Forstjóri Össurar innleysti kauprétt og hagnaðist um 370 milljónir króna

Jón Sig­urðs­son, for­stjóri Össurar stoð­tækja­tækja­fram­leið­anda, inn­leysti í dag kaup­rétt að hluta­bréfum í félag­inu að mark­aðsvirði um 580 millj­ónir króna. Hagnaður hans af kaup­rétt­inum nemur um 370 millj­ónum króna, eða 18,7 millj­ónum danskra króna. Í til­kynn­ingu um við­skiptin til Kaup­hall­ar­innar kemur fram að kaup­rétt­ur­inn teng­ist sam­komu­lagi frá því í apríl 2012 milli félags­ins og for­stjór­ans.

Jón fékk bréfin á geng­inu 8,55 danskar krónur á hlut, sem var gengi bréf­anna á mark­aði í apríl 2012. Virði félags­ins hefur hækkað mikið síðan þá og seldi Jón hluta­bréfin á 23,5 danskar krónur á hlut, það er mark­aðs­gengi bréf­anna í dönsku kaup­höll­inni í dag. Félag er tví­skráð á Íslandi og í Danmörku. Inn­leystur hagn­aður hans, það er mun­ur­inn á kaup­geng­inu 8,55 danskar krónur á hlut og sölu­geng­inu 23,5 danskar krónur á hlut, nemur tæp­lega 18,7 millj­ónum danskra króna, jafn­virði um 370 millj­óna króna.


Í síð­asta mán­uði greindi Við­skipta­blaðið frá því að mán­að­ar­laun Jóns hafi verið um 40 sinnum hærri en með­al­laun á íslenskum vinnu­mark­aði á síð­asta ári. Samkvæmt árs­skýrslu Össurar voru tekjur hans um 18,4 millj­ónir króna á mán­uði. Með­al­laun á Íslandi voru á sama tíma um 454 þús­und krónur á mán­uði.


Jón hefur um ára­bil verið í hópi launa­hæstu for­stjóra lands­ins og birst efst eða ofar­lega á listum í tekju­blöðum DV og Frjálsrar versl­unar. Nafn hans er ekki að finna á list­unum í ár þar sem hann er með skráð lög­heim­ili sitt erlendis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár