Aðalhagfræðingur Seðlabankans: Sérfræðingar SA ættu að vita betur

Útreikn­ingar efna­hags­sviðs Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA) eru byggðir á mis­skiln­ingi og sér­fræð­ingar þess ættu að vita betur. Þetta segir Þórarinn G. Pét­urs­son, aðal­hag­fræð­ingur Seðla­banka Íslands. Hann segir stefnu­breyt­ingu sam­tak­anna í tengslum við áhrif kjara­samn­inga á verð­bólgu koma spánskt fyrir sjónir og veltir fyrir sér hvort SA hafi notað vinnu Seðla­bank­ann síð­asta vor, um áhrif launa­hækk­ana vegna gerð kjara­samn­inga, í hræðslu­á­róð­urs­skyni.

Efna­hags­svið SA, sem Ásdís Krist­jáns­dóttir veitir for­stöðu, birti í dag graf á sam­skipta­miðl­inum Twitter sem sýnir hvernig launa­vísi­tala Hagstofu Íslands þarf að þró­ast það sem eftir lifir árs svo að nýjasta efna­hags­spá Seðla­bank­ans um launa­þróun ræt­ist. Í graf­inu sam­tvinnar SA nýj­ustu upp­lýs­ingar um þróun launa­vísi­töl­unnar ann­ars vegar og nýj­ustu efna­hag­spá Seðla­banka Íslands hins vegar. Nið­ur­staða SA er sú að laun þurfi að hækka mun meira milli mán­aða en þau hafa gert allt frá árs­byrjun 2014 til þess að spá Seðla­bank­ans haldi, eða um þrjú pró­sent í hverjum mán­uði. Í grein á vef­síðu sam­tak­anna er spá Seðla­bank­ans um launa­þróun sögð frá­leit.

Laun hækka um 10,4% að með­al­tali á árinu 2015 skv. nýrri spá SÍ, þetta þýðir að mán­að­ar­hækkun launa verði 3% út árið. pic.twitter.com/VVE2YIw5q8

— Efna­hags­svið SA (@EfnahagssvidSA) August 21, 2015


Í sam­tali við Kjarnann segir Þórarinn þessa útreikn­inga SA ekki geta stað­ist og að þeir séu byggðir á mis­skiln­ingi. Þeir séu ekki útreikn­ingar Seðla­bank­ans. Í nýj­ustu Pen­inga­málum, árs­fjórð­ungs­legu spá­riti bank­ans, er því spáð að laun hækki um 10,4 pró­sent á þessu ári. Sú spá snýr þó að engu leyti að launa­vísi­tölu Hag­stof­unnar, segir Þórarinn, heldur launa­kostn­aði miðað við þjóð­hags­reikn­inga. Í spá bank­ans sé tekið til­lit til kjara­samn­inga sem und­ir­rit­aðir voru í vor en í þeim hefur meðal ann­ars verið samið um laun sem gilda aft­ur­virkt. Launa­vísi­tala Hag­stof­unnar komi því mál­inu ekk­ert við.


Launa­vísi­tala Hag­stof­unnar byggir á gögnum úr launa­rann­sókn Hag­stof­unnar. Hún hefur hækkað um nær átta pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum og um 5,8 pró­sent frá ára­mótum.


Þórarinn bendir á að enn eigi eftir að bæt­ast í bunka nýrra kjara­samn­inga á þessu ári, þar sem launa­hækk­anir geti orðið aft­ur­virkar, og hafi áhrif á næstu spár Seðla­bank­ans sem eru upp­færðar árs­fjórð­ungs­lega. Í spánni er til að mynda ekki búið að taka til­lit til nýlegrar nið­ur­stöðu gerð­ar­dóms í kjara­deilu rík­is­ins, BHM og Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga.

Hræðsluáróður Samtaka atvinnulífsins?

Þórarinn furðar sig einnig á stefnu­breyt­ingu Samtaka atvinnu­lífs­ins, en í vor ótt­uð­ust sam­tökin mjög að ef sam­tök vinnu­veit­enda yrðu við háum launa­kröfum laun­þega­hreyf­inga þá myndi verð­bólga vaxa hratt. „Í kjara­samn­ing­unum aðstoð­uðum við [Seðla­bank­inn] stjórn­völd og aðila vinnu­mark­að­ar­ins við að meta efna­hags­leg áhrif launa­hækk­ana. Það höfum við gert áður. Við birtum í pen­inga­málum í maí sviðs­mynd sem byggði á þess­ari vinnu,“ segir Þórarinn og bendir á að þá hafi SA gagn­rýnt sviðs­mynd Seðla­bank­ans fyrir að van­meta verð­bólgu­á­hrif launa­hækk­ana.


Það komi spánskt fyrir sjónir að Samtökin atvinnu­lífs­ins dragi nú spár­Seðla­bank­ans um launa­hækk­anir og verð­bólgu í efa. Hann veltir fyrir sér hvort vinna Seðla­bank­ans síð­ast­liðið vor hafi verið notuð af SA í hræðslu­á­róðri.


Samtök atvinnu­lífs­ins brugð­ust í gær við 0,5 pró­sentu stýri­vaxta­hækkun Seðla­bank­ans á mið­viku­dag og sögðu ákvörðun pen­inga­stefnu­nefndar mis­ráðna. Ein af þremur ástæðum fyrir þeirri skoðun séu „frá­leitar“ spár Seðla­bank­ans um launa­þróun á þessu ári.


„For­sendur Seðla­bank­ans um hækkun launa á þessu ári eru langt umfram mat samn­ings­að­ila á þeirri hækkun launa­kostn­aðar sem muni hljót­ast af nýgerðum kjara­samn­ingum, að því gefnu að aðrir hópar á vinnu­mark­aði semji á sam­bæri­legum nótum. Þannig gera SA ráð fyrir því að launa­vísi­tala á almennum vinnu­mark­aði hækki um 6,0-6,7% milli árs­með­al­tala 2014 og 2015, allt eftir því hversu mikið launa­skrið verður það sem eftir lifir árs. Seðla­bank­inn gerir hins vegar í sínum spám ráð fyrir 10,4% hækkun launa­vísi­töl­unnar í heild. Ef laun á almennum vinnu­mark­aði ættu að hækka um 10,4% milli árs­með­al­tala þyrftu laun á almennum vinnu­mark­aði að hækka um allt að 15% á síð­ari hluta þessa árs, sem er vit­an­lega frá­leitt. Þessi spá Seðla­bank­ans um hækkun launa­vísi­töl­unnar milli áranna 2014 og 2015 getur því ein­ungis skýrst af því að bank­inn geri ráð fyrir að launa­skrið nái áður óþekktum hæðum eða að launa­hækk­anir hjá hinu opin­bera verði miklu meiri en á almennum markað,“ segir í grein á vef­síðu Samtaka atvinnu­lífs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár