Laun hafa hækkað um nær átta prósent og munu hækka meira

Launa­vísi­tala Hagstofu Íslands hækk­aði um 1,1 pró­sent milli júní og júlí mán­aða og hefur á síð­ustu tólf mán­uðum hækkað um 7,9 pró­sent. Kaup­máttur launa jókst um eitt pró­sent milli mán­aða og hefur hækkað um 5,9 pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum, sam­kvæmt mæl­ingum Hag­stof­unnar.

Í frétt Hag­stof­unnar kemur fram í vísi­töl­unni gætir áhrifa nýgerðra kjara­samn­inga á almennum vinnu­mark­aði sem voru und­ir­rit­aðir í maí og júní síð­ast­liðnum. Þar var kveðið á um sér­staka hækun kaup­taxta, breyt­ingar á launa­töflum og launa­þró­un­ar­trygg­ingu, að lág­marki 3,2 pró­sent. Þá gætir einnig áhrifa af end­ur­skoðun starfs­mats­kerfis sveit­ar­fé­laga, sem gerð er í sam­ræmi við bókun í gild­andi kjara­samn­ingum Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og stétt­ar­fé­laga innan BSRB og og ASÍ.

Efna­hags­svið Samtaka atvinnu­lífs­ins bendir á í dag að sam­kvæmt nýrri spá Seðla­banka Íslands, sem birt var síð­asta mið­viku­dag, muni laun hækka um 10,4 pró­sent að með­al­tali á þessu ári. Það þýði að mán­að­ar­hækkun launa verði þrjú pró­sent.


Laun hækka um 10,4% að með­al­tali á árinu 2015 skv. nýrri spá SÍ, þetta þýðir að mán­að­ar­hækkun launa verði 3% út árið. pic.twitter.com/VVE2YIw5q8


— Efna­hags­svið SA (@EfnahagssvidSA) August 21, 2015


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár