Junker: Evrópa bregst við flóttamannavandanum - 160 þúsund manns flytjast innan álfunnar

Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB), kynnti í morgun við­bragðs­á­ætlun við straumi flótta­manna til Evrópu. Áætlunin gerir ráð fyrir að 120 þús­und hæl­is­leit­endur flytj­ist frá Grikk­landi, Ítalíu og Ung­verja­landi til ann­arra ríkja ESB. Af þessum fjölda hæl­is­leit­enda tekur Þýska­land við um 31 þús­und, Frakk­land við um 24 þús­und manns og Spánn við um 15 þús­und manns.

Áður höfðu sam­bands­ríkin sam­þykkt kvóta sem gerði ráð fyrir að flytja um 40 þús­und hæl­is­leit­endur frá Grikk­landi og Ítalíu til ann­arra Evr­ópu­ríkja. Ný áætlun fram­kvæmda­stjórnar ESB tekur þannig alls til 160 þús­und hæl­is­leit­enda í lönd­unum tveimur auk Ung­verja­lands. Junker hvatti þjóðir sam­bands­ins til að gang­ast við settum kvótum. Hér að neðan má sjá hvernig kvóti dreif­ist milli land­anna, sam­kvæmt áætlun fram­kvæmda­stjórn­ar­innar.


Those migr­ant quotas by country. (Ireland, which has opt-out, says it will accept at least 600 relocated migrants.) pic.twitter.com/0DAwjBgHCE


— Tom Nuttall (@tom_nuttall) Sept­em­ber 9, 2015

Í árlegri stefnu­ræðu sinni fyrir Evr­ópu­þing­inu í morgun við­ur­kenndi Junker að fyrri áætlun ESB, um að lönd taki við alls 40 þús­und hæl­is­leit­endum, sé úrelt og dugi skammt. Hann sagði Evrópu vera í huga flótta­manna staður vonar og að það sé eitt­hvað sem Evr­ópu­búar eigi að vera stoltir af en ekki ótta­slegnir yfir. Þrátt fyrir mörg deilu­mál þá sé Evrópa stöðug­asti og rík­asti staður heims. Evrópa verði að hjálpa þeim sem flýji í dag stríð. Junker benti á að í dag telji flótta­fólk aðeins 0,11 pró­sent íbúa Evrópu.

„Merkel“ truflaði Junker


Heldur óvenju­legur atburður átti sér stað á Evr­ópu­þing­inu í morgun þegar ítalski þing­mað­ur­inn Gianluca Buonanno reis úr sæti sínu, með and­lits­grímu af Angelu Merkel, kansl­ara Þýska­land, og tók í hend­ina á Junker. Í umfjöllun Mashable um atvikið þá liggur ekki fyrir hvað Evr­ópu­þing­mann­inum gekk nákvæm­lega til en það vakti nokkra kátínu í þing­sal. Myndband af atvik­inu má sjá hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár