Trump svarar ásökunum um kvenhatur með því að segja andlit Fiorina fallegt

Donald Trump, auð­kýf­ingur og fram­bjóð­andi í for­vals­kosn­ingum Repúblikana­flokks­ins til for­seta­efnis flokks­ins, svar­aði í kapp­ræðum í gær ásök­unum um kven­hatur með því að segja and­lit Carly Fiorina, eina kven­fram­bjóð­and­ans, vera fal­legt og að hún sé fal­leg kona. Ummælin lét Trump falla eftir að stjórn­endur kapp­ræð­anna rifj­uðu upp við­tals hans við tíma­ritið Rolling Stone. Þar sagði Trump um mót­fram­bjóð­anda sinn Fiorina: „Lítið á þetta and­lit. Myndi ein­hver kjósa það? Getur þú ímyndað þér að þetta sé and­lit næsta for­seta Banda­ríkj­anna?“

Frá því að kosn­inga­bar­átta Trump hófst hefur hann ítrekað verið sak­aður um kven­fyr­ir­litngu. Þegar Fiorina var spurð í gær um álit sitt á ummælum Trump, en hún er eini kven­mað­ur­inn í hópi 16 fram­bjóð­enda Repúblik­ana, sagð­ist hún telja að konur um öll Banda­ríkin hafi heyrt skýrt hvað Trump sagði. Með orðum sínum vakti Fiorina mikla hrifn­ingu áhorf­enda í sjón­varps­sal, að því er segir í umfjöllun The Guardian um kapp­ræð­urnar og sjá má í mynd­skeið­inu hér að ofan.

Í umfjöllun New York Times um kapp­ræð­urnar segir að fram­bjóð­endur hafi skipst á að skjóta á Trump, sem mælist lang­vin­sælastur í skoð­ana­könn­unum. Þar þykir Fiorina hafa tek­ist best til og sjá mátti að orð hennar fengu á Trump. Samkvæmt umfjöllun banda­ríska blaðs­ins þá reyndu stjórn­endur kapp­ræð­anna, sem voru á sjón­varps­stöð­inni CNN, ítrekað að egna einum fram­bjóð­anda gegn öðrum með spurn­ingum sínum. Flestir brugð­ust þó við með því að beina spjótum sínum sér­stak­lega að Trump.

Stjórn­endur CNN fóru um víðan völl og meðal mál­efna voru inn­flytj­enda­mál, kjarn­orku­samn­ing­ur­inn við Íran, hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra og fjár­mögnun rík­is­ins á barn­eigna­or­lofum. Í síð­ast­nefnda mála­flokknum keppt­ust fram­bjóð­endur við að vera sem harð­ast á móti, að því er The Guardian greinir frá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár