Gríska þingið samþykkir neyðarlán í andstöðu hluta stjórnarþingmanna

Gríska þingið sam­þykkti í morgun sam­komu­lag við Evr­ópu­sam­bandið um neyð­ar­lán með kvöðum um aðhalds­rekstur í rík­is­fjár­málum. Neyð­ar­lánið var sam­þykkt á þing­inu eftir langan fund sem stóð í alla nótt. Þar mætti Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, meðal ann­ars and­stöðu eigin flokks­manna í flokki sínum Syriza. Í umfjöllun á vef The Guardian segir að rök­ræður næt­ur­innar hafi á tíðum verið fjar­stæðu­kenndar og hávaða­samar.

Vegna and­stöðu um fjöru­tíu þing­manna Syriza, Yannis Varoufakis fyrrum fjár­mála­ráð­herra lands­ins þeirra á meðal, þurfti Tsipras að treysta á stuðn­ing stjórn­ar­and­stöðu­flokka. Eftir mikið karp og fund­ar­höld var sam­komu­lagið loks sam­þykkt örugg­lega, með 222 atkvæðum gegn 64.

Drög að neyð­ar­lán­inu þarn­ast nú und­ir­skriftar fjár­mála­ráð­herra evru­ríkj­anna, sem funda vegna máls­ins síðar í dag, föstu­dag. Auk þess krefst sam­komu­lagið sam­þykkis nokk­urra þjóð­þinga, meðal ann­ars í Þýska­landi, stærsta kröfu­hafa gríska rík­is­ins.

Lána­pakk­inn á að bjarga Grikkjum frá greiðslu­falli og lík­legri útgöngu úr evru­sam­starf­inu í kjöl­farið. Neyð­ar­lánið hljóðar upp á um 85 millj­arða evra. Það þarf að koma í tæka tíð fyrir 20. ágúst, þegar 3,2 millj­arða evra lána­greiðsla frá Seðla­banka Evrópu fellur á gjald­daga. Neyð­ar­lán­inu fylgja miklar kvaðir fyrir Grikki, þeim er gert að skera niður í útgjöldum rík­is­ins og mikið eft­ir­lit verður haft með að Grikkir haldi áætlun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár