HS Orka getur ekki tekið þátt í stóriðjuverkefnum - Föst í samningi við óbyggt álver í Helguvík

HS Orka getur hvorki selt raf­magn sem fyr­ir­tækið fram­leiðir eða nýtt virkj­ana­kosti í nýt­ing­ar­flokki til að búa til nýtt raf­magn til orku­frekra verk­efna sökum þess að það er bundið í orku­sölu­samn­ingi vegna álvers í Helguvík. HS Orka vill vera þátt­tak­andi í orku­frekum verk­efnum sem til standa á Íslandi en getur það ekki á meðan að Helgu­vík­ur­samn­ing­ur­inn er í gildi. Þetta er haft eftir Ásgeiri Mar­geirs­syni, for­stjóra HS Orku, í Frétta­blað­inu í dag.

Kjarninn greindi frá því í ágúst 2014 að HS Orka hefði hafið gerð­ar­dóms­ferli til að losna undan orku­sölu­samn­ingum sem fyr­ir­tækið und­ir­rit­aði við Norðurál í apríl 2007 vegna fyr­ir­hug­aðs álvers í Helguvík. Vinni HS Orka málið má telj­ast full­víst að álver Norð­ur­áls í Helguvík sé end­an­lega úr sög­unni. Málsrök voru þau að ákvæði orku­sölu­samn­ings­ins hafi ekki verið upp­fyllt og þar með sé hann ekki lengur í gildi. Norðurál telur þetta ekki rétt og ætlar að taka til varna. Nið­ur­staða í gerða­dóms­mál­inu á að liggja fyrir sum­arið 2016. Þangað til gerir HS Orka lítið.

Orka bundin í óbyggðu álveri


Ásgeir segir við Frétta­blaðið að vilji að "sjálf­sögðu selja orku eins og unnt er, Norð­ur­áli eða öðrum, en staðan er sú að HS Orka gerði samn­ing við Norðurál Helguvík um umtals­vert mikla orku og uppi er ágrein­ingur um þýð­ingu hans í dag, nú þegar álverið er hvergi nærri byggt og ekki unnt að afhenda orku þangað."

Orku­sölu­samn­ing­ur­inn sem um ræðir er upp á 150 MW af orku. HS Orka getur ekki selt þá orku til ann­ars kaup­anda á meðan að hann er í gildi. Í dag, sjö árum eftir að samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður, er fyr­ir­tækið því bundið inni í sam­komu­lagi með þorra þeirrar orku sem það telur sig geta fram­leitt og selt í nán­ustu fram­tíð sem virð­ist ekk­ert vera að fara að verða að veru­leika.

Hafa áður farið fyrir gerðardóm


Þetta er ekki í eina skiptið sem Norðurál og HS Orka hafa farið fyrir gerð­ar­dóm. Norðurál stefndi orku­fyr­ir­tæk­inu fyrir slíkan í Svíþjóð árið 2010. Nið­ur­staða hans, sem var kunn­gjörð í des­em­ber 2011, var sú að orku­sölu­samn­ing­ur­inn ætti að standa en að hann verði að skila HS Orku við­un­andi arð­semi, sem er sér­stak­lega skil­greind í nið­ur­stöð­unni. Þá hafn­aði gerð­ar­dóm­ur­inn skaða­bóta­kröfu Norð­ur­áls á hendur HS Orku vegna van­efnda á samn­ingnum.

Í raun gátu báðir deilu­að­ilar tekið eitt­hvað jákvætt út úr þeirri nið­ur­stöðu. HS Orka var ekki skuld­bundið til að selja orku á verði sem skil­aði fyr­ir­tæk­inu ekki arð­semi og Norðurál hélt þeim orku­sölu­samn­ing sem var því mik­il­vægastur til að halda von­inni um álver í Helguvík lif­andi.

Michael Bless vildi Landsvirkjun í leiðtogahlutverk


Norðurál hefur hug á að byggja álver í Helguvík í fjórum áföngum. 150 MW af orku þarf í hvern áfanga og Norðurál hefur lýst því yfir að álverið verði ekki klárað nema að búið sé að tryggja orku fyrir tvo áfanga, alls 300 MW. Helm­ingur þess átti því að koma frá HS Orku. Ekki hefur tek­ist að tryggja þá við­bót­ar­orku sem til þarf og lágt heims­mark­aðs­verð á áli á und­an­förnum árum hefur ekki skapað mik­inn hvata til þess að ráð­ast í að klára Helgu­vík­ur­verk­efnið.

Michael Bless, for­stjóri Century Aluminum, var spurður út í Helgu­vík­ur­ál­verið á fundi með fjár­festum í til­efni af hálfs­árs­upp­gjöri fyr­ir­tæk­is­ins í júlí 2014. Þar sagði hann að það væri engin breyt­ing á stöðu verk­efn­is­ins á milli árs­fjórð­unga. „Það sem við virki­lega þurfum er að rík­is­orku­fyr­ir­tækið, Lands­virkjun, standi upp í leið­toga­hlut­verk í þessu verk­efni ef við ætlum að koma hlut­unum í gang í náinni fram­tíð“.

Pólitískur þrýstingur á Landsvirkjun


Tölu­verður póli­tískur þrýst­ingur hefur verið á Lands­virkjun að koma að Helgu­vík­ur­verk­efn­inu. Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­að­ar­rá­herra sendi Herði Arn­ar­syni, for­stjóra Lands­virkj­unnar, til að mynda harð­orð skila­boð á haust­fundi fyr­ir­tæk­is­ins í nóv­em­ber í 2013 um að hún væri „orðin ansi óþreyju­full og ég vil fara að sjá árangur og að verk­efnin verði að veru­leika. Tæki­færin eru svo sann­ar­lega til staðar. Ég get nefnt álverið í Helguvík, fram­kvæmd sem ekki bara mun skipta Suð­ur­nesja­menn máli heldur lands­menn alla og hefur beðið allt of lengi“.

Hörður svar­aði því til að Lands­virkjun geti ekki ann­ast orku­öflun fyrir álverið í Helguvík nema að litlu leyti. Sú orka sem Lands­virkjun hefur að bjóða í verk­efnið er ein­ungis á bil­inu 50 til 100 MW og því dropi í hafið af því sem til þarf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár