Fordæmir meðferð Ungverja á flóttamönnum

Ban Ki-moon, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, seg­ist vera brugðið (e. shocked) vegna aðgerða Ungverja gegn flótta­mönnum við landa­mæri lands­ins. Sú með­ferð sem þeir hafi beitt hæl­is­leit­endur sé óásætt­an­leg.

Lög­reglan við landa­mæri Ung­verja­lands og Serbíu hafa á síð­asta sól­ar­hring beitt flótta­menn harð­ræði og not­ast við tára­gas og vatns­slöngur til að halda þeim frá landa­mærum Ung­verja­lands.


Stjórn­völd í Ung­verja­landi hafa varið aðgerðir sínar og sögðu að tutt­ugu lög­reglu­menn hafi slasast þegar flótta­menn reyndu að brjót­ast sér leið í gegnum vír­girð­ingar við landa­mærin.


Ung­verjar brugð­ust afdrátt­ar­laust við straumi flótta­manna inn til lands­ins á þriðju­dag þegar ný lög tóku í gildi sem refsi­væða ólög­lega komu til lands­ins. Um tvö hund­ruð þús­und manns hafa þegar farið inn í landið það sem af er ári, og þar með inn á Schengen-svæðið. Flestir halda áfram leið sinni til ann­arra ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins norðar í álf­unni.


Eftir að öllum helstu leiðum frá Serbíu til Ung­verja­lands var lokað hafa flótta­menn, flestir frá Sýrlandi en einnig frá öðrum löndum, leitað til Króatíu. Þar hafa stjórn­völd lýst sig reiðu­búin til að taka á móti fólk­inu og gagn­rýndu í gær harka­leg stefnu Ungverja. Margir fleiri hafa gagn­rýnt og for­dæmt aðgerðir Ungverja, meðal ann­ars hjálp­ar­sam­tök, æðsti yfir­maður mál­efna flótta­manna hjá Evr­ópu­sam­band­inu og æðsti fram­kvæmda­stjóri mál­efna flótta­manna hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum.


Samkvæmt nýj­ustu tölum hafa yfir 6.000 flótta­menn stigið fæti inn til Króatíu á síð­ustu 24 klukku­stundum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár