Mesta verðhrun á íslenskum markaði síðan 2010

Hluta­bréf í Kauphöll Íslands hafa fallið mikið í verði í dag. Úrvals­vísi­talan, sem í dag heitir OMXI8 og mælir verð­breyt­ingar á átta stærstu félög­unum í Kauphöll, hefur fallið um 3,5 pró­sent það sem af er degi og hefur mest lækkað um rúm­lega fjögur pró­sent. Svo mikið verð­fall hefur ekki orðið á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði síðan 19. maí 2010, þegar vísi­talan féll um fimm pró­sent í við­skiptum. Fara þarf aftur til mars 2009 til að finna stærra áfall á inn­lenda mark­að­inum, en í þeim mán­uði greip Fjár­mála­eft­ir­litið inn í rekstur Straums-Burða­r­áss fjár­fest­ing­ar­banka. Bankinn var þá skráður í Kaup­höll­inni og lækk­aði vísi­talan þá um tugi pró­senta.

Klukkan tvö í dag nam lækkun á gengi bréfa í Icelandair Group, Össuri og Marel á bil­inu fjórum til fimm pró­sentum. Lækkun á gengi ann­arra félaga er á bil­inu 1,7 til fjögur pró­sent. Ekkert félag hefur hækkað í við­skiptum í dag.

Hluta­bréfa­mark­aðir hafa tekið mik­inn skell um allan heim í dag. Lækkanir eru drifnar áfram af óstöð­ugum efna­hag Kína en þar í landi nam verð­fall helstu vísi­töl­unnar yfir átta pró­sentum í dag. Við opnun mark­aða í Evrópu hélt verð­hrunið áfram. Þar hefur FTSE 100 vísi­talan í London lækkað um rúm sex pró­sent. „Og dag­ur­inn er ekki á enda,“ segir grein­ing­ar­deild RBS bank­ans á Twitter. Lækkun vísi­töl­unnar var 5,3 pró­sent þegar RBS birti lista yfir mestu áföll vísi­töl­unnar frá upp­hafi.


Today's fall in the FTSE 100 is the 13th big­gest since 1984. And the day ain't over yet. #BlackMonday pic.twitter.com/w7Wp0VFZDl


— RBS Economics (@RBS_Economics) August 24, 2015

Hluta­bréf á banda­rískum mark­aði hríð­féllu við opnun mark­aða vest­an­hafs. Dow Jones vísi­talan fékk um heil þús­und stig við upp­haf við­skipta og hefur ekki verið lægri síðan í febr­úar 2014. Blaða­maður The Guardian segir að verð­fall við opnun við­skipta í Banda­ríkj­unum sé það mesta sem hann muni eftir frá falli Lehman Brothers í sept­em­ber 2008.

Ef DJ lokar svona er þetta meiri lækkun en versta dag­inn 2008. — Björn Berg (@BjornBergG) August 24, 2015


-> Another history mak­ing day Dow's largest drop in a day since 2008 Down as much as 6.5% , more than 1000 pts


— Fercan Yalinkilic (@FercanY) August 24, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár