Greiningardeild Arion: Móttaka flóttamanna kostnaðarsöm en langtímaáhrifin jákvæð

„Í stuttu máli má segja að mót­taka flótta­manna í stórum stíl væri stórt og ærið verk­efni sem mun verða kostn­að­ar­samt og krefj­ast sam­vinnu margra. Til lengri tíma virð­ast þó áhrifin vera jákvæð fyrir efna­hags­lífið.“

Þetta segir í mark­aðs­punktum grein­ing­ar­deildar Arion banka í dag þar sem fjallað er um mót­töku flótta­fólks út frá efnags­legu sjón­ar­horni. Í grein­ing­unni segir að þegar stór hópur fólks komi til lands­ins, eins og líkur hafa auk­ist á að verði, þá hafi hann efna­hags­leg áhrif bæði til skemmri og lengri tíma. „Staða flótta­manna er fyrst og fremst mann­úð­ar­mál og þröngt efna­hags­legt sjón­ar­horn verður aldrei ráð­andi þáttur í ákvarð­ana­töku um mót­töku þeirra. Þar munu aðrir og mik­il­væg­ari þættir ráða. Engu að síður er áhuga­vert og mik­il­vægt að skoða hver efna­hags­legu áhrifin geta verið af mót­töku flótta­manna og er það efni þessa mark­aðs­punktar,“ segir grein­ing­ar­deildin.

Móttöku flótta­fólks myndi fylgja tals­verður kostn­aður fyrst um sinn og nefnir grein­ing­ar­deildin sem dæmi kostnað við ferða­lagið til Íslands, útvegun húsa­skjóls, koma börnum í skóla og stuðn­ingur af ýmsu tagi. Til lengri tíma sé hins vegar um að ræða nýja íbúa á Íslandi sem eftir atvikum skili verð­mætum til þjóð­ar­bús­ins líkt og aðrir.

Lýðfræðilegur munur á Sýrlandi og Íslandi


Lýð­fræði­legar aðstæður á Íslandi og í Sýrlandi eru bornar saman í grein­inni, en gert er ráð fyrir að handa­hófs­kenndur hópur Sýr­lend­inga kæmi til lands­ins. Ald­urs­sam­setn­ing hans yrði þá tals­vert önnur en Íslend­inga. „Rúmlega 30% þeirra væru börn 0-14 ára, en á Íslandi er hlut­fallið 20%. Aftur á móti væri mjög lít­ill hluti flótta­manna 65 ára og eldri, eða 4%. Í sam­an­burði við Ísland er Sýrland fátækt land og var lands­fram­leiðsla á mann áður en stríðið braust út ein­ungis einn átt­undi af því sem ger­ist á Íslandi. Mennta­stig er einnig tals­vert lægra en á Íslandi og er 80% þjóð­ar­innar læs. Aftur á móti var skóla­sókn almenn fyrir stríð og gátu börn vænst að ganga í skóla í 12 ár. Þó er mennta­stig þjóð­ar­innar frekar lágt miðað við það sem ger­ist á Íslandi. Sam­an­dregið má því segja að hingað kæmi ungt fólk með frekar litla menntun.“

Sé gert ráð fyrir að hingað komi til lands flótta­menn sem þegar eru komnir til Evrópu, þá má búast við að hóp­ur­inn yrði að jafn­aði mennt­aðri og efn­aðri en meiri­hluti Sýr­lend­inga. Ástæðan er sú að ferða­lag þeirra frá heima­landi sínu til Evrópu er afar dýrt og ekki á allra færi.

Á Íslandi mun vanta vinnuafl


Grein­ing­ar­deildin rifjar upp fyrri grein­ingu sína um þörf á erlendu vinnu­afli á Íslandi á kom­andi árum ef hag­vaxt­ar­spár ræt­ast og ekki hægir veru­lega á straumi ferða­manna til lands­ins. Kjarninn fjall­aði um málið í ágúst síð­ast­liðnum.

„Að óbreyttu er því lík­legra að fremur verði skortur á vinnu­afli en störfum á Íslandi í nán­ustu fram­tíð. Aftur á móti gæti það tekið tíma og stuðn­ing að koma fólki á vinnu­markað, ekki síst til að hæfi­leikar og menntun hvers og eins nýt­ist. Einnig er ólík­legt að flótta­menn myndu hafa nákvæm­lega þá þekk­ingu og reynslu sem íslenskt atvinnu­líf mun krefj­ast á næstu árum. Fjölgun starfa á næstu árum mun lík­lega að miklu leyti verða í ýmsum störfum tengdum ferða­þjón­ustu, sem eru fjöl­breytt en krefj­ast ekki alltaf sér­þekk­ingar eða reynslu. Þá er einnig kostur að fólkið sem hingað kæmi yrði lík­lega ungt, á meðan íslenska þjóðin er að eld­ast, sem að óbreyttu mun reyna mjög á líf­eyr­is­kerfið á næstu ára­tugum eins og við höfum bent á. Yngra vinnu­afl myndi vafa­laust hjálpa til við að leysa þann vanda.“

Sér­fræð­ingar grein­ing­ar­deildar Arion banka segja að hægt sé að fara í óend­an­legar vanga­veltur um þýð­ingu þess fyrir efna­hags­lífið ef hingað komi flótta­menn í þús­unda­tali. Slíkar vanga­veltur séu aftur á móti þýð­ing­ar­litlar ef ekki er stuðst við rann­sóknir sem liggja fyrir. Bent er á skýrslu Alþjóða­vinnu­mála­stofn­un­ar­innar, útgefin fyrr í þessum mán­uði, þar sem fram kemur að inn­flytj­endur hafi almennt jákvæð áhrif á efna­hags­líf í þeim löndum sem þeir flytj­ast til. „Inn­flytj­endur greiða almennt skatta og opin­ber gjöld umfram það sem þeir fá frá hinu opin­bera (þetta styðja fleiri rann­sóknir) auk þess að koma með ýmsa færni og þekk­ingu inn í landið. Einnig hafa flótta­menn jákvæð áhrif á heima­lönd sín, m.a. með því að senda pen­ing heim og öðl­ast færni í nýju landi sem ekki er í boði í heima­land­inu. Þá sýnir nýleg rann­sókn frá Ástralíu að flótta­menn þar í landi hafi jákvæð efna­hags­leg áhrif, auk þess sem farið er yfir ýmsar aðrar rann­sóknir þar sem nið­ur­staðan er að flótta­menn séu ekki byrði til lengri tíma, ólíkt því sem oft er haldið fram,“ segir í mark­aðs­punktum grein­ing­ar­deild­ar­innar í dag.

Í lok grein­ar­innar er vitnað í nýlegan leið­ara tíma­rits­ins The Economist, þar sem fjallað var um mál­efni flótta­manna. Þar sagði, í þýð­ingu grein­ing­ar­deildar Arion banka: „Fólk sem ferð­ast yfir eyði­merkur og úthöf til að kom­ast til Evrópu er ólík­legt til að vera slugs­arar þegar það kemur. Þvert á móti hafa rann­sóknir sýnt að inn­flytj­endur um allan heims séu lík­legri til að stofna fyr­ir­tæki heldur en heima­menn og ólík­legri til að fremja alvar­lega glæpi, auk þess að vera nettó greið­endur í rík­is­kass­ann. Óttinn um að þeir steli störfum og lækki laun á sér einnig litla stoð. Vegna þess að inn­flytj­endur koma með öðru­vísi færni, hug­myndir og tengsl, reyn­ast þeir jafnan hækka laun heima­manna, þó laun lítið mennt­að­ara heima­manna lækki lít­il­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár