Markaðurinn rétti úr kútnum en dagurinn sá 7. versti frá 2010

Hluta­bréf í öllum skráðum félögum lækk­uðu í verði í Kauphöll Íslands í dag. Við­skipta­dag­ur­inn var sá versti það sem af er ári og aðeins sex sinnum frá árinu 2010 hafa hluta­bréf í Kaup­höll­inni lækkað meira en í dag. Mest lækk­uðu bréf í Össuri og Nýherja, um 4,3 pró­sent og 4,7 pró­sent. Gerð við­skipti í félög­unum tveimur voru þó með minnsta móti og mun lægri fjár­hæðir í spil­unum en hjá öðrum félögum, þar sem við­skipti voru tölu­verð. Alls nam velta með bréf í Össuri um 23 millj­ónum og aðeins voru gerð sam­tals þriggja millj­óna króna við­skipti með bréf Nýherja.

hluta­bréfa­lækkun

|

Create infographics

Mest var sýslað með hluta­bréf í Icelandair Group í dag, eða fyrir sam­tals 1.343 millj­ónir króna. Bréf félags­ins höfðu lækkað um nærri fimm pró­sent um miðjan við­skipta­dag, en réttu tölu­vert úr kútnum eins og önnur félög. Bréf félags­ins lækk­uðu á end­anum 2,5 pró­sent frá loka­gengi síð­asta föstu­dag. Önnur félög í Kauphöll, sem sam­tals eru sextán tals­ins, lækk­uðu á bil­inu 0,7 til 3,5 pró­sent. Velta nam allt frá 155 millj­ónum til nærri fjögur hund­ruð millj­óna króna með hluta­bréf í hverju félagi.

Þrátt fyrir mikla lækkun á inn­lendum hluta­bréfa­mark­aði í dag, þá hefur úrvals­vísi­talan hækkað um ríf­lega sautján pró­sent frá ára­mótum.

[caption id="attachment_37308" align="aligncenter" width="452"] Breyting á verði hluta­bréfa í Kaup­höll­inni í dag, 24. ágúst 2015. Úrvals­vísi­talan OMXI8 lækk­aði um 2,5 pró­sent.[/caption]

Þróun hluta­bréfa­verðs í Kaup­höll­inni var í takt við þróun á mörk­uðum erlendis, sem hófst á miklu verð­falli í Kína um 8,5 pró­sent. Í Evrópu lækk­uðu helstu hluta­bréfa­vísi­tölur mikið í dag og upp­lifðu fjár­festar á meg­in­land­inu mestu lækk­anir á einu degi síðan 2011. Sama var uppi á teng­ingnum í Banda­ríkj­unum þegar viðksipti hófust þar en verð­fall hluta­bréfa þar hefur þó að nokkru leitað til baka eftir því sem liðið hefur á við­skipta­dag­inn.

European markets close weighed down by heavy losses across the board: http://t.co/jSAN1ice48 pic.twitter.com/6rioD­FpYJn — CNBC (@CNBC) August 24, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár