Helsta vopn Kremlar í utanríkismálum að hruni komið

Þegar Rússar hafa viljað sýna mátt sinn og megin gagn­vart nágrönnum sínum vestar í Evrópu hafa stjórn­völd í Kreml skrúfað fyrir gasleiðslur. Gazprom, stærsti flutn­ings­að­ili gass í heim­inum, er að meiri­hluta í eigu rúss­neskra stjórn­valda sem hafa ekki hikað við að beita gas­ris­anum í utan­rík­is­málum.

Gazprom sér Evrópu fyrir um fjórð­ungi alls gass sem notað er í álf­unni. Gasinu er pumpað um gasleiðslur sem liggja þvert yfir álf­una frá helstu gasekrum í Austur-Evrópu, meðal ann­ars Úkraínu þar sem helm­ingur rúss­nesks gass rennur í gegn.

En það kann að vera að þetta utan­rík­is­mála­tól Rússa sé að þrotum komið og hafi ekki svo mikil áhrif lengur. Gazprom er nefni­lega aðeins skugg­inn af sjálfu sér eftir gríð­ar­legt fall á virði þess á hluta­bréfa­mörk­uðum. Árið 2008 náði mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins hæstu hæðum og var metið á 367,27 millj­arða doll­ara (um 49 þús­und millj­arða íslenskra króna). For­stjóri fyr­ir­tæks­ins, Alex­ander Medvedev, spáði þá að virði fyr­ir­tæk­is­ins yrði orðið tæp­lega þús­und millj­arðarðar árið 2010.

Medvedev reynd­ist síður en svo sann­spár því virði Gazprom hefur síðan hrunið ævin­týra­lega og mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins er nú metið á 51,12 millj­arða doll­ara (tæp­lega 7 þús­und millj­arðar íslenskra króna). Samkvæmt Bloomberg-frétta­stof­unni hefur ekk­ert fyr­ir­tæki á lista 5.000 stærstu hrunið jafn mikið eins og Gazprom.

Það sem meira er að Gazprom virð­ist hvergi nærri því að ná botn­inum og óvissan hefur vakið spurn­ingar um hvort fyr­ir­tækið geti hrein­lega lifað af. Ráðherra hag­þró­unar í Rúss­landi hefur spáð því að árleg gas­fram­leiðsla í Rúss­landi í ár muni minnka í 414 millj­arða rúmmetra, langt undir mark­mið Gazprom um 485 millj­arða rúmmetra. Það er minnsta gas­fram­leiðsla í 26 ára sögu Gazprom. Útflutn­ings­tekjur af gas­inu hafa einnig hrunið ævin­týra­lega. Á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins 2015 hafa útflutn­ings­tekjur Gazprom minnkað um 35,8 pró­sent miðað fyrra ár.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Vladimir Pútin, for­seti Rúss­lands, hefur óhikað notað Gazprom sem tól í utan­rík­is­málum. Nýlega tók Gazprom á sig gríð­ar­legar skuld­bind­ingar svo Rússar geti selt gas og olíu til Kína og land­anna við Kyrra­hafið.[/caption]

 

Hvað skeði eiginlega?


Það er því ekki nema von að fólk spyrji sig hvað hafi gerst fyrir helsta birgða­sala Evrópu - og Kína - á hinu verð­mæta gasi. Stjórn­völd í Kreml segja „hlýja vetur“ vera ástæðu þess að olíu­verð hefur hríð­lækkað og þar með tekjur rík­is­ol­íu­fyr­ir­tæk­is­ins, en á meðan eru orkurisar á borð við Exxon­Mobil og PetroChina enn á ljúfri sigl­ingu. Um þetta er fjallað ítar­lega á Eurasi­anet.

Mark­aðs­hlut­deild Rússa á gasmark­aði í Evrópu hefur minnkað með „hlýrri vetrum“, en á sama tíma hafa Norðmenn stækkað við­skipta­hóp sinn gríð­ar­lega. Í fyrsta sinn skák­uðu þeir Rússum í magni birgða á síð­asta fjórð­ungi árs­ins 2014 og þeim fyrsta árið 2015 um meira en 50 pró­sent.

Sér­fræð­ingar á sviði mark­aðsvið­skipta telja þessa erf­ið­leika hins vegar ráð­ast af afskiptum rúss­neskra stjórn­valda. „Þetta er vanda­mál allra fyr­ir­tækja í eigu rúss­neska rík­is­ins,“ sagði Oleg Popov, ein­ga­um­sýslu­maður hjá Allianz í Moskvu, við Bloomberg í fyrra. „Gazprom er virkur tafl­maður í utan­rík­is­póli­tík Kremlar og félags­legum málum. Gazprom tekur ein­fald­lega á sig kostn­að­inn í stað stjórn­valda og þannig er þungu hlassi lift af rík­is­sjóði.“

Gazprom hefur til dæmis fjár­fest í stórum rúss­neskum fjöl­miðlum sem verða svo að mál­gagni stjórn­valda, sann­fært nágranna­ríki um að vera hlið­holl Rússum með góðu eða illu og styrkt ævin­týra­lega dýra ólymp­íu­leika í Sochi.

Fyr­ir­mæli Kremlar um að Gazprom beiti sér hafa reynst fyr­ir­tæk­inu fjár­hags­lega erfið. Stuðn­ingur Rússa við aðskiln­að­ar­sveitir í aust­ur­hluta Úkraínu hafa gert það að verkum að útflutn­ingur Gazprom til Úkraínu hefur fallið úr 36,4 rúm­kíló­metrum árið 2014 í 3,7 rúm­kíló­metra á fyrri helm­ingi árs­ins 2015. 1. júlí urðu við­skiptin svo engin. Orku­stífla Rússa gegn Úkraínu hafa engu skilað nema tapi fyrir Gazprom. Um leið hefur það þvingað Evr­ópu­lönd til að dreifa álagi gasinn­flutn­ings frá Rússum.

Stjórn­völd í Rúss­landi vilja halda áfram að minnka flutn­ing gass í gegnum Úkraínu og flytja það frekar um Tyrkland eða um leiðslur í Eistra­salti. Ráðast þyrfti í nokkra upp­bygg­ingu til þess að gera þetta mögu­legt og sér­fræð­ingar telja það óskyn­sam­legt; það hafi meira með póli­tík að gera en hag­ræði. Það yrði mun dýr­ara að flytja gasið um Eistra­saltið en í gegnum Úkraínu.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Alexei Miller, fram­kvæmda­stjóri Gazprom, hefur meðal ann­ars fundað með Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, um fyr­ir­hug­aða gas­flutn­inga um Tyrkland og Grikk­land.[/caption]

Þá hefur eft­ir­spurn eftir olíu og gasi frá Mið-Aust­ur­löndum minnkað eftir að Banda­ríkin urðu sjálf­bær með orku. Bik­steins­gas­fram­leiðsla Banda­ríkja­manna hefur gert það að verkum að nú er hægt að fram­leiða gas og olíu með ódýr­ari hætti. Rússar hafa hins vegar setið eftir hvað þetta varðar. For­stjóri Gazprom hefur meira að segja sagt að þetta sé aðeins gæða­vara sem ekki sé eins mikil eft­ir­spurn eftir. Evrópa hefur hins vegar í auknum mæli keypt ódýr­ari orku frá Mið-Aust­ur­löndum og minnkað inn­flutn­ing á dýrri orku frá Rúss­landi.

Dýr samningur við Kína


Árs­gam­alt sam­komu­lag Rússa við Kínverja um gas og olíu kann að hafa enn meiri kvaðir í för með sér fyrir Gazprom. Fyr­ir­tækið er sam­kvæmt sam­komu­lag­inu skuld­bundið til að ann­ast upp­bygg­ingu allra inn­viða olíu- og gassölu til Kína og telja sér­fræð­ingar fyr­ir­tæk­is­ins að kostn­að­ur­inn við það gæti orðið meiri en 100 millj­arðar banda­ríkja­dala.

Gazprom hefur vegna þessa þurft að taka þó nokkra áhættu í fjár­mögnun verk­efn­is­ins því umsamdar greiðslur frá Kín­verjum bár­ust aldrei og tækni­leg úrlausn­ar­efni kunna að auka verð­mið­ann enn frekar. Lægra olíu­verð hefur það einnig í för með sér að virði samn­ings­ins fyrir Gazprom er ekki lengur 400 millj­aðar doll­ara heldur mun minna. Fatið af olíu kost­aði um það bil 100 doll­ara þegar sam­komu­lagið var gert í fyrra en kostar nú aðeins um 50 doll­ara.

Verðið sem Gazprom fær nú fyrir hvern rúm­kíló­metra af gasi er um 200 doll­arar. Grein­ing­ar­fyr­ir­tækið Merryll Lynch segir Gazprom þurfa að rukka Kínverja um 340-380 doll­ara til þess að hagn­ast á við­skipt­unum. Sam­komu­lagið við Kína gæti því auð­veld­lega orðið að eitri í æðar rúss­neska olíu­ris­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár