Þorsteinn Már: Umræðan um Rússabann hefur verið afvegaleidd

Þor­steinn Már Bald­vins­son, einn stærsti eig­andi Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar í Nes­kaups­stað, segir inn­flutn­ings­bann Rússa á sjáv­ar­af­urðum til Rúss­lands vera ákveðið áfall fyrir íslenskan sjáv­ar­út­veg. „Því miður gerð­ist það sem við höfðum ótt­ast og varað við und­an­farna mán­uði. Við sem störfum í íslenskum sjáv­ar­út­vegi erum sorg­mædd yfir hversu afvega­leidd umræðan hefur verið. Full­yrð­ingar um að þeir sem starfa í grein­inni sjái ekki lengra en tvo mán­uði fram í tím­ann, þ.e.a.s. meðan svokölluð mak­ríl­ver­tíð stendur yfir, eru með ólík­indum,“ sagði Þor­steinn Már í ræðu á aðal­fundi Síld­ar­vinnsl­unnar sem fram fór í gær. Hann sagði sögu Síld­ar­vinnsl­una og sögu við­skipta við Rúss­lands sam­ofna.

Eins og greint var frá í gær þá ákváðu hlut­hafar Síld­ar­vinnsl­unnar að fresta ákvörðun um arð­greiðslur vegna óvissunnar í tengslum við við­skipta­bann Rússa, á hlut­hafa­fund­inum sem hald­inn var í gær. Afkoma Síld­ar­vinnsl­unnar hefur verið góð und­an­farin ár. Hagnaður fyr­ir­tæk­is­ins árið 2013 nam 5,6 millj­örðum króna og sjö millj­örðum króna árið 2012.


Í ræð­unni á aðal­fundi Síld­ar­vinnsl­unnar í gær, en hluti hennar hefur verið birtur á vef­síðu félags­ins og má lesa hér fyrir neðan, sagði Þor­steinn Már að umræðan og full­yrð­ingar ein­stakra stjórn­mála­manna og fræði­manna und­an­farna daga bygg­ist annað hvort á van­þekk­ingu eða litlum skiln­ingi.


„Staða íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja í alþjóð­legri sam­keppni um sölu mat­væla er ótrú­lega sterk og það er ekk­ert það mark­aðs­svæði í heim­inum sem menn hafa látið afskipt. Fyr­ir­tækin hafa sér­hæft sig inn á ákveðna mark­aði og íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hafa notið trausts við­skipta­vina vegna þess að lang­tíma hags­munir í mark­aðs­málum hafa verið teknir fram yfir það sem menn hafa metið sem skamm­tíma hags­muni eins og tíma­bundnar verð­sveiflur.


Þetta hafa fyr­ir­tækin gert án fjár­hags­legs stuðn­ings stjórn­valda,“ sagði hann.

Áhrifin hverfandi í Evrópu en mikil hér

Þor­steinn sagði áhrif við­skipta­þving­ana Evr­ópu­sam­bands­ins og inn­flutn­ings­bann Rússa hafa hverf­andi áhrif ann­ars staðar í Evrópu. Málið snú­ist ekki um hvort Ísland vilji vera „þjóð meðal þjóða“. Þving­an­irnar séu ekki refsi­að­gerðir og eigi ekki að hitta fyrir almenn­ing, hvorki í Rúss­landi né ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins. Við­skipta­vaþving­an­irnar feli í sér bann á við­skiptum með vopn, tak­mark­anir á við­skiptum með til­tekna fjár­mál­gern­inga og fryst­ingu eigna nokk­urra Rússa. Hvað Ísland varðar, þar sem gilda gjald­eyr­is­höft, snúi bann við kaupum og sölu her­gagna eitt eftir. Þor­steinn Már benti á að Íslandi á í engum við­skiptum með her­gögn.


„Það hefur legið ljóst fyrir mán­uðum saman hvaða áhrif þátt­taka Íslands í banni á inn- og útflutn­ingi her­gagna hefði fyrir útflutn­ing Íslands. Hefði ekki verið mögu­leiki að fá skiln­ing meðal Evr­ópu­sam­bands­þjóða og Banda­ríkja­manna fyrir því að Ísland sé á móti aðgerðum Rússa í Úkraínu án þess að vera form­legur aðili að bann­inu, þar sem við hvorki fram­leiðum eða stundum við­skipti með her­gögn?“

Þann hluta ræðu Þorsteins Más sem birtur er á vefsíðu Síldarvinnslunnar má lesa í heild hér:

„Síld­ar­vinnslan hefur í hart­nær sex ára­tugi selt afurðir sínar út um allan heim og þurft í gegnum tíð­ina að bregð­ast við breyt­ingum á innri og ytri aðstæðum. Við­skipta­sam­bönd byggj­ast upp á löngum tíma og byggj­ast á gagn­kvæmu trausti. Í traustum við­skipta­sam­böndum ganga menn saman í gegnum sveiflur. Rússar fóru með okkur í gegnum nið­ur­sveifl­una á Íslandi. Á sama hátt höfum við farið með Rússum í gegnum þeirra nið­ur­sveiflu síð­ast­liðið ár.


Afurðir eru ekki alltaf seldar á þann markað sem gefur hæsta verð á hverjum tíma en hærra verð getur stundum átt sér skýr­ingar í skamm­tíma breyt­ingum á borð við inn­byrðis breyt­ingar á gjald­miðlum. Heldur er horft til sög­unnar og lang­tíma hags­munir metnir.


Sterk alþjóð­leg staða sjáv­ar­út­vegs­ins


Staða íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja í alþjóð­legri sam­keppni um sölu mat­væla er ótrú­lega sterk og það er ekk­ert það mark­aðs­svæði í heim­inum sem menn hafa látið afskipt. Fyr­ir­tækin hafa sér­hæft sig inn á ákveðna mark­aði og íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hafa notið trausts við­skipta­vina vegna þess að lang­tíma hags­munir í mark­aðs­málum hafa verið teknir fram yfir það sem menn hafa metið sem skamm­tíma hags­muni eins og tíma­bundnar verð­sveiflur.


Þetta hafa fyr­ir­tækin gert án fjár­hags­legs stuðn­ings stjórn­valda.


Umræðan og full­yrð­ingar ein­stakra stjórn­mála­manna og fræði­manna und­an­farna daga bygg­ist annað hvort á van­þekk­ingu eða litlum skiln­ingi.


Saga Síld­ar­vinnsl­unnar og saga við­skipta við Rússland er sam­ofin. Inn­flutn­ings­bann Rússa á sjáv­ar­af­urðum til Rúss­lands er ákveðið áfall fyrir íslenskan sjáv­ar­út­veg. Því miður gerð­ist það sem við höfðum ótt­ast og varað við und­an­farna mán­uði. Við sem störfum í íslenskum sjáv­ar­út­vegi erum sorg­mædd yfir hversu afvega­leidd umræðan hefur verið. Full­yrð­ingar um að þeir sem starfa í grein­inni sjái ekki lengra en tvo mán­uði fram í tím­ann, þ.e.a.s. meðan svokölluð mak­ríl­ver­tíð stendur yfir, eru með ólík­indum.


Við skulum fara yfir um hvað málið snýst.


Bannið ekki refsi­að­gerð


Þvert á það sem ætla mætti af fjöl­miðlaum­fjöllun og yfir­lýs­ingum ráða­manna þá snú­ast aðgerðir Evr­ópu­sam­bands­ins ekki um refs­ingu. Þetta eru ekki refsi­að­gerðir. Það kemur skýrt fram í til­kynn­ingu Evr­ópu­sam­bands­ins. Jafn­framt kemur fram að þetta séu aðgerðir sem eiga ekki að hitta fyrir almenn­ing, hvorki í Rúss­landi né löndum Evr­ópu­sam­bands­ins. Það kemur einnig skýrt fram. Í umræð­unni er talað um við­skipta­þving­anir gegn Rúss­landi. Er það rétt? Hverjar eru þær?


Helstu atriðin eru:

  • Bann á inn- og útflutn­ingi á vopnum og tengdum varn­ingi.
  • Tak­mörkun á við­skiptum með til­tekna fjár­mála­gern­inga við örfá fyr­ir­tæki.
  • Bann við að lána fimm bönkum fjár­muni.
  • Frysting eigna og ferða­bann nokk­urra ein­stak­linga.

Lítum nánar á þetta:

  • Eldri samn­ingar um vopna­við­skipti falla ekki undir bannið.
  • Á Íslandi eru gjald­eyr­is­höft og því úti­lokað að íslensk fyr­ir­tæki láni eða eigi í við­skiptum með fjár­mála­gern­inga.

Eftir stendur bann við kaupum og sölu her­gagna.


Áhrifin í Evrópu hverf­andi


Rússar geta selt og keypt hvaða vöru sem er, fyrir utan her­gögn, frá löndum Evr­ópu­sam­bands­ins. Lítum til dæmis á áhrifin á Þýska­land. Þar gætti jafn­að­ar­mað­ur­inn Frank-Walter Stein­meier, utan­rík­is­ráð­herra Þýska­lands, þess að aðgerð­irnar hefðu hverf­andi áhrif á fyr­ir­tæki og ein­stak­linga bæði í Þýska­landi og Rúss­landi.


Stjórn­mála­menn og aðrir hafa margir hverjir talað um að við þurfum að vera þátt­tak­endur í við­skipta­þving­unum á Rússa vegna þess að við þurfum að treysta á aðrar þjóðir í alþjóða­sam­starfi. Í huga fólks snú­ast við­skipta­þving­anir um að bannað sé að flytja inn eða selja vörur til ákveð­ins lands og hafi veru­leg efna­hags­leg áhrif á líf fólks. Þannig væri hægt að tala um við­skipta­þving­anir ef Þjóð­verjar hefðu lokað á gasinn­flutn­ing frá Rúss­landi. Það hefði haft skað­leg áhrif. Engar slíkar við­skipta­hömlur eru í gangi.


Eigum ekki við­skipti með her­gögn


Það hefur legið ljóst fyrir mán­uðum saman hvaða áhrif þátt­taka Íslands í banni á inn- og útflutn­ingi her­gagna hefði fyrir útflutn­ing Íslands. Hefði ekki verið mögu­leiki að fá skiln­ing meðal Evr­ópu­sam­bands­þjóða og Banda­ríkja­manna fyrir því að Ísland sé á móti aðgerðum Rússa í Úkraínu án þess að vera form­legur aðili að bann­inu, þar sem við hvorki fram­leiðum eða stundum við­skipti með her­gögn?


Þetta snýst ekki um það hvort við viljum vera „þjóð meðal þjóða“ og alls ekki ef mark­mið Evr­ópu­sam­bands­ins eru höfð í huga og lesin. Það er ómak­legt að ráð­ast á ein­staka aðila og ásaka sjáv­ar­út­veg­inn um að stjórn­ast af skamm­tíma­hags­munum,vilja ráðskast með utan­rík­is­stefn­una, sýna mann­rétt­indum skeyt­ing­ar­leysi og hunsa sam­fé­lags­lega ábyrgð.


Hefur íslenskur sjáv­ar­út­vegur gert athuga­semdir við afstöðu íslenskra stjórn­valda gagn­vart fram­ferði Rússa í Úkraínu? Nei. Trúa menn því virki­lega að þeir sem starfi í sjáv­ar­út­vegi séu á móti vopna­sölu­banni á Rússland? Það getur ekki verið.


Gagnrýni sjáv­ar­út­vegs­ins snýr að því að tím­inn var ekki nýttur til að ígrunda hvað væri í húfi, hvaða þýð­ingu Rúss­lands­mark­aður hefur fyrir Ísland og bera saman hvað þýð­ingu það hefði fyrir Ísland að vera aðili að vopna­sölu­banni á Rússland miðað við aðrar þjóðir. Hefðu Íslend­ingar ekki getað komið sjón­ar­miðum sín­um­varð­andi­að­gerðir Rússa í Úkraínu með öðru móti á fram­færi án þess að skaða eigin hags­muni eða fólks í Rúss­landi­þar sem ekki er um refsi­að­gerð að ræða af hálfu Evr­ópu­sam­bands­ins?


Reyndi á skiln­ing banda­manna okkar?


Myndi það ekki njóta skiln­ings banda­manna okkar og vera í sam­ræmi við áherslur Evr­ópu­sam­bands­ins um að lág­marka tjón almenn­ings og fyr­ir­tækja, að nægj­an­legt væri að Ísland lýsti yfir skýrri afstöðu þó svo ekki væri skrifað undir vopna­sölu­bann sem vitað var að myndi leiða til inn­flutn­ings­banns á mik­il­vægar útflutn­ings­vörur Íslands?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár