Google endurskipulagt og verður Alphabet

Banda­ríska fyr­ir­tækið Google, eitt stærsta tækni­fyr­ir­tæki heims, mun héðan í frá heita Alphabet. Larry Page, annar stofn­enda Google sem upp­haf­lega var leit­ar­vél en rekur í dag miklu víð­tæk­ari starf­semi, til­kynnti um veiga­miklar breyt­ingar á upp­bygg­ingu félags­ins eftir lokun mark­aða í Banda­ríkj­unum í dag. Það gerði hann á blogg­síðu Google. Starf­semi Google verður með þessu móti brotin niður í smærri ein­ingar undir móð­ur­fé­lag­inu Alphabet.

BREAKING: Google creates new company called Alphabet, restructures stock http://t.co/6cBqmhe2Kg

— Bloomberg Business (@business) August 10, 2015

Banda­rískir fjöl­miðlar greina frá áformum stjórn­enda félags­ins í dag. Í pistli á blogg­síðu Google, og lesa má hér, útskýrir Larry Page að hann verði for­stjóri nýja eign­ar­halds­fé­lags­ins og Sergey Brin, hinn stofn­andi Google, verði for­seti þess. Þeir von­ast til að breytt skipu­lag gefi þeim frelsi til að sækja fram í tækninýj­ungum. Page segir að þeir muni nýta krafta sína í fram­tíð­ar­verk­efni og hvar sem þeirra er þörf hverju sinni.


Page útskýrir Alphabet sem sam­an­safn fyr­ir­tækja. Þeirra stærst verður Google með leit­ar­vél­ina, Maps kortið, Android stýri­kerfið, Youtube og fleira inn­an­borðs. Þá verður tækni­þró­un­ar­fé­lagið X Lab rekið sem sér­stök ein­ing undir Alphabet en félagið hefur til þessa kall­ast Google X og meðal ann­ars þróað sjálf­keyr­andi bíla. Í póst­inum til­tekur Page sér­stak­lega þróun X Lab á drónum. Fjár­fest­inga­sjóð­irnir Venture og Capital verða reknir sem sér­stök dótt­ur­fé­lög Alphabet.


Greint var frá breyt­ing­unum skömmu eftir lokun mark­aða í Banda­ríkj­unum í dag, eða skömmu fyrir klukkan 21 að íslenskum tíma. Hluta­bréf í Google, sem nú heitir reyndar Alphabet, hafa rokið upp á eft­ir­mark­aði.

Google shares are spik­ing after hours on news of corporate restructuring. http://t.co/XG6T8Y5xnM pic.twitter.com/seZhLnw69H

— Bloomberg Markets (@markets) August 10, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár