Óttast aukið ofbeldi eftir klofning innan auðugustu glæpasamtaka heims

Lög­reglu­yf­ir­völd í Japan ótt­ast öldu ofbeldis, eftir að þús­undir glæpa­manna sem áður til­heyrðu stærsta glæpa­gengi lands­ins stofn­uðu ný glæpa­sam­tök um liðna helgi. Leiðtogi nýju sam­tak­anna er hinn 67 ára gamli Kunio Inoue en hann var áður hátt settur í glæpa­geng­inu Yamaguchi-gumi.

Ný glæpa­sam­tök, sem kall­ast Kobe Yamaguchi-gumi og kjósa að not­ast áfram við sama kenni­merki og fyrr, telja um þrjú þús­und með­limi. Það eru mun færri með­limir en í Yamaguchi-gumi, sam­tök­unum sem glæpa­menn­irnir áður til­heyrðu, þar sem með­limir eru um 23.400 tals­ins, eða tæp­lega helm­ingur allra ein­stak­linga sem til­heyra skipu­lögðum glæpa­sam­tökum í Japan. Samkvæmt frétt The Guardian um málið þá er óhlýðni með­lima gagn­vart Shinobu Tsukasa, æðsta stjórn­anda Yamaguchi-gumi, ástæða klofn­ings innan þeirra raða.


Samkvæmt sam­an­tekt Forbes tíma­rits­ins frá síð­asta ári eru Yamaguchi-Gumi auð­ug­ustu glæpa­sam­tök heims, en auður þeirra var þá metin á um 80 millj­arða doll­ara. Til sam­an­burðar er auður Sinaloa, stærsta fíkni­efna­hrings Mexíkó, metin á um 3 millj­arða doll­ara.


Japanska gengið fagnar í ár hund­rað ára afmæli sínu en þau voru stofnuð árið 1915 í borg­inni Kobe, höf­uð­vígi þeirra enn þann dag í dag. Þau hafa að mest ein­blínt á „hefð­bundna“ starf­semi glæpa­gengja á borð við fíkni­efna­smygl, okur­lána­starf­semi og verndun þriðja aðila. Á und­an­förnum árum hafa sam­tökin þó fært út kví­arnar og stundað fjár­glæpi og ann­ars konar hvít­flibba­glæpi.


Jap­anskir fjöl­miðlar hafa fylgst grannt með gangi mála innan glæpa­sam­tak­anna. Lög­reglan ótt­ast að ofbeldi brjót­ist út milli gömlu og nýju sam­tak­anna, sem geti bitnað á almennum borg­urum. Svipað var uppi á ten­ingnum árið 1984, þegar upp komu deilur innan sam­tak­anna. Þá lét­ust 25 manns hið minnsta á næstu þremur árum, um 70 slös­uð­ust, þar á meðal nokkrir sem ekki tengd­ust skipu­lagðri glæp­a­starf­semi, og lög­reglan hand­tók hund­ruð glæpa­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár