Ungverska kvikmyndatökukonan biðst afsökunar

Petra László, ung­verska kvik­mynda­töku­konan sem var mynduð þegar hún spark­aði í flótta­börn og felldi flótta­mann við landa­mæri Ung­verja­lands og Serbíu í bænum Röszke, hefur beðist afsök­unar á athæfi sínu. Hún seg­ist ekki vita hvað kom yfir sig, hún hafi ein­fald­lega brjálast um stund.

Kvik­mynda­töku­konan biðst afsök­unar í grein í ung­verska dag­blað­inu Magyar Nemzet í dag og The Guardian greinir frá. Hún seg­ist hafa átt erf­iða daga frá atvik­inu, trúi ekki eigin gjörðum og þver­neitar því að hún sé ras­isti. „Töku­vélin var í gangi, hund­ruð flótta­manna brut­ust í gegnum varnir lög­regl­unnar, einn þeirra hljóp að mér og ég varð hrædd,“ skrifar hún. Næst hafi hún ein­fald­lega brjálast um stund. Hún taldi að ráð­ist væri að sér og tók því til varna. „Það er erfitt að taka rétta ákvörðun á tímum þegar fólk er hrætt.“

László var í kjöl­far atviks­ins rek­inn af ung­versku sjón­varps­stöð­inni N1TV og í gær til­kynnti sak­sókn­ari í Ung­verja­landi að meint glæp­sam­legt athæfi hennar sé til rann­sóknar. Konan segir að gríð­ar­leg óvild í hennar garð í fjöl­miðlum eigi ekki rétt á sér, hún sé reiðu­bú­inn að taka ábyrgð á gjörum sínum en hún sé ekki ras­isti, heldur atvinnu­laus móðir.

Myndband af atvik­inu má sjá hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár