Gulllestin í Walbrzych

Tveir menn, annar pólskur og hinn þýskur, hafa fundið lest sem nas­istar földu í lok seinni heims­styrj­ald­ar­innar. Lestin, sem er full af gulli og öðrum verð­mætum, fannst djúpt inn í fjöllum nálægt borg­inni Walbrzych í Póllandi. Þetta er ekki skáld­saga eftir Alistair MacLean heldur alvöru frétt en enn sem komið er er lítið vitað um þennan fund eða hvort það er ein­hver fundur yfir­höfuð.

Stálu miklu


Það er vitað að nas­ist­arnir stálu miklu fé til að hjálpa til við að halda stríðs­rekstr­inum gang­andi. Líklega var stærstum hluta þýf­is­ins stolið beint úr rík­is­kössum þeirra landa sem þeir her­námu. Hund­ruðum millj­óna doll­ara var stolið af Frökkum, Hol­lend­ingum, Belgum og fleirum. En einnig var tölu­verðum fjár­munum stolið af ein­stak­lingum. Það er vel þekkt hvernig þeir plokk­uðu öll verð­mæti af fórn­ar­lömbum helfar­ar­innar. Minna hefur verið fjallað um þjófnað þeirra á almennum borg­urum á hernumdum svæðum. Þeir stálu ekki bara reiðufé heldur flest öllu sem þeir gátu komið í verð eins og gulli og gim­steinum, mál­verkum og öðrum list­munum, úrum, skart­gripum, hluta­bréfum, húsum og jafn­vel lóðum. Það verður aldrei vitað nákvæm­lega hversu miklu nas­ist­arnir stálu en fjár­hæð­irnar eru gíf­ur­legar og enn þann dag í dag koma upp mál þar sem deilt er um nas­ista­gull.

Sagan um gull­lest­ina hefur verið vel þekkt í Póllandi frá stríðslokum. Það eru til margar kenn­ingar um upp­runa lest­ar­innar og sú lífs­seig­asta er sú að þegar Sov­ét­menn sóttu hratt að Þýska­landi í lok stríðs­ins hafi borg­ar­yf­ir­völd í Breslau (nú Wroclaw) stolið öllu steini létt­ara af íbúum borg­ar­innar og falið það í lest­inni. Lestinni hafi síðan verið ekið út úr borg­inni og ekki sést meir. Einnig eru til sögur um að fjöllin og hæð­irnar í Walbrzych séu full af göngum sem nas­ist­arnir hafi látið grafa meðal ann­ars til þess að fela þýfi. Á þeim tíma var svæðið þýskt og hét Waldenburg en Pól­verjar fengu það til eignar eftir stríðið í skaða­bætur fyrir svæðið sem þeir misstu til Sov­ét­manna í austri. Þessar sögur hafa gert það að verkum að margir hafa freistað gæf­unnar í leit að lest­inni en eng­inn fundið neitt………fyrr en nú?

Mikil leynd


Tví­menn­ing­arnir neita að gefa upp stað­setn­ing­una á lest­inni nema það sé tryggt að þeir fái sinn skerf af verð­mæt­unum. Þeir krefj­ast 10% af verð­mæt­unum en yfir­völd í Póllandi virð­ast ekki ætla að taka því boði. Opinbera stefnan er sú að allt nas­ista­gull sem kynni að vera falið í land­inu sé eign rík­is­ins. Hafa ber einnig í huga að hell­arnir og göngin í Walbrzych eru ákaf­lega vara­söm og gas getur safn­ast þar fyrir. Ef lestin er til og menn­irnir hafi í alvöru fundið hana getur það einnig verið erfitt og hættu­legt að ná henni út úr göng­unum. Það verk gæti tekið mán­uði án þess að hafa neina vissu fyrir því hvað sé í henni. Engu að síður eru borg­ar­yf­ir­völd í Walbryzch komin í við­bragðs­stöðu og gætu hafið eigin leit að lest­inni. Opinber starfs­maður til­kynnti að lög­fræð­ingar, her­inn, lög­reglan og slökkvi­liðið væru öll komin í málið.

Polish official says ground-penetrat­ing radar has located object beli­eved to be miss­ing Nazi gold train: http://t.co/fh8vGN6rNv


— The Associated Press (@AP) August 28, 2015


Fróðlegt að sjá hvað í henni er


Ef lestin er til og hún yrði grafin upp á kom­andi mán­uðum verður fróð­legt að sjá hvað í henni er. Sögunum ber nefni­lega ekki öllum saman um farm­inn. Sumir segja að lestin sé full af gulli og gim­steinum en aðrir að hún sé hlaðin vopnum. Mögulega er þessi umrædda lest tóm. Ef verð­mæti finn­ast í henni þá hefj­ast vænt­an­lega deilur um upp­runa þeirra og hver eigi til­kall til þeirra. Pólska ríkið? Walbryzch borg? Wroclaw borg? Samtök Gyðinga? Eða ein­hverjir aðrir? Hin fræga ung­verska gull­lest, sem inni­hélt þýfi sem stolið var af ung­verskum gyð­ingum í stríð­inu, olli milli­ríkja­deilum. Verðmæti þeirrar lestar voru sett á upp­boð í New York árið 1948 og fjár­magnið notað í upp­bygg­ingu eft­ir­stríðs­ár­anna gegn vilja Ungverja og sam­taka Gyðinga. Árið 2005 fóru sam­tök Gyðinga í mál við banda­ríska ríkið og enn í dag er verið að greiða bætur vegna þess. Hvað varðar hina umræddu pólsku lest, þá er nokkuð ljóst að tví­menn­ing­arnir munu ekki fá neina pró­sentu af farm­inum, hvað þá 10%. Þeir fá ekki einu sinni nöfn sín í blöðin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár