Allt með kyrrum kjörum í Kauphöllinni

Inn­lendur hluta­bréfa­mark­aður fylgdi eftir þróun í Evrópu af litlum krafti við opnun við­skipta í morgun. Við opnun hækk­aði OMXI8 úrvals­vísi­talan um hálft pró­sent í til­tölu­lega litlum við­skiptum, eftir miklar verð­lækk­anir í gær. Þá féll vísi­talan íslenska um 2,5 pró­sent og innan dags um rúm­lega fjögur pró­sent, en hluta­bréf náðu sér lít­il­lega á strik fyrir lok dags.

Í byrjun dags hafa mest við­skipti verið með bréf Icelandair Group, sem hefur hækkað í Kaup­höll­inni um 1,5 pró­sent, og bréf Eimskips, sem hefur hækkað um tæpt pró­sent.

Þrátt fyrir að hluta­bréf í Kína hafi lækkað snarpt annan dag­inn í röð, nú um 7,6 pró­sent, þá fylgdu evr­ópskir mark­aðir þeirri þróun ekki eftir við opnun mark­aða í álf­unni í dag og hækk­uðu nokkuð hressi­lega, eftir áföll gær­dags­ins. FTSE 100 vísi­talan í London hefur hækkað um 2,5 pró­sent í morgun, DAX vísi­talan í þýsku kaup­höll­inni hefur hækkað um ríf­lega þrjú pró­sent og CAC 40 vísi­talan í Frakk­landi hefur hækkað um 2,9 pró­sent það sem af er við­skipta­degi.

Miklar lækk­anir á mörk­uðum um allan heim í gær voru drifnar áfram af ótta fjár­festa við dvín­andi efna­hags­um­svif í Kína. Eftir ára­tuga­langt skeið upp­gangs ótt­ast fjár­festar að nú að það halli undir fæti í þessu öðru stærsta efna­hags­ríki heims og öðru stærsta inn­flutn­ings­ríki varn­ings og þjón­ustu. Frétta­stofa Bloomberg greinir frá því að auð­menn í Kína hafi orðið fyrir veru­legu tjóni við snarpa lækkun hluta­bréfa í gær. Öll ávöxtun hluta­bréfa­mark­að­ar­ins í Kína á árinu er nú horfin.


From froth to freefall: Asia's richest got crushed yester­day, reg­ion's richest lost $3.6B http://t.co/cnQx1kuSxH @JillMao @TomMetcalf123


— Devon Pend­leton (@DevonPendleton) August 25, 2015

Útlit er fyrir að mark­aðir verði grænir á lit þegar þeir opna í Banda­ríkj­unum. Í við­skiptum fyrir opnun mark­aða hefur S&P 500 vísi­talan hækkað um rúm þrjú pró­sent. Lækkun vísi­töl­unnar í gær nam nærri fjórum pró­sentum.

S&P 500 fut­ures are surging over 3% http://t.co/GyDBjDYUNS pic.twitter.com/8E2QVWUUGw


— Bloomberg Markets (@markets) August 25, 2015


sdaf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár