka. Hann útskýrði síðar í end­ur­minn­ingum sínum, frá árinu 1996, að reiknað hafi verið með tekju­tapi vegna aðgerð­anna. Vonir hafi hins vegar staðið til að aðgerð­irnar myndu stuðla að betri heilsu og auknu vinnu­fram­lagi almenn­ings, sem ættu svo á hinn bóg­inn að vega upp á móti tekju­tap­inu.

Á papp­írnum virt­ust aðgerðir Gor­batsjev vera að skila til­skyldum árangri. Sala á áfengi í Sov­ét­ríkj­unum dróst saman um rúm fimm­tíu pró­sent frá árinu 1985 til árs­ins 1988 og mæl­an­leg með­al­neysla almenn­ings á sterku áfengi snar­lækk­aði frá ári til árs. Tölfræði getur hins vegar verið vill­andi og í þessu til­felli gaf hún ekki rétta mynd af þeirri þróun sem var að eiga sér stað. Það var ekki nóg með að aðgerð­irnar sem slíkar hafi skapað Gor­batsjev gríð­ar­legar óvin­sældir í heima­land­inu, heldur ýttu þær einnig undir óhemju mikla fjölgun á heima­bruggi á sterku áfengi á meðal almenn­ings. Aðgerð­irnar misstu þannig marks og rík­is­valdið varð á sama tíma af háum fjár­munum í formi áfeng­is­sölu. Hinn almenni borg­ari í Sov­ét­ríkj­unum var því ekki endi­lega að drekka minna af áfengi - heldur var hann að drekka minna af „lög­legu” áfengi.

[caption id="attachment_39747" align="alignnone" width="962"] Heima­brugg­aður landi eða “sam­ogon” er vin­sæll drykkur í Rúss­landi. Þess ber að geta að einnig er hægt að kaupa drykk undir vöru­merk­inu sam­ogon, en hann er vit­an­lega lög­lega brugg­aður og vott­aður af áfeng­is­eft­ir­lit­inu. Á áletr­un­inni á flösku­háls­inum stendur: “Þetta er ekki vodki! Prófaðu!”. Mynd: Ómar.[/caption]

Samogon stelur senunni af vodka


Í gegnum tíð­ina hefur afar sterk hefð mynd­ast hjá Rússum fyrir heima­bruggi eða “landa”. Í Rúss­landi er heima­bruggið kallað “sam­ogon” en áætlað er að um 250 milljón lítrar af ýmsum afbrigðum af drykknum séu fram­leiddir á ári, bæði til einka­neyslu og ólög­mætrar sölu. Þannig hefur einnig sala á bún­aði til heima­brugg­unar fimm­fald­ast á síð­ustu árum. Ekki endi­lega vegna krepp­unnar, heldur vegna þess að heima­bruggun er nú aftur komin í tísku, sam­kvæmt rúss­neska dag­blað­inu Rossi­yskaya Gazeta.

Á meðan sala á dýr­ustu teg­undum vodka ýmist stendur í stað eða aukast má lík­lega rekja nið­ur­sveiflu ódýr­ustu vodka teg­und­anna að mestu leyti til sam­keppn­innar við sam­ogon. Samkvæmt dag­blað­inu RBC í Rúss­landi er sam­ogon allt að fjórum sinnum ódýr­ari en allra ódýr­ustu lög­legu vodka teg­undir sem fáan­legar eru á mark­aðnum. Dag­blaðið heldur því jafn­framt fram að ólög­legi mark­að­ur­inn, sam­ogon og ólög­lega inn­fluttur vodki, sé þegar orð­inn stærri en lög­legi vodka mark­að­ur­inn í Rúss­landi.

Vadím Drobiz, sér­fræð­ingur á sviði mark­aðs­setn­ingar á áfengi í Rúss­landi, telur að vegna þess að verð á lög­legum vodka hafi rokið upp síð­ustu miss­eri sé sam­ogon nú að styrkja stöðu sína enn frekar á mark­aðnum. Þá sér­stak­lega utan stór­borg­anna. “Ef þessi þróun heldur áfram þá sé ég fyrir mér að hægt verði að loka fyrir lög­lega sölu á vodka í dreifð­ari byggðum Rúss­lands. Á bil­inu 20 til 30 millj­ónir Rússa munu ein­ungis drekka heima­brugg á næstu árum,“ sagði Drobiz í sam­tali við rúss­neska dag­blaðið Pravda.

Háleit markmið rússneskra stjórnvalda


Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti hefur ítrekað mik­il­vægi þess að draga lær­dóm af bar­áttu Gor­batsjev við ofneyslu áfengis fyrir þrjá­tíu árum síðan. Pútín varði þannig ákvörðun sína að frysta verð á vodka í lok árs 2014 með þeim rökum að hin sífellda hækkun verðs á vodka myndi óhjá­kvæmi­lega ýta undir heima­bruggun og sölu á ólög­legu áfengi. Ekki eru þó allir sann­færðir um að rúss­nesk stjórn­völd séu að gera nóg í bar­átt­unni og að aðgerð­irnar séu hingað til meira í orði en á borði.

Mark Lawrence Schrad, höf­undur bók­ar­innar Vodka Politics sem kom út árið 2014, er á meðal þeirra sem harð­lega gagn­rýna núver­andi stjórn­völd í Rúss­landi fyrir aðgerð­ar­leysi í bar­átt­unni gegn ofdrykkju áfengis. Schrad vill meina að Pútín og for­sæt­is­ráð­herr­ann Dimítrí Medvedev kasti fram stórum orðum þegar við á, en að gjörðir fylgi sjaldan fögrum fyr­ir­heitum. Rússnesk stjórn­völd nái ein­fald­lega ekki að fylgja eftir eigin lög­gjöf. Þess vegna flæði ólög­legt áfengi um mark­að­inn í Rúss­landi og þess vegna sé heil­brigð­is­kerfið ekki reiðu­búið að aðstoða alla þá sem eigi við áfeng­is­vanda­mál að stríða í land­inu. Schrad vill meina að stjórn­völd ein­blíni of mikið á fjár­hags­legt öryggi þjóð­ar­bús­ins í stað þess að hafa áhyggjur af heilsu almenn­ings í Rúss­landi.

Á meðal yfir­lýstra mark­miða stjórn­valda í bar­átt­unni er að minnka meðal alkó­hól­neyslu Rússa um helm­ing fyrir árið 2020, en sam­kvæmt skýrslu Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar frá 2014 var Rússland í fjórða sæti yfir drykk­feld­ustu þjóðir heims. Enn fremur ætla stjórn­völd að stuðla að hækkun meðal lífald­urs í Rúss­landi í sjö­tíu og fimm ár fyrir árið 2025, en Rússar hafa til þessa ekki þótt standa fram­ar­lega í lýð­heilsu­m­álum. Þá hefur áfeng­is­eft­ir­lit rík­is­ins boðað að stór for­varn­ar­her­ferð muni hefj­ast seinna á þessu ári. Her­ferðin mun ein­blína á að upp­lýsa ungt fólk um skað­semi ofneyslu áfengis.

Hasarmyndahetja og bardagakappi berjist gegn „búsi”


Hug­myndir eru uppi um að hasar­mynda­hetjan Steven Seagal og hnefa­leika­kapp­inn Roy Jones Jr. verði fengnir til þess að vera and­lit nýju for­varn­ar­her­ferð­ar­innar, ef marka má nýlega frétt í rúss­neska dag­blað­inu Izvestia. Banda­ríkja­menn­irnir Seagal og Jones Jr. eru báðir sagðir vin­sælir á meðal yngri kyn­slóð­ar­innar í Rúss­landi ásamt því að vera þekktir fyrir að vera hlið­hollir Rúss­landi og þá sér­stak­lega Rúss­lands­for­seta.

[caption id="attachment_39748" align="alignnone" width="1000"] Pútín Rúss­lands­for­seti og kvik­mynda­leik­ar­inn Steven Seagal eru miklir vinir en Seagal hefur lýst því yfir í rúss­neskum fjöl­miðlum að hann vilji hjálpa Rússum í bar­átt­unni gegn ofneyslu áfengis. Mynd: EPA.[/caption]

Vinátta Seagal og Pútín hefur raunar staðið í mörg ár en báðir voru þeir við­staddir við­skipta­ráð­stefnu í Vla­di­vostok í Rúss­landi í byrjun sept­em­ber. Aðspurður á ráð­stefn­unni kvaðst Seagal gjarnan vilja leggja hönd á plóg í her­ferð Rússa gegn ofneyslu áfengis, sam­kvæmt frétt Izvestia. Hvað varðar tengsl Jones Jr. við Rússland þá greindi opin­ber heima­síða Kremlar frá því um þar síð­ustu helgi að Pútín hefði ákveðið að veita Jones Jr. flýti­með­ferð til að öðl­ast rúss­neskan rík­is­borg­ara­rétt, gegn því að hnefa­leika­kapp­inn myndi leggja sitt af mörkum til rúss­nesks sam­fé­lags. Hvort að kraftar Jones Jr. verði svo nýttir til for­varn­ar­starf­semi skýrist vænt­an­lega fljót­lega.

Hvernig sem því líður þá er alla vega ljóst að mörg spjót standa að fram­leið­endum vodka í Rúss­landi og margir sam­verk­andi þættir sem skýra minnk­andi vægi drykkj­ar­ins, sem eitt sinn var þar allt í öllu.

Höfundur er sagn­fræð­ingur og mark­aðs­fræð­ingur, búsettur í Moskvu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár