Tap Hafnarfjarðar meira en búist var við

Halli af rekstri Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staðar var 389 millj­ónir króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Áætlanir bæj­ar­ins gerðu ráð fyrir um 80 millj­óna króna tap­rekstri. Frávikið er sagt vera vegna ófyr­ir­sjá­an­legrar end­ur­greiðslu á eft­irá­greiddu útsvari að fjár­hæð um 400 millj­ónir króna. Aðrar tekjur voru yfir áætlun vegna sölu­hagn­aðar hluta­bréfa í HS Veitum. Rekstur mála­flokka var í takt við áætl­anir, segir í til­kynn­ingu frá Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­stað vegna birt­ingar árs­hluta­upp­gjörs.

Sjálf­stæð­is­flokkur og Björt fram­tíð mynda meiri­hluta í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar. Bæj­ar­stjóri er Haraldur L. Har­alds­son.

Í til­kynn­ingu bæj­ar­ins segir að erfitt verði að ná áætlun árs­ins um jákvæða rekstr­ar­af­komu. „Vegna ofan­greinds frá­viks og fyr­ir­sjá­an­legra áhrifa af breyttu starfs­mati, sem mun hafa í för með sér útgjalda­aukn­ingu að and­virði um 200 millj­óna króna, er ljóst að erfitt verður að ná áætl­unum árs­ins um jákvæða rekstr­ar­af­komu að fjár­hæð 219 millj­ónir króna.

Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staður mun leggja ríka áherslu á aðhald í rekstri og eins og fram hefur komið í til­kynn­ingum er verið að vinna að umbót­ar­á­ætlun til að bæta rekst­ur­inn en áhrifa hennar mun ekki gæta nema að óveru­legu leyti á árinu 2015,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Eignir Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staðar nema um 37,8 millj­örðum króna og eignir A og B hluta nema sam­tals um 48 millj­örðum króna. Skuldir nema um 34 millj­örðum og með B hluta nema þær um 40 millj­örðum króna.

Í nýlegri skýrslu Íslands­banka um fjár­mál íslenskra sveit­ar­fé­laga var Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staður eitt þeirra sveit­ar­fé­laga sem búa við hvað versta fjár­hags­stöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár