Útflutningur til Rússlands féll á fyrri helmingi árs

Verðmæti útflutn­ings á íslenskum afurðum til Rúss­lands var um fjöru­tíu pró­sent lægra á fyrri helm­ingi árs 2015 en á sama tíma­bili 2014. Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2015 nam útflutn­ings­verð­mæti til Rúss­lands um 7.045 millj­ónum króna en verð­mæti varn­ings á fyrstu sex mán­uðum árs 2014 var 11.421 milljón króna.

Útflutn­ingur í júní 2015 var þó meiri en í sam­an­burði við júní 2014, eða 1.886 millj­ónir króna sam­an­borið við 543 millj­ónir í fyrra. Sveiflur milli mán­aða geta því verið nokkrar. Á síð­ustu árum hefur útflutn­ings­verð­mæti til Rúss­lands verið hærra á seinni helm­ingi árs og skýrist meðal ann­ars af veiði­tíma­bilum upp­sjáv­ar­fisks.


Efnhagur Rúss­lands hefur átt undir högg að sækja und­an­farin miss­eri. Í síð­ustu viku var greint frá því að lands­fram­leiðsla lands­ins féll um 4,6 pró­sent á 2. árs­fjórð­ungi 2015. Í fyrsta sinn frá 2009 er kreppa í Rúss­landi, sem ekki síst má rekja til hríð­fallandi olíu­verðs sem stendur undir 50 doll­urum á tunnu í dag. Við­skipta­þving­anir Vest­ur­landa hafa einnig bitið og er það mat Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins að hag­vöxtur í Rúss­landi hafi minnkað um eitt til eitt og hálft pró­sentu­stig vegna við­skipta­þving­ana, frá því þær voru settar á fyrir rúmu ári síðan.


Til að sýna mátt sinn, og sam­tímis auka inn­lenda fram­leiðslu, lögðu Rússar bann á inn­flutn­ing mat­væla frá sömu ríkjum og beita þá við­skipta­þving­unum. Eins og kunn­ugt er gildir bannið nú einnig fyrir Ísland. Bannið tók gildi í síð­ustu viku.


Hag­stofan rann­sakar áreið­an­leika


Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar nam útflutn­ingur til Rúss­lands um 29,1 millj­arði króna á síð­asta ári (þar af 11,4 millj­arðar á fyrri helm­ingi árs­ins). Stór hluti útflutn­ings, nærri 24 millj­arðar króna, eru sjáv­ar­af­urðir, helst mak­ríll, loðna og síld.


Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) hafa sagt að tölur Hag­stof­unnar gefi ekki rétta mynd af útflutn­ingi sjáv­ar­af­urða til Rúss­lands. Samtökin segja töl­una hærri. Um 40 pró­sent af verð­mætum sjáv­ar­af­urða til Hollands fer áfram til Rúss­lands og 80 pró­sent af verð­mætum sem flutt er til Litháen fer áfram til Rúss­lands, segir SFS.


Kolbeinn Árnason, fram­kvæmda­stjóri SFS, sagði í Morg­un­út­gáfu Rásar 2 í morgun að við ákvörðun íslenskra stjórn­valda við að styðja aðgerðir Vest­ur­landa gegn Rúss­landi hafi hags­munir Íslands verið van­metnir.


Hagstofa Íslands birti í gær yfir­lit yfir vöru­skipti við Rússland á fimmtán ára tíma­bili, frá 1999 til 2014. Útflutn­ingur til Rúss­lands hefur á þessum tíma marg­fald­ast, frá því að nema um 2,3 millj­örðum árið 2004 yfir í nærri 30 millj­arða 2014.


Í umfjöllun Hag­stof­unnar, sem byggir á toll­skýrslum, er fjallað um áreið­an­leika taln­anna og tekið fram að útflytj­endum beri að greina frá því í toll­skýrslum hvar varan endar. „Hag­stofan byggir sínar tölur á þeim upp­lýs­ingum. Til að draga úr óvissu í þessum efnum hefur Hag­stofan hafið rann­sókn á nákvæmni upp­lýs­inga um end­an­legt ákvörð­un­ar­land útflutn­ings í toll­skýrslum. Sú rann­sókn bein­ist þó ekki að Rúss­landi sér­stak­lega heldur fremur að háu hlut­falli Hollands í útflutn­ings­skýrslum,“ segir Hag­stofan.


Nærri 30 pró­sent af öllum útflutn­ingi Íslands árið 2014 fór til Hollands, þar sem stærsta skipa­höfn Evrópu er, í Rott­er­dam.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár