Yfirmaður hjá Össuri innleysir yfir hundrað milljónir í hagnað af kauprétti

Þor­valdur Ingv­ars­son, for­stöðu­maður þró­un­ar­sviðs og rann­sókna hjá Össuri hf. stoð­tækja­fram­leið­anda, virkj­aði í dag kaup­rétt að hluta­bréfum í félag­inu að and­virði um 160 millj­ónir króna að mark­aðsvirði. Hagnaður hans af sölu hluta­bréf­anna nemur um 106 millj­ónum króna. Sam­komu­lagið um kaup­rétt­inn er frá því í maí 2012, þegar verð hluta­bréf­anna stóð mun lægra en það gerir í dag.

Þor­valdur fékk 350 þús­und hluti á geng­inu 8,59 danskar krónur á hlut, en Össur er skráð á markað bæði á Íslandi og í Danmörku. Gengi bréf­anna á mark­aði í dag er 2,8 sinnum hærra, eða um 23,9 danskar krónur á hlut. Hann seldi stærstan hluta bréf­anna í Kaup­höll­inni hér­lendis, sam­kvæmt til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar í dag, á geng­inu 480 krónur á hlut. Mark­aðsvirði þess hlutar sem hann seldi nemur um 165 millj­ónum króna. Hagnaður hans af kaup­rétt­inum nemur því um 106 millj­ónum króna.


Kaup­rétt­ar­sam­komu­lag við Þorvald var gert í maí 2012, á svip­uðum tíma og gert var sam­bæri­legt sam­komu­lag við Jón Sig­urðs­son, for­stjóra félags­ins. Jón virkj­aði sinn kaup­rétt fyrr í þessum mán­uði, og nam hagn­aður hans af við­skipt­unum um 370 millj­ónum króna.


Fram kemur í til­kynn­ingu til Kaup­hallar að Þor­valdur á eftir við­skiptin 8.646 hluti í Össuri, eftir að hafa selt 343.911 hluti í dag. Þá á hann kaup­rétt að um 225 þús­und hlutum. Mark­aðsvirði kaup­rétt­ar­ins sem enn er óinn­leystur er um 250 millj­ónir króna, miðað við gengi við­skipt­anna í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár