Ungverjar lýsa yfir neyðarástandi og geta beitt hernum gegn flóttamönnum

Stjórn­völd í Ung­verja­landi lýstu í dag yfir neyð­ar­á­standi í tveimur sýslum við landa­mæri Serbíu í suð­ur­hluta lands­ins. Með því að lýsa yfir neyð­ar­á­standi er her­liði lands­ins heim­ilað að aðstoða lög­regl­una við landamæra­eft­ir­lit og aðrar skyldur sem tengj­ast straumi flótta­manna til lands­ins.

Mikið hefur gengið á við landa­mæri Ung­verja­lands og ástandið þar eld­fimt. Í gær tóku í gildi strang­ari lög um flótta­fólk sem refsi­væða það að fara ólög­lega inn í landið og heim­ila þannig lög­regl­unni að hand­taka hvern þann sem reynir að kom­ast yfir girð­ing­una sem liggur við landa­mæri Serbíu og Ung­verja­lands.

Að sögn ung­verskra stjórn­valda komu yfir níu þús­und flótta­menn inn í landið í gær, á mánu­dag, og er það nýtt met. Á mið­nætti tóku í gildi hert­ari lög og landa­mær­unum var lokað.

Gyorgy Bakondi, sér­stakur varn­ar­mála­ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, til­kynnti í dag að sér­stakt svæði hafi verið skil­greint fyrir flótta­menn við landa­mærin. Þeir sem koma þangað og óski eftir hæli verði sendir til baka til Serbíu. Skil­greinda svæðið er laga­lega ekki Ung­verja­land, sagði Bakondi við blaða­menn í dag, sam­kvæmt frá­sögn The Guardian.

Bakondi sagði að fjöldi Sýr­lend­inga sem hafi komið inn í Ung­verja­land á síð­ustu þremur mán­uðum sé 66.896. Hann benti á að flótta­menn frá 74 öðrum löndum hafi komið til lands­ins á sama tíma­bili, þar á meðal 32.900 frá Afganistan og 3.630 frá Írak. Alls hafa 171 þús­und manns óskað eftir hæli á síð­ustu þremur mán­uðum. Aðeins 300 hefur verið veitt hæli á sama tíma og 4.000 hefur verið synjað og sendir úr landi. Umsókn­ar­ferli 65 þús­und ann­arra hefur verið hætt vegna þess að umsækj­endur „hurfu“, sagði Bakondi blaða­mönnum. Um 95 þús­und umsóknir eru nú til skoð­unar.

Engin nið­ur­staða fékkst á ráð­herra­fundi Evr­ópu­sam­bands­landa og Schengen-ríkja um mál­efni flótta­manna í gær. Tillaga fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins um að 120 þús­und flótta­mönnum, sem nú halda til í Grikk­landi, Ítalíu og Ung­verja­landi, verði dreift um álf­una með bindn­andi kvótum, náði ekki fram að ganga. Ákveðið hefur verið að 40 þús­und flótta­menn flytj­ist frá Ítalíu og Grikk­landi en að öðru leyti standa við­ræður ríkj­anna óleystar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár