Fjöldi árása í Tyrklandi

Mörg ofbeld­is­verk hafa verið framin í Tyrk­landi í dag, í átökum milli örygg­is­sveita Tyrkja ann­ars vegar og her­manna Kúrda hins vegar. Í hér­að­inu Sirnak lést einn her­maður þegar þyrla var skotin niður og fjórir lög­reglu­menn lét­ust í sprengju­árás á svæð­inu Silopi í sama hér­aði. Í Istanbúl hófu tveir ein­stak­lingar skot­hríð fyrir utan ræð­is­skrif­stofu Banda­ríkj­anna, örfáum klukku­stundum eftir að sprengja sprakk fyrir utan lög­reglu­stöð í borg­inni í nótt. Enginn meidd­ist í árásinni fyrir utan ræð­is­skrif­stof­una en þrír lög­reglu­menn og sjö óbreyttir borg­arar slös­uð­ust þegar sprengjan sprakk. The Guardian og BBC greina frá.

The Guardian birtir mynd­band frá lög­reglu­stöð­inni þar sem hópur fólks safn­að­ist saman, eftir að sprengjan sprakk.

Spenna milli Tyrkja og Kúrda hefur farið stig­vax­andi.Vopna­hléi í langvar­andi ill­deilum virð­ist hafa lokið í síð­asta mán­uði, þegar Tyrkir hófu sprengju­árásir á búðir Verka­manna­flokks Kúrda (PKK) í norð­ur­hluta Írak, á sama tíma og Tyrkir hófu loft­árásir gegn her­liðum Íslamska rík­is­ins (ISIS). Í kjöl­far ára­sanna í dag réð­ist tyrk­neski her­inn að skot­mörkum PKK í Írak í hefnd­ar­skyni, að því er segir í umfjöllun BBC.

Foringi PKK hefur sakað Tyrki um að vernda ISIS með árásum á kúr­dneska her­menn en Kúrdar hafa barist gegn fram­gangi Íslamska rík­is­ins í Írak og Sýrlandi með árangri. Tyrkland, og fleiri vest­ræn lönd, telja PKK aftur á móti vera hryðju­verka­sam­tök.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár