Álverð hefur neikvæð áhrif á HS Orku en rekstur góður, segir forstjórinn

Hagnaður HS Orku á fyrri helm­ingi árs nam 75 millj­ónum króna, sam­an­borið við 715 millj­óna króna hagnað á sama tíma­bili 2014. Rekstr­ar­tekjur juk­ust þó milli tíma­bil­anna um sjö pró­sent og námu 3.827 millj­ónum á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2015. Virði afleiða, það er fram­tíð­ar­virði orku­sölu­samn­inga sem tengj­ast álverði, voru lækk­aðar í bókum fyr­ir­tæk­is­ins um 1.239 millj­ónir króna á fyrri helm­ingi árs­ins. Geng­is­tap félags­ins á tíma­bil­inu nam 282 millj­ónum króna, sam­an­borið við geng­is­hagnað á fyrri helm­ingi árs 2014 upp á 221 milljón.

„Annars vegar er álverð lágt og hins vegar hefur doll­ar­inn styrkst á móti krónu,“ segir Ásgeir Mar­geirs­son, for­stjóri HS Orku, í sam­tali við Kjarnann. Fram­tíð­ar­virði orku­sölu­samn­inga byggir á spám um álverð sem hafa verið lækk­aðar að und­an­förnu, sam­hliða tölu­verðri lækkun heims­mark­aðs­verð á áli.

„Rekst­ur­inn gengur vel, raf­orku­salan gengur vel og efna­hag­ur­inn er sterkur,“ segir Ásgeir og bætir því við að það skipti meiru máli en nei­kvæðar breyt­ingar á fjár­magnsliðum. „Raun­tölur eru góðar,“ segir hann.

Í til­kynn­ingu um upp­gjörið til Kaup­hall­ar­innar kemur fram að tekjur juk­ust milli fyrri árs­helm­inga 2015 og 2014 um 244 millj­ónir en rekstr­ar­kostn­aður jókst um 98 millj­ónir. „Tekjur hafa auk­ist bæði frá smá­sölu­mark­aði og frá stórnot­endum. Rekstr­ar­kostn­aður orku­vera hefur auk­ist nokkuð, orku­kaup hafa auk­ist tals­vert og flutn­ings­kostn­aður hækkað sömu­leiðis,“ segir í til­kynn­ing­unni. Rekstr­ar­hagn­aður fyrir fjár­magnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) jókst um 13 pró­sent milli tíma­bili og nam alls 1.515 millj­ónum á fyrri helm­ingi árs 2015. Eig­in­fjár­hlut­fall HS Orku í lok júní 2015 var 58,8 pró­sent.

HS Orka fram­leiðir raf­orku og selur í smá­sölu og til stórnot­enda. Meðal eigna fyr­ir­tæk­is­ins er 30 pró­sent hlutur í Bláa lón­inu. HS Orka er í einka­eigu, félagið Magma Energy á tvo þriðju hluta hluta­fjár í HS Orku og félagið Jarð­varmi, sem aftur er í eigu líf­eyr­is­sjóða, á þriðj­ung hluta­fjár.

Framtíðarvirði lækkar


HS Orka selur Norð­ur­áli raf­orku til álf­ram­leiðslu, verðið í doll­urum, og er tengt álverði á heims­mark­aðs­verði. Styrking doll­ars­ins og lækkun álverðs hefur því nei­kvæð áhrif á tekjur HS Orku. Þess vegna er 282 millj­óna geng­is­tap bókað á fyrri helm­ingi árs og fram­tíð­ar­virði orku­sölu­samn­inga lækkað um 1.200 millj­ónir króna í bókum HS Orku.

Fjallað er um þróun álverðs í Frétta­blað­inu í dag, þar sem fram kemur að heims­mark­aðs­verðs hefur lækkað um tæp 18 pró­sent frá því í nóv­em­ber 2014.

Mikill kostnaður við gerðardóm


Norðurál, við­skipta­vinur HS Orku, hefur lengi unnið að bygg­ingu álvers í Helguvík. Samn­ingar voru und­ir­rit­aðir árið 2007 um að HS Orka veiti álver­inu raf­orku. Þegar álverið reis ekki taldi HS Orku samng­ing­inn ekki lengur í gildi. Því er Norðurál ósam­mála og fer málið fyrir sér­stakan gerð­ar­dóm. Hann kemur saman í apríl 2016. HS Orku getur ekki selt ork­una annað áður en nið­ur­staða gerð­ar­dóms liggur fyrir, en orku­sölu­samn­ing­ur­inn sem um ræðir er upp á 150 MW af orku. Hluti raf­orku HS Orku er þannig í dag bundin í óbyggðu álver.

Í sam­tali við Kjarnann vildi Ásgeir ekki segja nákvæm­lega hvað gerð­ar­dóm­ur­inn myndi kosta HS Orku, en sagði hann gæti farið „í þriggja stafa tölu“ og á hann þá við að kostn­aður geti numið hund­ruðum millj­óna króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár