Hlutabréfasjóðir á Íslandi eru dýrir

Íslenskir hluta­bréfa­sjóðir fyrir almenn­ing eru flestir dýr­ari fyrir við­skipta­vini heldur en sam­bæri­legir verð­bréfa­sjóðir í Noregi. Upp­hafs­kostn­aður við að kaupa sig inn í íslensku sjóð­ina er hár í sam­an­burði, vegna hárrar þókn­unar sem sjóð­irnir rukka. Heild­ar­kostn­aður á fyrsta árinu getur verið hátt í fjögur pró­sent af fjár­fest­ing­unni.

Þetta sýnir sam­an­tekt Kjarnans á kostn­aði nokk­urra algengra hluta­bréfa­sjóða sem reknir eru af sjóð­stýr­ing­ar­fé­lögum Íslands­banka, Arion banka, Lands­bank­ans, MP Straumi auk sjóði Íslenskra verð­bréfa. Öll félögin bjóða almenn­ingi að fjár­festa í hluta­bréfa­sjóðum sem fjár­festa á inn­lendum hluta­bréfa­mark­aði.

Kostar að kaupa

Í flestum til­vikum er tekin tveggja pró­senta þóknun við kaup á hlut­deild­ar­skír­teinum í sjóð­unum. Það þýðir að sá sem vill kaupa hlut­deild­ar­skír­teini í hluta­bréfa­sjóði fyrir 500 þús­und krónur greiðir tíu þús­und krónur í þóknun. Kostn­aður við að fjár­festa í sjóði fyrir fimm millj­ónir króna er hund­rað þús­und krónur.


Auk þess að taka tveggja pró­senta þóknun við kaup á hlut­deild­ar­skír­teinum, þá er algengur umsýslu­kostn­aður um 1,7 pró­sent á ári. Það er þó mis­jafnt milli íslensku sjóð­anna, frá því að vera 0,5 pró­sent hjá kaup­hall­ar­sjóði Lands­bréfa, upp í 1,75 pró­sent hjá öðrum hluta­bréfa­sjóði Lands­bréfa.


Heild­ar­kostn­aður þess sem fjár­festir í hlut­deild­ar­skír­teinum í inn­lendum hluta­bréfa­sjóði getur þannig numið allt að 3,7 pró­sentum af fjár­fest­ing­unni. Það er tölu­vert hærra en í Noregi, þar sem algengt er að þóknun við kaup séu engin en árlegur umsýslu­kostn­aður um 1,5 til tvö pró­sent. Heild­ar­kostn­aður á fyrsta árinu er þar mun lægri en hér­lendis.


Sjóð­irnir sem hér eru til umfjöll­unar eru ætl­aðir almenn­ingi og lág­marks­fjár­fest­ing þarf sam­kvæmt reglum flestra sjóð­anna aðeins að vera nokkur þús­und krónur. Í töfl­unni hér að neðan má sjá kostnað við kaup og árlegan umsýslu­kostnað hjá nokkrum inn­lendum hluta­bréfa­sjóðum auk sam­bæri­legra sjóða í Noregi til sam­an­burðar. Athugið að taflan er ekki tæm­andi.

Hluta­bréfa­sjóðir, íslensk hluta­bréf*
Nafn á sjóði Þóknun við kaup** Árlegur umsýslu­kostn­aður Samtals kostn­aður á ári 1
Íslands­sjóðir: Úrvals­vísi­tala - Sjóður 6 2,00% 0,80% 2,80%
Íslands­sjóðir: Hluta­bréfa­sjóð­ur­inn 2,00% 1,70% 3,70%
Stefnir: ÍS-15 2,00% 1,71% 3,71%
Lands­bréf: Úrvals­bréf 2,00% 1,65% 3,65%
Lands­bréf: Önd­veg­is­bréf 2,00% 1,75% 3,75%
Lands­bréf: LEQ 0,00% 0,50% 0,50%
Júpiter: Innlend hluta­bréf 1,50% 1,70% 3,20%
Íslensk Verðbréf: Hluta­bréfa­safn ÍV 2,00% 1,50% 3,50%
GAMMA: Equity 0,9% 1,5% 2,4%
Meðaltal 3,10%
*íslenskir hluta­bréfa­sjóðir með lága lág­marks­fjár­hæð við kaup **Eða geng­is­munur.
Hluta­bréfa­sjóðir, nokkrir sam­an­burð­ar­sjóðir í Noregi**
Nafn á sjóði Þóknun við kaup Árlegur umsýslu­kostn­aður Samtals kostn­aður á ári 1
Stor­ebr­and: Verdi 0,0% 2,00% 2,00%
Stor­ebr­and: Norge 0,0% 1,50% 1,50%
Nordea: Norge Verdi 1,1% 1,50% 2,55%
Nordea: Vekst 1,1% 2,00% 3,05%
DNB: Norge 0,0% 1,80% 1,80%
Meðaltal 2,18%
**Norskir hluta­bréfa­sjóðir með lága lág­marks­fjár­hæð við kaup


Starfsmennirnir með yfir 1.300 þúsund á mánuði


Sjóð­stýr­ing­ar­fé­lögin skila eig­endum sínum, sem eru við­skipta­bank­arnir nema í til­viki Íslenskra verð­bréfa, miklum tekjum auk þess sem þau eru rekin með hund­ruð millj­óna hagn­aði. Þannig nam hagn­aður Lands­bréfa, sjóð­stýr­inga­fé­lags Lands­bréfa, um 190 millj­ónum í fyrra. Hagnaður af rekstri Íslands­sjóða, félags Íslands­banka, nam um 230 millj­ónum árið 2014. Stefnir, félag Arion banka, skil­aði 867 millj­ónum króna í hagnað. Hagnaður Júpíters, sjóð­stýr­ing­ar­fé­lag MP Straums, var 29 millj­ónir króna.


Auk hluta­bréfa­sjóða reka sjóð­irnir skulda­bréfa­sjóði og fag­fjár­festa­sjóði. Umsvif þess­ara félaga og sjóða í þeirra rekstri hafa auk­ist mikið á und­an­förnum árum, sam­hliða meira lífi á inn­lendum verð­bréfa­mark­aði eftir hrun.


Greint var frá því í júlí síð­ast­liðnum að starfs­menn þess­ara rekstr­ar­fé­laga verð­bréfa­sjóða fá almennt að með­al­tali um 1.300 þús­und til 1.600 þús­und krónur í laun á mán­uði. Samkvæmt umfjöllun DV, sem byggði á árs­reikn­ingum félag­anna, voru hæstu launin hjá Stefni og Júípter. Með­al­mán­að­ar­laun starfs­manna þess­ara félaga námu lið­lega 1,6 millj­ónum króna á síð­asta ári. Launin taka ekki til­lit til mögu­legra bónusa sem starfs­menn sumra félag­anna kunna að hafa fengið.


Með­al­laun starfs­manna Íslands­sjóða, sjóða­týr­ing­ar­fé­lags Íslands­banka, námu um 1.280 þús­und krónum á mán­uði í fyrra en með­al­fjöldi starfs­manna var 16,6. Lands­bréf, félag Lands­bank­ans, greiddi 19 starfs­mönnum að með­al­tali sömu upp­hæð. Hjá Stefni voru með­al­launin 1.570 þús­und krónur og með­al­fjöldi starfs­manna 22. Júpíter greiddi starfs­mönnum sínum, sem voru að með­al­tali 4,5 tals­ins í fyrra, 1.610 þús­und krónur á mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár