Topp 10: Kvikmyndir sem byggðar eru á sönnum atburðum

Kvik­myndir sem byggðar eru á sönnum atburðum, eða eftir sögu­legum gögnum um þá, eru mis­jafnar að gæðum. Sumar þeirra telj­ast til bestu kvik­mynda sög­unnar og margar áhuga­verðar og góðar myndir afa komið fram á síð­ustu árum þar sem sögu­þráð­ur­inn er byggður á sannri sögu.

Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur hefur séð merki­lega margar bíó­myndir og tók saman lista yfir tíu bestu sann­sögu­legu kvik­myndir sög­unnar.



  1. PIERREPOINT




Bretland, 2005.

Myndin um böðul­inn Albert Pier­repoint fór ekki hátt á sínum tíma en er ein­stak­lega góð. Hún segir frá manni sem tók a.m.k. 400 manns af lífi á árunum 1932 til 1956. Það má segja að hann hafi fæðst inn í starfið því að bæði faðir hans og föð­ur­bróðir voru böðlar. Myndin er dæmi­gerð ævi­saga sem segir frá hinum ýmsu málum sem komu upp og hvernig hann full­komn­aði þá list að hengja fólk á örfáum sek­úndum. Hann þótti svo fær að hann var feng­inn til að taka stríðs­glæpa­menn af lífi eftir seinni heim­styrj­öld­ina. Hann starf­aði einnig í Írlandi, á Gíbralt­ar­höfða og við Súez-skurð­inn. Myndin sýnir líka hvernig afstaða Breta til dauða­refs­inga breytt­ist á því tíma­bili sem hann starf­aði. Á tíma­bili var hann tal­inn hetja. En þegar hann hengdi Ruth Ellis árið 1955, þá var hann orð­inn skúrkur.



  1. 127 HOURS




Bretland/Banda­ríkin, 2010.

Árið 2003 komst hella­könn­uð­ur­inn Aron Ralston í heims­frétt­irnar þegar hann lenti í slysi í Utah-fylki. Hann var illa und­ir­bú­inn, án síma og hafði ekki látið neinn vita af sér. Hann hras­aði og festi hægri hönd­ina undir hnull­ungi og sat þar fastur í rúm­lega fimm daga (127 klukku­tíma). Til að sleppa þurfti hann að aflima sig með bit­lausum vasa­hníf. Sagan er ótrú­leg en það er eig­in­lega jafn ótrú­legt að hægt sé að gera góða kvik­mynd um þennan atburð. Aðal­leik­ar­inn James Franco er einn í mynd nán­ast allar 90 mín­út­urnar. Hann fer í gegnum allan til­finn­inga­skal­ann og gerir það óað­finn­an­lega. Ralston var him­in­lif­andi með útkom­una og sagði að myndin væri eins og heim­ild­ar­mynd um atburð­inn, svo nákvæm væri hún.



  1. AGUIRRE, DER ZORN GOTTES




Vestur-Þýska­land, 1972.

Leik­stjór­inn Werner Herzog hefur yfir­leitt farið ótroðnar slóðir og sagan um land­vinn­inga­mann­inn Lope de Aguirre er engin und­an­tekn­ing. Aguirre, sem uppi var um miðja 16. öld sagði sig úr lögum við spænsku krún­una, lýsti sig kon­ung Perú og hélt upp Orinoco fljótið í leit að gull­borg­inni El Dorado. Lítið er vitað um afdrif ferða­lang­anna annað en að Aguirre var drep­inn af spænskum her­mönnum. Herzog fyllir í eyð­urnar með inn­byrðis deilum, hjaðn­inga­vígum, guð­lasti, geð­veiki, bar­dögum við indjána og sulti. Rétt eins og ferðin fræga reynd­ust tökur mynd­ar­innar ákaf­lega erf­iðar en myndin var öll tekin upp í frum­skógum Perú. Frægar eru rimmur Herzog og aðal­leik­ar­ans Klaus Kinski. Þeir rifust heift­ar­lega, Kinski hót­aði að ganga heim og Herzog á að hafa hótað honum með byssu.

https://www.youtube.com/watch?v=eJDuicFyJPg



  1. BERNIE




Banda­ríkin, 2011.

Bernie er bráð­fyndin mynd um morð sem átti sér stað í litlum bæ í Austur-Texas árið 1996. Þá myrti útfar­ar­stjór­inn Bern­hardt Tiede ekkj­una og millj­óna­mær­ing­inn Marjorie Nugent sem var 81 árs gömul. Málið var mjög óvenju­legt að því leyti að Bernie var svo vel lið­inn í bænum að flytja þurfti rétt­ar­höldin yfir honum yfir í annan bæ. Margir trúðu því ekki að hann væri fær um að drepa og öðrum fannst Nugent bara eiga það skilið að vera drepin. Myndin er svört kómedía sem er borin uppi af frá­bærum karakt­erum. Jack Black sem Bernie, Shirley MacLaine sem Nugent og Matthew McConaughey sem sak­sókn­ar­inn. Árið 2014 var Tiede sleppt úr fang­elsi gegn því lof­orði að hann flytti inn til leik­stjóra mynd­ar­innar, Richard Linkla­ter.

https://www.youtube.com/watch?v=ihOpkH11Ik8



  1. LE RETOUR DE MARTIN GUERRE




Frakk­land, 1982.

End­ur­koma Martin Guerre fjallar um und­ar­legt mál sem kom upp í franska smá­þorp­inu Artigat í Pýrenn­ea­fjöll­unum um miðja 16. öld. Martin Guerre hvarf eftir að hafa stolið korni frá föður sínum en birt­ist svo aftur þremur árum síðar....eða hvað? Réttara sagt maður sem er líkur honum og þekkir for­tíð hans. Sagn­fræð­ingar hafa deilt um það hvort eig­in­kona Martins, Bertrande, hafi trúað honum. En þó er víst að sá Martin sem kom aftur var henni mun betri en sá sem hvarf. Hún bjó því með honum í nokkur ár eða þar til aðra bæj­ar­búa fór að gruna að ekki væri allt með felldu. Með aðal­hlut­verk fara Gerard Depar­dieu sem Martin og Nathalie Baye sem Bertrande. Þau eru bæði mjög sann­fær­andi í hlut­verkum sínum í þessum falda dem­anti sem minnir þó um margt á sápu­óp­eru.

https://www.youtube.com/watch?v=8IwSU5gqKtQ



  1. DER UNTERGANG




Þýska­land, 2004.

Í Der Unter­gang fylgj­umst við með sein­ustu 10 dög­unum í lífi Adolfs Hitler þar sem hann hírð­ist í neð­an­jarð­ar­byrgi á meðan rauði her­inn nálg­að­ist Berlín. Myndin er nokk­urs konar sál­fræði­verk­efni, þ.e. hvernig ósigr­andi fólk tekst á við ósigur. Bruno Ganz leikur þreyttan, bitran og gamlan Hitler sem virð­ist stundum alger­lega veru­leikafirrtur en stundum viss um örlög sín. Sjálfs­morð voru dag­legt brauð í byrg­inu þar sem mörgum þótti dauð­inn skárri örlög en að vera hand­samaður af Sov­ét­mönnum. Aðrir vildu ekki búa í heimi án nas­isma, eins og Göbbels hjónin. Sagan af þeim er sér­stak­lega hroll­vekj­andi. Myndin er að miklu leyti byggð á æviminn­ingum Traundl Junge, einum af rit­urum Hitlers en einnig er stuðst við aðrar heim­ildir. Junge er því nokkuð stór karakter í mynd­inni.

https://www.youtube.com/watch?v=Q9pl7IWPx5E



  1. MONEYBALL




Banda­ríkin, 2011.

Money­ball er ein af óvenju­legri íþrótta­myndum sem til eru. Maður sér sára­lítið af íþrótta­iðkun í henni en þeim mun meira af því sem ger­ist á bak­við tjöldin. Myndin er gerð eftir bók met­sölu­höf­und­ar­ins Michael Lewis sem kom út árið 2003 og fjallar um Billy Beane fram­kvæmda­stjóra hafna­boltaliðs­ins Oakland Athletics og aðstoð­ar­manns hans. Aðstoð­ar­mað­ur­inn, Paul DePodesta, var reyndar ósáttur við gerð kvik­mynd­ar­innar og því þurfti að búa til karakter í stað hans. Athletics er eitt af smærri lið­unum í MLB deild­inni og hafa því tak­markað fjár­magn til umráða. Þeir félagar fundu því upp töl­fræði­kerfi til að finna besta verð­mætið á leik­manna­mark­að­inum. Þó maður skilji lítið í hafna­bolta er myndin bráð­skemmti­leg og svo­lítið eins og að fylgj­ast með mönnum bítta á hafna­bolta­spjöldum.

https://www.youtube.com/watch?v=AiAHlZVgXjk



  1. LA PASSION DE JEANNE D´ARC




Frakk­land, 1928.

Söguna um Jóhönnu af Örk þekkja flestir en þessi kvimynd fjallar um rétt­ar­höldin og aftöku dýr­lings­ins. Myndin er byggð á rétt­ar­gögnum franska klerka­dóm­stóls­ins sem var hlið­hollur Eng­lend­ingum í hund­rað ára stríð­inu. Danski stór­leik­stjór­inn Carl Dreyer gerði mynd­ina og þótti hún afar sér­stök og þá sér­stak­lega kvik­mynda­takan. Flest atriðin eru nær­myndir af and­litum Jóhönnu og klerk­anna og þar sem myndin er þögul þurftu leik­ar­arnir að halda henni uppi með svip­brigðum. Reneé Jeanne Falconetti lék Jóhönnu í sínu eina stóra kvik­mynda­hlut­verki og frammi­staða hennar þykir hreint afrek. Fram­leið­end­urnir töp­uðu miklum fjár­hæðum þar sem sviðs­myndin var svo dýr en Ástríða Jóhönnu af Örk er almennt talin ein af bestu kvik­myndum sög­unnar.

https://www.youtube.com/watch?v=CQj_3AY-E1g



  1. ALEXANDER NEVSKY




Sov­ét­ríkin, 1938.

Fyrsta hljóð­mynd hins mikla Sergei Eisen­stein fjallar um vörn prins­ins og dýr­lings­ins Alexader Nevsky gegn inn­rás germ­anskra ridd­ara á þrett­ándu öld. Ridd­ar­arnir réð­ust inn í Pskov í mið­alda­rík­inu Novgorod sem nú er norð-vest­ur­hluti Rúss­lands. Nevsky réð­ist gegn þeim á gegn­frosnu Pleibus stöðu­vatn­inu og vann afger­andi sigur. Ger­mönsku ridd­ar­arnir réð­ust ekki aftur inn í Rússland. Myndin er mik­il­feng­leg og þá sér­stak­lega bar­daga­sen­urnar sem hafa haft áhrif á seinni tíma kvik­mynda­gerð­ar­menn. Eins og flestar kvik­myndir Eisen­stein þá er hún hreinn áróður, gerð á þeim tíma þegar Þýska­land Hitlers ógn­aði mjög Sov­ét­ríkj­unum. Þegar Hitler og Stalín mynd­uðu banda­lag var hún tekin úr umferð en skellt jafn­harðan í sýn­ingar eftir að Þjóð­verjar réð­ust inn í Sov­ét­ríkin.

https://www.youtube.com/watch?v=pXr0m7SaGvs



  1. ZULU




Bretland, 1964.

Zulu fjallar um orr­ust­una um Rorke´s Drift árið 1879. Í upp­hafi Zulu-stríðs­ins höfðu Bretar beðið nið­ur­lægj­andi ósigur við Isandlwana. Zulu menn létu kné fylgja kviði og réð­ust á lítið virki og spít­ala á landa­mærum bresku Suður Afríku og Zulu-lands. Einungis 150 Bretar voru í virk­inu og margir af þeim særðir en Zulu-stríðs­menn­irnir voru um 4000. Á ein­hvern undra­verðan hátt náðu Bret­arnir aftur á móti að hrinda hverri árás­ar­öld­unni á fætur annarri. Myndin er auð­vitað óður til þessa mikla afreks en ekki er gert lítið úr Zulu-mönnum. Myndin er hvorki upp­hafn­ing né ádeila á nýlendu­stefn­una. Þetta er hrein spennu­mynd. Ungur leik­ari að nafni Michael Caine fékk sitt fyrsta stóra hlut­verk sem liðs­for­ingi og varð að stjörnu eftir það.

https://www.youtube.com/watch?v=1csr0dxalpI

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár