Starfsmenn sjóðastýringarfélaga með 1.300 til 1.600 þúsund á mánuði

Starfs­menn í stærstu rekstr­ar­fé­lögum verð­bréfa­sjóða á íslenskum fjár­mála­mark­aði fá almennt að með­al­tali um 1.300 þús­und til 1.600 þús­und krónur í laun á mán­uði. Stefnir, stærsta sjóða­stýr­ing­ar­fé­lag lands­ins og er í eigu Arion banka, og Júpíter, sem er í eigu MP banka, greiddu hæstu launin af slíkum félögum á síð­asta ári. Með­al­mán­að­ar­laun starfs­manna þess­ara félaga námu lið­lega 1,6 millj­ónum króna.

Þetta kemur fram í umfjöllun DV um laun starfs­manna sjóða­stýr­inga­fé­laga á síð­asta ári. Upp­lýs­ing­arnar eru úr árs­reikn­ingum félag­anna og taka ekki til­lit til mögu­legra bónusa sem starfs­menn sumra félag­anna kunna að hafa fengið. Fram kemur í frétt DV að umsvif sjóða­stýr­ing­ar­fé­laga hafi farið vax­andi á und­an­förnum árum, sam­hliða því að verð­bréfa­mark­aður hefur tekið við sér. Með­al­laun hafa hækkað umtals­vert und­an­farin ár og í til­felli Stefnis hafa þau nærri tvö­fald­ast frá árinu 2009.

Með­al­laun starfs­manna Íslands­sjóða, sjóða­týr­ing­ar­fé­lags Íslands­banka, námu um 1.280 þús­und krónum á mán­uði í fyrra en með­al­fjöldi starfs­manna var 16,6. Lands­bréf, félag Lands­bank­ans, greiddi 19 starfs­mönnum að með­al­tali sömu upp­hæð. Með­al­laun á mán­uði hjá Gamma námu um 1.010 þús­und krónum á mán­uði en 17 störf­uðu hjá félag­inu í fyrra að jafn­aði. Hjá Stefni voru með­al­launin 1.570 þús­und krónur og með­al­fjöldi starfs­manna 22. Júpíter greiddi starfs­mönnum sínum, sem voru að með­al­tali 4,5 tals­ins í fyrra, 1.610 þús­und krónur á mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár