Innlendur markaður vann ekki upp lækkanir eins og hinir evrópsku

OMXI8 úrvals­vísi­talan í Kaup­höll­inni hækk­aði um 0,5 pró­sent í dag. Ólíkt þróun helstu hluta­bréfa­vísi­talna í Evrópu, þá vann úrvals­vísi­talan hér­lendis ekki upp lækkun gær­dags­ins að sama marki og í Evrópu. Í íslensku kaup­höll­inni nam lækk­unin 2,5 pró­sentum í gær, eftir að hafa lækkað mest um rúm­lega fjögur pró­sent innan dags.

Össur, sem lækk­aði mest félaga í gær, hækk­aði þó mest skráðra félaga í dag. Alls nam hækk­unin um 4,5 pró­sentum í heldur litlum við­skiptum. Hluta­bréf í Fjar­skiptum hækk­uðum um rúm­lega þrjú pró­sent í um 200 millj­óna króna við­skiptum í dag og hluta­bréf í Icelandair Group, sem lækk­uðu í gær um 2,5 pró­sent, hækk­uðu í dag um 2,4 pró­sent í 640 millj­óna króna við­skiptum.


Þróun hluta­bréfa­verðs í Kaup­höll­inni í dag. Grænar tölur víða, eftir lækk­anir á virði allra skráðra félaga í gær. pic.twitter.com/SZqcwudsoF


— Kjarninn (@Kjarninn) August 25, 2015

Í Þýska­landi hækk­aði DAX vísi­talan um 5,3 pró­sent í við­skiptum í dag. Í Frakk­landi hækk­uðu hluta­bréf um 4,4 pró­sent, á Ítalíu um nærri sex pró­sent, á Spáni um fjögur pró­sent FTSE 100 vísi­talan í London hækk­aði um rúm­lega þrjú pró­sent. Í Grikk­landi, þar sem hluta­bréfa­mark­aðir hafa átt erfitt upp­dráttar und­an­farin miss­eri vegna Grikk­landskrís­unnar, fóru hluta­bréf á flug og hækk­aði helsta vísi­tala mark­að­ar­ins þar í landi um nærri tíu pró­sent.

Þrátt fyrir að hluta­bréf í Kína hafi lækkað mikið 2. dag­inn í röð þá smit­að­ist sá órói ekki til ann­arra heims­álfa. Við opnun í Evrópu hækk­uðu hluta­bréf og sama gerð­ist þegar Banda­rískir mark­aðir opn­uðu. Í milli­tíð­inni til­kynnti Seðla­bank­inn í Kína um stýri­vaxta­lækkun og tóku fjár­festar frétt­unum vel, ef marka má þróun hluta­bréfa­verðs í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár