Refskákin stigmagnast á milli austurs og vesturs - Rússar eiga næsta leik

Banda­ríkja­menn boð­uðu í síð­ustu viku frekara við­skipta­bann gegn Rússum en á “nýja” bann­list­anum er meðal ann­ars að finna rúss­neska ein­stak­linga og rúss­nesk fyr­ir­tæki sem sökuð eru um að hafa brotið gegn NPT-sátt­mál­anum svo­kall­aða með aðkomu sinni að útbreiðslu á kjarna­vopnum til Írans, Norður-Kóreu og Sýrlands.

Í frétta­til­kynn­ingu frá rúss­neska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, sem birt var í rúss­neskum fjöl­miðlum fljót­lega eftir að nýjasta útspil Banda­ríkja­manna var kunn­gjört, eru aðgerðir Banda­ríkja­manna for­dæmdar og enn­fremur ítrekað að Rússar muni svara í sömu mynt.

Rússnesk stjórn­völd gera sér raunar engar grillur um að við­skipta­bönn -og við­skipta­þving­anir Banda­ríkja­manna og Evr­ópu­sam­bands­ins séu á und­an­haldi á næst­unni. Þvert á móti telja Rússar mun meiri líkur á því að frek­ari við­skipta­bönn séu á döf­inni ef marka má orð Sergei Ryabkov, aðstoðar utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands. “Við reiknum með því að við­skipta­bönnin séu komin til að vera til lengri tíma og munu eflaust fær­ast í auk­ana. Það gerir alla vega eng­inn hér í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu ráð fyrir því að við­skipta­bönnin verði dregin til baka í bráð,” sagði Ryabkov í við­tali við TASS frétta­stof­una á mið­viku­dag.

[caption id="attachment_39004" align="alignnone" width="1152"] Utan­rík­is­ráðu­neyti Rúss­lands í Moskvu, er til­komu­mikil bygg­ing. Mynd: Ómar.[/caption]

Hertar aðgerðir rússneskra stjórnvalda


Rússnesk stjórn­völd hafa und­an­farið jafnt og þétt verið að auka eft­ir­lit og þyngja refsi­að­gerðir gegn ólög­legum inn­flutn­ingi á mat­vælum sem hafa verið bönnuð í kjöl­farið á við­skipta­bönnum sem sett voru ágúst 2014 og svo frekar útvíkkuð í ágúst síð­ast­liðnum.

Dúman, neðri deild rúss­neska þings­ins, er meðal ann­ars sögð vera að und­ir­búa laga­setn­ingu sem mun þyngja til muna dóma gegn smygl­urum sem ger­ast sekir um ólög­mætan inn­fluttn­ing á vest­rænum mat­vælum. Samkvæmt heim­ildum rúss­neska dag­blaðs­ins Izvestia mun refs­ingin fyrir dæmda smygl­ara hljóða upp á allt að tólf ár í fang­elsi.

Fregnir bár­ust svo af því í rúss­neskum fjöl­miðlum í lok ágúst að rúss­neska lög­reglan hafi náð að hand­sama alþjóð­legan hóp smygl­ara sem hafði verið að flytja inn osta sem eru á bann­lista, til sölu í Moskvu og Pét­urs­borg. Rússnesk yfir­völd lögðu hald á tæp­lega 500 tonn af ólög­legum osti sem var sam­kvæmt reglum í Rúss­landi eyði­lagður af mat­væla­stofn­un­inni Rosselkhoznadzor.

Reiði vegna eyðileggingar matvæla


Rosselkhoznadzor hóf skipu­lagða eyði­legg­ingu á inn­fluttum mat­vælum sem brjóta gegn við­skipta­banni Rússa þann 6. ágúst síð­ast­lið­inn eftir til­skipun frá Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta. Á heima­síðu Rosselkhoznadzor má sjá skýrslur yfir hversu miklu magni af ólög­legum mat­vælum hafi verið eytt til­tekna daga síðan aðgerð­irnar hófust.

Alex­ander Tkachev, land­bún­að­ar­ráð­herra Rúss­lands, full­yrti í nýlegu við­tali við sjón­varps­stöð­ina Rossiya 24 að hertar aðgerðir stjórn­valda væru að skila til­settum árangri. “Aðgerð­irnar mið­uðu fyrst og fremst að því að vernda heilsu almenn­ings í Rúss­landi gegn varn­ingi sem er bæði ólög­legur og óvott­aður af rúss­neskum eft­ir­lits­stofn­unum. Enn­fremur reikn­uðum við með því að hertar aðgerðir myndu valda því að smygl­ar­arnir myndu draga úr ólög­legum inn­fluttn­ingi sínum vegna auk­innar hættu á að verða fyrir fjár­hags­legu tjóni og það virð­ist einmitt vera raunin. Á rétt rúmum mán­uði hefur til­fellum af ólög­legum inn­fluttn­ingi tífalt fækkað og því mun minna af ólög­legum vörum sem þarf að eyði­leggja,” sagði Tkachev.

Aðgerð­irnar sem slíkar hafa aftur á móti vakið hörð við­brögð meðal almenn­ings í Rúss­landi sem finnst illa farið með mat­vælin, þótt ólög­leg séu. Í því sam­hengi nægir að minn­ast vöru­skorts­ins og taum­lausra verð­hækk­anna sem margir Rússar bjuggu við á tímum fyrir fall Sov­ét­ríkj­anna. Enn­fremur lifa nú til dags um fjórtán pró­sent íbúa í Rúss­landi undir fátækra­mörkum, sam­kvæmt áætl­uðum útreikn­ingum Alþjóða­bank­ans.

Á meðal mót­væg­is­að­gerða almenn­ings má nefna und­ir­skrifta­söfnun sem akti­vist­inn Olga Saveli­eva efndi til á vef­síð­unni change.org - en þar hafa nú þegar rúm­lega fjögur hund­ruð þús­und manns skorað á Rúss­lands­for­seta að fella niður lög um eyði­legg­ingu ólög­legra mat­væla og gefa þau þess í stað til fátækra og ann­arra sem minna mega sín í Rúss­landi.

[caption id="attachment_39005" align="alignnone" width="908"] Dorogomilov­sky-mark­að­ur­inn er einn af ótal mörgum úti­mörk­uðum í Mosvku þar sem gera má góð kaup á ýmsum mat­vælum. Jafnvel kemur fyrir að bönnuð mat­væli séu þar á boðstól­unum enda erfitt að vera með fullt eft­ir­lit á slíkum stöðum. Í bak­grunni má sjá háar bygg­ingar við­skipta­hverfis borg­ar­innar. Mynd: Ómar.[/caption]

Biðla til almennings um aðstoð við eftirlit


Þrátt fyrir ágrein­ing um hvað skuli gera við hin ólög­legu mat­væli þá hafa rúss­nesk stjórn­völd engu að síður biðlað til almenn­ings í Rúss­landi um aðstoð í bar­átt­unni gegn ólög­legum inn­flutn­ingi og sölu á hinum bönn­uðu vest­rænu mat­vælum.

Þannig hafi rúss­neskir eft­ir­lits­að­ilar oft staðið í ströngu við að hafa upp á vörum frá löndum sem eru í við­skipta­banni þar sem vör­urnar komi inn til Rúss­lands á fölsuðum papp­írum í gegnum þriðja aðila. Það er að segja land sem er ekki á bann­lista Rússa. Þá geti einnig reynst erfitt fyrir eft­ir­lits­að­ila að hafa hemil á sölu á ólög­legum vörum á hinum fjöl­mörgu úti­mörk­uðum í Rúss­landi sem búa ekki við sömu rekstr­ar­kröfur og mat­vöru­versl­an­irnar.

Opnað hefur því verið fyrir vakt­stöðvar sem taka sím­leiðis við ábend­ingum um sölu á ólög­legum mat­vælum og Rússar hvattir á þjóð­ern­is­legum nótum til að leggja sitt af mörkum. Stjórn­völd hafa þannig gefið almenn­ingi í Rúss­landi rullu í bar­átt­unni gegn vestr­inu. Á sama tíma og höfðað er til neyt­enda að velja frekar rúss­neskar vörur og efla þar með inn­lenda fram­leiðslu.

Camembert frá Krasnodar og Parmesan frá Pétursborg


Þegar rúss­nesk stjórn­völd boð­uðu við­skipta­bann á völdum vest­rænum mat­vælum var talað um að aðgerð­irnar myndu veita inn­lendum land­bún­aði svig­rúm til þess að blómstra. Sér­stak­lega áttu aðgerð­irnar að vera jákvæðar fyrir rúss­neska osta­fram­leið­endur því á meðal mat­vöru á bann­lista voru franskir Camembert ostar og ítalskir Parmesan -og Mozzarella ostar.

Stað­reyndin er reyndar sú að mikil vöru­þróun og fram­leiðni­aukn­ing hefur átt sér stað hjá inn­lendum osta­fram­leið­endum síðan við­skipta­bannið skall á, sam­kvæmt töl­fræði rúss­nesku hag­stof­unnar Rosstat. Þar kemur fram að fjór­falt fleiri teg­undir af rúss­neskum ostum séu nú fram­leiddar miðað við það sem var fyrir við­skipta­bannið. Þá var fram­leiðni­aukn­ing á rúss­neskum ostum upp á tæp­lega þrjá­tíu pró­sent fyrir fyrstu fjóra mán­uð­ina árið 2015 sam­an­borið við fyrstu fjóra mán­uð­ina árið 2014.

Ekki eru þó allir sam­mála um að upp­sveifl­una í inn­lendri osta­fram­leiðslu megi rekja beint til við­skipta­banns­ins. Mennta -og rann­sókn­ar­stofn­unin RANEPA hefur meðal ann­ars bent á að fall rúblunnar sé raunar miklu lík­legri skýr­ing á fram­leiðslu -og sölu­aukn­ingu á rúss­neskum ostum. Neyt­endur í Rúss­landi hafi nú ein­fald­lega mun minna milli handana vegna krepp­unnar og velji því frekar ódýr­ari rúss­neska fram­leiðslu heldur en inn­fluttar vörur sem und­an­farið hafa rokið upp í verði.

[caption id="attachment_39006" align="alignnone" width="1000"] Mikil upp­sveifla hefur átt sér stað í bæði vöru­þróun -og fram­leiðslu á rúss­neskum ostum und­an­farið. Hér má sjá Camembert ost sem fram­leiddur er í Krasn­odar og Parmesan ost frá Pét­urs­borg í Rúss­landi. Mynd: Ómar.[/caption]

Það verður þó ekki horft fram­hjá því að við­skipta­bannið hafi vissu­lega hjálpað inn­lendum osta­fram­leið­endum, sem og öðrum inn­lendum fram­leið­endum land­bún­að­ar­vöru, að styrkja mark­aðs­stöðu sína í Rúss­landi. Það verður hins vegar fróð­legt að sjá hvað ger­ist ef rúblan styrk­ist og/eða við­skipta­banni á erlendum land­bún­að­ar­vörum verði aflétt. Hvort inn­lend land­bún­að­ar­fram­leiðsla í Rúss­landi muni þá hrynja jafn fljótt og hún hefur rokið upp? Hvernig sem því líður þá er í augna­blik­inu fátt sem bendir til þess að við­skipta­bönnum verði aflétt í bráð. Gjáin á milli aust­urs og vest­urs virð­ist raunar heldur vera að breikka.

Höfundur er sagn- og við­skipta­fræð­ingur, búsettur í Moskvu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár