Hafnarfjörður, Breiðdalshreppur og Reykjanesbær standa verst sveitarfélaga

Rekstur Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staðar, Reykja­nes­bæjar og Breið­dals­hrepps stendur ekki undir skuld­setn­ingu sveit­ar­fé­lag­anna að óbreyttu. Sveit­ar­fé­lögin þrjú koma verst út í nýrru skýrslu Íslands­banka um fjár­mál íslenskra sveit­ar­fé­laga 2014. Í skýrsl­unni er skulda­staða þeirra meðal ann­ars borin saman við veltufé sem hlut­fall af tekjum. Í Hafn­ar­firði, Breið­dals­hreppi og Reykja­nesbæ er veltufé sem hlut­fall af tekjum undir 7,5 pró­sent og skula­við­mið meira en 150 pró­sent. Það er hæst hjá Reykja­nesbæ, um 240 pró­sent án HS Veita. Rekstur um 88 pró­sent sveit­ar­fé­laga stendur skuldum og skuld­bind­ingum. Það er lægra hlut­fall en árið 2014 þegar rekstur hjá 97 pró­sent sveit­ar­fé­laga stóð undir skuldum og skuld­bind­ingum.

„Ef skulda­við­mið sveit­ar­fé­lags er 150% og veltufé frá rekstri lægra en 7,5% af heild­ar­tekjum er lík­legt að það sveit­ar­fé­lag geti ekki staðið við greiðslu af afborg­unum lána öðru­vísi en með við­bótar lán­töku eða öðru inn­streymi fjár­magns, eins og til dæmis sölu eigna,“ segir í skýrsl­unni sem var gefin út í dag. Þar er sveit­ar­fé­lögum stillt í fjóra hópa eftir fjár­hags­stöðu þeirra. Flest sveit­ar­fé­laga eru í hópi þar sem skuld­setn­ing er lítil og rekstur stendur vel undir núver­andi skuld­setn­ingu, eða um 70 pró­sent sveit­ar­fé­laga. Reykja­vík­ur­borg til­heyrir hópnum „mikil skuld­setn­ing en rekstur stendur undir núver­andi skuld­setn­ingu“. Ef Orku­veita Reykja­víkur er und­an­skilin þá er Reykja­vík­ur­borg í flokki sveit­ar­fé­laga þar sem skuld­setn­ing er lítil en rekstur stendur ekki undir skuld­setn­ingu að öllu jöfnu.


Meðal helstu nið­ur­staða skýrsl­unnar er sam­dráttur rekstr­ar­hagn­aðar um 19 pró­sent milli áranna 2013 og 2014 hjá sveit­ar­fé­lögum lands­ins. Sam­drátt­ur­inn skýrist einna helst af sam­drætti í rekstr­ar­hagn­aði A-hluta, sem dróst saman um tæp­lega 12 millj­arða eða um 44 pró­sent. Helst skýrist þetta af sam­drætti rekstr­ar­hagn­aðar hjá Reykja­vík­ur­borg um 6,5 millj­arða milli ára. Bent er á að hlut­fall skulda sveit­ar­fé­laga á móti eignum hafi dreg­ist tals­vert saman frá því það náði hámarki í 74 pró­sentum árið 2009. Hlut­fallið er 61 pró­sent árið 2014 og því hefur dregið úr skuld­setn­ingu sveit­ar­fé­lag­anna síðan þá.


Skýrsla Íslands­banka um sveit­ar­fé­lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár