Lögreglan í Ferguson skaut mann þegar Michael Brown var minnst

Einn er lífs­hættu­lega slas­aður eftir að hafa orðið fyrir byssu­skoti lög­reglu­þjóns, í mót­mælum í borg­inni Ferguson í Missouri í Banda­ríkj­unum í nótt. Mótmælin voru í til­efni af því að eitt ár er liðið frá því að hvítur lög­reglu­maður í borg­inni skaut ungan, svartan mann til bana, Michael Brown að nafni. Brown var óvopn­aður þegar lög­reglan skaut hann.

Í umfjöllun New York Times segir að mót­mælin í gær­dag og nótt hafi lengst af farið frið­sam­lega fram. Skot­hvellir heyrð­ust þegar leið á kvöldið. Á sama tíma voru fjöl­miðlar að taka við­tal við lög­reglu­stjór­ann í Ferguson, þar sem hann tjáði sig um mót­mælin en þurfti að stoppa vegna skot­hvella.



Óhug­an­an­legt mynd­band var birt á Twitter þar sem mað­ur­inn sem var skot­inn af lög­regl­unni liggur hreyf­ing­ar­laus á jörð­inni. Í umfjöllun New York Times segir að lög­reglan hafi á end­anum komið mann­inum til aðstoðar og virt­ist sem hann væri með með­vit­und þegar hann var færður inn í sjúkra­bíl. Maðurinn liggur nú þungt hald­inn á sjúkra­húsi, sam­kvæmt frétt New York Times.

pic.twitter.com/dsrEDWV1Bs

— Search4Swag (@search4swag) August 10, 2015


Dauði Michael Browns fyrir ári síðan mark­aði upp­hafi mik­illa mót­mæla í Banda­ríkj­unum, í Ferguson og víðar, þar sem mót­mæl­endur hafa barist fyrir rétt­indum svartra borg­ara og gegn lög­reglu­of­beldi, meðal ann­ars undir yfir­skrift­inni „Líf svartra skiptir máli“. Ástandið í Ferguson var sér­stak­lega eld­fimt í nóv­em­ber á síð­asta ári, þegar til­kynnt var um þá ákvörðun kvið­dóms að lög­reglu­mað­ur­inn sem skaut Brown yrði ekki ákærður fyrir mann­dráp. Í kjöl­farið brut­ust út mót­mæli og óeirðir í Ferguson sem stóðu í marga daga. Á þeim tíma var víðar mót­mælt í Banda­ríkj­unum, meðal ann­ars í New York borg og Chicago.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár