Flóttamannakrísa: Bretar taka við fleirum og Þjóðverjar auka framlög

David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, mun í dag kynna áætlun stjórn­valda til að mæta straumi flótta­manna frá Sýrlandi og sögu­legri fjölgum hæl­is­leit­enda í Evrópu. Búist er við að Cameron upp­lýsi um þann fjölda flótta­manna sem Bret­landi mun taka við, en for­sæt­is­ráð­herr­ann hefur áður sagt að tekið verði við þús­undum flótta­manna og að lík­lega verði um að ræða flótta­menn sem eru ekki þegar komnir til Evrópu. BBC greinir frá þessu í dag.

Um 420 þús­und Bretar hafa nú skrifað undir áskorun til stjórn­valda um að tekið verði á móti fleiri flótta­mönnum. Á sama tíma hafa um 71 þús­und manns skrifað undir áskorun þess efnis að ekki eigi að taka á móti fleirum. Cameron tjáði sig um málið síð­asta föstu­dag og sagði að Bretland myndi leit­ast við að taka á móti flótta­mönnum sem nú búa við bág skil­yrði í flótta­manna­búðum nærri landa­mærum Sýrland. Þannig væri reynt að koma í veg fyrir að fólkið leiti til smygl­ara á leið sinni til Evrópu.


Í Þýska­landi sam­þykkti stjórn­ar­meiri­hlut­inn að auka útgjöld um sex millj­arða evra á þessu ári til að mæta komu flótta­manna og hæl­is­leit­enda. Áætlað er að um átján þús­und manns hafi komið til Þýska­lands um liðna helgi, eftir langt og strangt ferða­lag um Evrópu frá heima­löndum sínum. Alls búast þýsk stjórn­völd við komu um 800 þús­und hæl­is­leit­enda en stjórn Merkel, kansl­ara Þýska­lands, hefur lýst sig reiðu­búna að taka á móti mun fleiri flótta­mönnum en rík­is­stjórnir ann­arra Evr­ópu­ríkja. Fram kemur í frétt The Guardian að þrír millj­arðar evra fari beint til sveit­ar­stjórna til að mæta auknum húnsæðis­kostn­aði. Þremur millj­örðum evra til við­bótar verða not­aðir til að mæta kostn­aði öðrum kostn­aði við vel­ferð­ar­kerfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár