Egypskar öryggissveitir drápu ferðamenn fyrir slysni

Örygg­is­sveitir Egypta drápu fyrir mis­tök tólf ferða­menn í gær, í aðgerðum sem áttu að bein­ast gegn hryðju­verka­mönnum. Tólf manns til við­bótar slös­uð­ust en lifðu af þegar örygg­is­sveit­irnar réð­ust að bílum ferða­mann­anna.

Í til­kynn­ingu frá stjórn­völdum í Egypta­landi segir að ferða­menn­irnir hafi verið á svæði þar sem umferð er bönnuð. Talið var að á ferð­inni væri hópur hryðju­verka­manna og var ákveðið að ráð­ast á hann úr lofti. Ferða­mennnirnir hafi ekki látið vita af ferðum sínum.

Í umfjöllun BBC um málið eru skýr­ingar egypskra stjórn­valda dregnar í efa og hefur frétta­stofan eftir heim­ild­ar­manni að ferða­menn­irnir hafi upp­lýst um ferða­á­ætl­anir sínar og hafi um tíma haft lög­reglu­fylgd.

Tveir hinna látnu og minnst fimm hinna slös­uðu eru ferða­menn frá Mexíkó. Forseti lands­ins, Enrique Pena Nieto, tjáði sig um málið á sam­fé­lags­miðlum þar sem hann for­dæmdi árás Egypta. Hann kallar eftir ítar­legri rann­sókn atburð­unum.

Ferða­menn­irnir voru drepnir í eyði­mörk­inni í vest­ur­hluta Egypta­lands. Örygg­is­sveitir Egypta hafa þar barist gegn víga­mönnum ísla­mista og töldu bíla­lest­ina á þeirra vegum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár