Síldarvinnslan: Risinn í Austri

Á dög­unum var til­kynnt um kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Gull­bergi ehf. á Seyð­is­firði. Jafn­framt keypti Síld­ar­vinnslan, sem er með höf­uð­stöðvar og rætur í Nes­kaups­stað, hús­næði og búnað fisk­vinnsl­unnar Brim­bergs sem var í eigu sömu aðila. Með þessum kaupum er Sílda­vinnslan búin að festa sig í sessi sem risi í íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Adolf Guð­munds­son, for­maður Lands­sam­bands íslenskra útgerð­ar­manna (LÍÚ) hefur verið fram­kvæmda­stjóri Gull­bergs árum saman og meðal eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins.

Fram kemur í til­kynn­ingu Síld­ar­vinnsl­unnar að áfram verði gert út frá Seyð­is­firði og lögð áhersla á að tryggja áfram­hald­andi fram­leiðslu­störf tengd sjáv­ar­út­vegi á Seyð­is­firði. Fyrir rekur Síld­ar­vinnslan fiski­mjöls­verk­smiðju á staðnum.

Hinir stóru stækka


Með kaup­unum heldur sam­þjöpp­unin áfram í íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Hinir stóru verða stærri og öfl­ugri. Það eru ekki síst stóru sam­settu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin sem eiga kvóta í upp­sjávar- og botn­fisk­teg­undum sem hafa stækkað á meðan litlum og með­al­stórum útgerðum hefur fækkað.

Afla­heim­ildir hafa safn­ast saman á nokkrum stöðum þar sem öfl­ug­ustu fyr­ir­tækin eru (dæmi nefnd í svig). Nú eru stærstu útgerð­ar­stað­irnar Vest­manna­eyjar (Ísfélag Vest­manna­eyja og Vinnslu­stöðin), Nes­kaup­staður (Síld­ar­vinnslan) , Akureyri (Samherji), Sauð­ár­krókur (FISK Seafood), Horna­fjörður (Skinney-Þinganes), Grinda­vík (Þorbjörn og Vísir) og Reykja­vík (Brim og HB Grandi). Starf­semi fyr­ir­tækja á þessum stöðum teygir sig hins vegar víða um landið.

Góð afkoma


Afkoma Síld­ar­vinnsl­unnar hefur verið góð und­an­farin ár, svo ekki sé meira sagt. Þar vega þungt hag­stæðar aðstæður í upp­sjáv­ar­veiðum og vinnslu. Það er ekki síst til­koma mak­ríls í lög­sög­unni sem hefur haft veru­lega jákvæð áhrif á afkomu fyr­ir­tæk­is­ins. Hagnaður fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra nam 5,6 millj­örðum króna og sjö millj­örðum króna árið 2012. Heild­ar­starfs­manna­fjöldi fyr­ir­tæk­is­ins var þá 230 manns en þeim hefur nú fjölgað með útvíkkun á starf­sem­inni, meðal ann­ars með kaupum á Gull­bergi.

Síld­ar­vinnslan hefur einnig styrkt sig í bol­fiski með kaupum á kvóta á síð­ustu árum. Þar ber hæst kaup á Bergi-Huginn í Vest­manna­eyjum, sem enn er reyndar deilt um fyrir dóm­stólum. Þá keypti Síld­ar­vinnslan hluta af kvóta Stál­skips í Hafn­ar­firði. Auk þess er félag í eigu Síld­ar­vinnsl­unnar, SVN eigna­fé­lag ehf. stór hlut­hafi í trygg­ing­ar­fé­lag­inu Sjóvá og hefur sú fjár­fest­ing skilað góðri ávöxtun nú þegar.

Með kaup­unum á Gull­bergi er Síld­ar­vinnslan orðin risi í íslenskum sjáv­ar­út­vegi með umtals­verðan kvóta í flestum helstu fiski­teg­undum við Ísland. Helstu eig­endur Síld­ar­vinnsl­unnar eru Samherji (45% hlutur), Gjögur (34%) og SÚN í Nes­kaup­stað (11%). Þess má geta að stór hlut­hafi í Gjögur er Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair Group og for­maður stjórnar Samtaka atvinnu­lífs­ins.

Stækkar stöðugt


Samherji og Gjögur hafa einnig bætt við sig afla­heim­ildum á síð­ustu árum, t.a.m. með kaup­unum á Stálskip í upp­hafi árs­ins. Sam­an­lögð kvóta­eign þess­ara þriggja félaga sem tengj­ast Síld­ar­vinnsl­unni, þ.e. Samherja, Síld­ar­vinnsl­unnar og Gjögurs, er orðin meiri en kvóta­eign stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tækis lands­ins, HB Granda. Fiski­stofa gerði sam­þjöppun afla­heim­ilda að umtals­efni nýlega í sam­an­tekt.

Í til­kynn­ingu Síld­ar­vinnsl­unnar kemur ekki fram hvert kaup­verðið var á Gull­bergi. Samkvæmt Fiski­stofu átti Gullberg tæp 2.900 þorskígildi í upp­hafi fisk­veiði­árs­ins. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er algengt verð á þorskígildistonni í ein­stökum við­skiptum nú um 2.200-2.400 kr/kg. Virði kvót­ans gæti því hafa verið um 6,6 millj­arðar. Það gefur vís­bend­ingu um hversu umfangs­mikil þessi við­skipti voru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár